Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands KÖRFUBOLTI: Ungmennafélögin hafa gert það gott í körfuboltanum í vetur. Keflavík bikar- meistari kvenna – Snæfell og Hamar deildar- meistarar Kvennalið Keflvíkinga varð bikarmeistari þegar liðið lagði KR, 72-62, í úrslitaleik sem fram fór í Laugardalshöllinni 19. febrúar sl. Staðan í hálf- leik var 33-30 fyrir KR en í síðari hálfleik sýndu stelpurnar úr Keflavík mátt sinn og megin og tryggðu sér tíu stiga sigur, 72-62. Snæfell í Stykkishólmi og Hamar í Hveragerði urðu deildarmeistarar í körfu- knattleik á dögunum. Kvennalið Hamars vann þennan titil í fyrsta sinn í sögu félagsins. Stúlkurn- ar í Hamri léku sérlega vel fram af vetri og eru vel að þessum titli komnar. Karlalið Snæfells bætti enn einni rósinni í hnappagatið þegar liðið tryggði sér deildarmeist- aratitilinn eftir sigur á Hamri á heimavelli. Árangur Snæfellinga hefur verið einstakur hin síðustu ár. Keflavík, bikarmeistarar kvenna 2011. Snæfell, deildarmeistarar karla 2011. Hamar, deildarmeistarar kvenna 2011.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.