Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 29
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29 stimplað sig inn sem einn af sterk- ustu körfuknattleikmönnum Íslands. Þá var Jóna Helena Bjarnadóttir kjörinn sundmaður Keflavíkur, Har- aldur Freyr Guðmundsson knatt- spyrnumaður Keflavíkur og Helena Rós Gunnarsdóttir fimleikamaður Keflavíkur. Jósef Kristinn og Helga íþróttafólks ársins í Grindavík Jósef Kristinn Jósefsson knattspyrnu- maður og körfuknattleikskonan Helga Hallgrímsdóttir voru kjörin íþrótta- maður og íþróttakona Grindavíkur 2010 á glæsilegu hófi sem haldið var í Saltfisksetrinu á gamlársdag 2010. Jósef var lykilmaður í knattspyrnu- liði Grindavíkur í sumar og lék með U21-landsliði Íslands sem tryggði sér sæti í úrslitum EM næsta sumar. Helga er fyrirliði körfuknattleiksliðs Grindavíkur og burðarás liðsins. Þetta er annað árið í röð sem kjörið er kynjaskipt. Starf UMFG var í miklum blóma á árinu enda kraft- miklar deildir sem þar eru. Fimm Íslandsmeistaratitlar komu í hús á árinu, þar af þrír í einstaklingsíþrótt- um, og einn bikarmeistaratitill. UMFG og afrekssjóður Grindavíkur stóðu fyrir kjörinu. Fjölmenni var við afhend- inguna. Róbert Ragnarsson bæjar- stjóri afhenti íþróttafólki ársins verð- launin að þessu sinni en Kristinn Reimarsson, frístunda- og menning- arfulltrúi, stýrði samkomunni. Ýmis önnur verðlaun voru veitt, eins og hvatningarverðlaun ung- menna, fyrir fyrstu landsleikina, fyrir Íslands- og bikarmeistaratitla ársins og svo fengu tvær hlaupadrottning- ar, þær Anna S. Sigurjónsdóttir og Christine Buchholz, sérstök verðlaun. Helgi Rafn íþrótta- maður Tindastóls Helgi Rafn Viggósson, körfuknatt- leiksmaður og fyrirliði úrvalsdeildar- liðs Tindastóls, var þann 29. desem- ber sl. útnefndur íþróttamaður Tinda- stóls fyrir árið 2010. Helgi Rafn er fyrirliði úrvalsdeildarliðs Tindastóls í körfuknattleik og lék besta keppnis- tímabil sitt til þessa 2009–2010. Var hann valinn besti leikmaður liðsins af félögum sínum á lokahófi körfu- knattleiksdeildar sl. vor. Helgi átti stóran þátt í því að liðið komst í úrslitakeppnina í fyrsta skipti í mörg ár. Hann er þekktur fyrir að leggja sig fram bæði innan vallar og utan. Hann tekur virkan þátt í þeim fjáröflunum sem körfuknattleiks- deildin stendur fyrir og inni á vellin- um er hann sannur leiðtogi og dríf- ur samherja sína áfram með baráttu- anda og fórnfýsi fyrir félag sitt. Þrátt fyrir erfiða byrjun Tindastóls í úrvals- deildinni í haust hefur Helgi hvergi slegið af og átt stóran þátt í þeim jákvæðu breytingum sem orðið hafa á leik liðsins undanfarið. Þá fengu þau Pétur Rúnar Birgis- son og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir sérstakar viðurkenningar sem ungt og efnilegt körfuknattleiksfólk, en þau voru bæði valin í æfingahópa U15-landsliða Íslands auk þess sem Þóranna var einnig valin til æfinga hjá U16-landsliðinu. Bæði eru lykil- menn með liðum sínum í Íslands- mótinu, hafa leikið vel í vetur og eru í mikilli framför. Sveinn Fannar íþrótta- maður Fjarðabyggðar Sveinn Fannar Sæmundsson, knatt- spyrnumaður í Neskaupstað, var útnefndur íþróttamaður Fjarðabyggð- ar árið 2010. Fékk hann afhenta við- urkenningu í Kirkju- og menningar- miðstöðinni á Eskifirði þann 29. des- ember 2010. Sveinn Fannar er fædd- ur árið 1993 en á að baki verkefni með U19- landsliði Íslands. Í rök- stuðningi fyrir valinu segir að Sveinn hafi verið fastamaður og fyrirliði 2. flokks Knattspyrnufélags Fjarða- byggðar (KFF) sem varð Íslands- meistari í C-deild í sumar og vann sér því sæti í B-deild auk þess sem hann spilaði 14 leiki fyrir meistara- flokk liðsins í 1. deild. Í rökstuðn- ingnum segir ennfremur að Sveinn Fannar hafi mikinn metnað fyrir íþróttinni og mæti á allar æfingar með það að leiðarljósi að bæta sig. Hann leggi mikla áherslu á heiðar- leika, jafnt innan vallar sem utan, og sé fyrirmynd ungra leikmanna. Helga Margrét íþróttamaður HSVH Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjáls- íþróttakona frá Reykjum í Hrútafirði, er íþróttamaður Ungmennasam- bands Vestur-Húnvetninga árið 2010 en kjörinu var lýst í Íþróttamiðstöð- inni á Hvammstanga 27. desember sl. Helga Margrét hlaut 50 stig í kjör- inu. Í öðru sæti varð Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, körfuknattleikskona og systir Helgu Margrétar, með 24 stig og í þriðja sæti varð Fríða Mary Halldórsdóttir hestaíþróttakona með 7 stig. Aðrir, sem hlutu tilnefningar í kjöri íþróttamanns USVH, voru Tryggvi Björnsson og Ísólfur Líndal Þórisson hestaíþróttamenn og Ólaf- ur Ingi Skúlason frjálsíþróttamaður. Íþróttamenn USVH geta orðið þeir íþróttamenn 16 ára og eldri sem lög- heimili eiga í Húnaþingi vestra eða keppa undir merkjum félaga innan USVH. Það eru stjórnarmenn í aðildarfélögum USVH og stjórn USVH sem kjósa íþróttamanninn. Þetta er í fjórða skiptið í röð sem Helga Margrét er kjörin íþróttamað- ur ársins hjá USVH og hlaut hún far- andbikar til varðveislu auk eignar- bikars. Helga Margrét vann góð afrek á árinu sem er að líða og stendur þar hæst árangur hennar í sjöþraut á heimsmeistaramóti 19 ára og yngri í Kanada þar sem hún vann til bronsverðlauna. Aron afreksmaður Fjölnis Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhanns- son var valinn afreksmaður Fjölnis 2010 í lok desember á síðasta ári. Aron sló rækilega í gegn á árinu og var m.a. valinn besti leikmaður 1. deildar af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. Hann var einnig valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar og er þetta í fyrsta og eina sinn sem sami leikmaðurinn hefur hlotið báð- ar þessar viðurkenningar. Að auki var Aron markahæstur í 1. deildinni með 12 mörk og skoraði einnig 4 mörk í Visa-bikarkeppninni. Undir lok tímabilsins var Aron svo seldur til danska stórliðsins AGF sem gerir hann að fyrsta atvinnumanni Fjölnis sem seldur er beint frá félaginu. Aron hefur nú þegar tekið þátt í 5 leikjum með aðalliði félagsins sem trónir langefst á toppi næstefstu deildar í Danmörku og er væntan- lega á leiðinni í úrvalsdeildina þar á ný. Bjarki Pétursson íþrótta- maður Borgarfjarðar Bjarki Pétursson golfari var kjörinn íþróttamaður Borgarfjarðar fyrir árið 2010 en kjörinu var lýst á íþrótta- hátíð UMSB sem haldin var 19. febrú- ar sl. Bjarki vann mörg afrek á árinu og er kominn í hóp bestu kylfinga landsins, þrátt fyrir ungan aldur. Í öðru sæti varð Jón Ingi Sigurðsson sundmaður, í þriðja sæti Tinna Kristín Finnbogadóttir skákkona, fjórða var Sigrún Rós Helgadóttir knapi og í fimmta sæti Björk Lárus- dóttir fótboltakona. Auk þeirra voru tilnefnd Arnór Tumi Finnsson, Birgir Þór Sverrisson, Fanney Guðjónsdóttir, Guðrún Ingadóttir, Gunnar Halldórs- son, Hafþór Ingi Gunnarsson, Harpa Bjarnadóttir, Ísfold Grétarsdóttir, Orri Jónsson, Sigmar Aron Ómars- son og Sölvi Gylfason. Jón Ingi íþróttamaður Borgarbyggðar Jón Ingi Sigurðsson, sundmaður úr Skallagrími, var kjörinn íþróttamað- ur Borgarbyggðar 2010 við hátíð- lega athöfn í Hjálmakletti 19. febrú- ar sl. Tómstundanefnd Borgarbyggð- ar kýs árlega íþróttamann ársins úr tilnefningum frá ungmenna- og íþróttafélögum í sveitarfélaginu. Kjörið fór nú fram í tuttugasta sinn og voru tíu íþróttamenn tilnefndir að þessu sinni. Í tilnefningu frá sunddeild Skallagríms segir um Jón Inga að hann sé ákaflega duglegur og efnilegur sundmaður. Jón Ingi bætti 37 Borgarfjarðarmet á árinu í pilta- og karlaflokki. Hann á nú 60 Borgarfjarðarmet.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.