Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 13
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 13 Svo er stefnan sett á mót þeirra yngri í körfuboltanum en ekkert slíkt hefur verið í gangi. Það hefur verið sérlega gaman og upplífgandi að sjá starfsemina lifna við. Þessi umsnúningur gefur manni kraft til að halda áfram. Árangurinn lætur ekki á sér standa sem segir manni að við erum að gera rétta hluti,“ sagði Elín Rán í viðtali við Skinfaxa. Elín Rán segir ennfremur engum blöðum um það að fletta að hún finni fyrir miklum meðbyr. „Meðbyrinn kom greinilega á sam- bandsþinginu þar sem umræður voru mjög góðar. Lottóreglurnar hjá okkur voru endurskoðaðar og samþykktar. Þá voru settar nýjar reglur um afrekssjóðinn og reglur um val á íþróttamanni UÍA. Á þinginu voru 25 tillögur samþykktar og ég held að þinggerðin sé um 20 blað- síður,“ sagði Elín Rán. Elín Rán sagði að aðildarfélögin væru orðin 35 en nýtt félag var tekið inn á þinginu á dögunum. Hún sagði að þeim hefði farið fjölgandi á síðustu árum og hún veit um stofnun nýs félags sem er í vinnslu sem kæmi þá inn á næsta þingi. – Sérðu fyrir þér á næstu árum að Austfirðingar eigi lið í efstu deildum boltaíþrótta? „Að mínu mati gæti það alveg gerst. Það er unnið mjög gott starf í mörgum aðildarfélögum. Fjarðabyggð var komin ansi langt í knattspyrnunni og þeir stefna ótrauðir upp á við. Stefnan hjá Hetti í körfuboltanum hefur lengi verið að kom- ast upp í úrvalsdeild en það tókst ekki að þessu sinni. Það gengur vonandi eftir á næsta ári. Ef starfið heldur áfram að vaxa og dafna og hlúð verður að starfi yngri flokkanna er ég ekki í nokkrum vafa um að það muni skila okkur upp í efstu deildir. Hér hefur ekki verið mikil hefð fyrir hand- boltanum en handboltadeildin hjá Hetti er að reyna að klóra sig áfram. Um síðustu áramót hóf hópur æfingar í handbolta og það er vonandi að uppbyggingin haldi áfram. Norðfirðingar hafa átt topplið í blakinu um árabil, en þar er hefðin orðin mjög sterk, og hafa haldið sér stöðugt áfram í hópi þeirra bestu. Ef tekst að ná upp hefð í ákveðinni grein fylgir árangur- inn með. Ég er bara bjartsýn í þessum efnum,“ sagði Elín Rán. UÍA er framkvæmdaaðilinn að 14. Unglingalandsmóti UMFÍ í sumar en það verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Undirbún- ingur stendur yfir af fullum krafti en þessi mót hafa slegið rækilega í gegn. Elín Rán var innt eftir því hvort ekki ríkti mikil eftirvænting vegna mótsins í sumar. „Það er mikil tilhlökkun vegna mótsins í stjórninni og aðildarfélögunum. Ég er handviss um að það verður metþátttaka af hálfu UÍA í Unglingalandsmótinu í sum- ar og er þess fullviss að vel verði staðið að mótinu. Mikill fjöldi fólks er kominn til okkar til að skipuleggja hlutina og vinna með okkur. Greinastjórar eru komnir á fullt í undirbúningi þannig að vinnan er komin af stað á öllum vígstöðvum í þeim þáttum sem lúta að mótinu. Öll aðstaða er til fyrirmyndar en það eina sem vantar upp á núna er mótokrossbrautin og hún er í bígerð.“ – Búist þið við miklum fjölda kepp- enda og gesta á mótið í sumar? „Í áætlunum okkar gerum við ráð fyrir tólf hundruð keppendum eða nokkru færri en voru á síðasta móti í Borgarnesi. Það gætu allt eins orðið fleiri keppendur en margar fjölskyldur eru með þetta mót orðið fast í skipulaginu hjá sér. Krakkarnir gera orðið kröfur um að mæta á mótið, alveg sama hvar þau búa á landinu. Unglingalandsmótin eru í dag partur af útilegu fjölskyldunnar,“ sagði Elín Rán. – Ert þú búin að vera lengi í ung- mennafélagshreyfingunni? „Já, ég er búin að lifa og hrærast í henni lengi. Ég byrjaði í henni sem kepp- andi ung að árum innan UÍA. Faðir minn var formaður UÍA í nokkur ár og ýtti það sjálfsögðu undir áhugann. Þegar ég var unglingur var ég farin að starfa í frjáls- íþróttaráðinu og þá farin að þjálfa. Síðan kom smápása þegar ég fór burt í skóla en þegar ég kom aftur á svæðið þá fór ég á fullt í starfinu á nýjan leik.“ – Sýnist þér ekki að ungmennafélags- hreyfingin eigi bjarta framtíð? „Jú, ekki nokkur spurning. Það er afskap- lega gefandi að starfa innan hennar og hún er stór hluti af menningu okkar. Ég get ekki séð annað en að hreyfingin muni blómstra um ókomna framtíð. Það eru tækifæri í öllum hornum og ef ríki og sveitarfélög halda áfram að styðja við bakið á hreyfingunni þurfum við engu að kvíða,“ sagði Elín Rán Björnsdóttir, for- maður Ungmenna- og Íþróttasambands Austurlands, í samtalinu við Skinfaxa. Austfirsk ungmenni ganga inn á leik- vanginn á Unglinga- landsmótinu í Borg- arnesi s.l. sumar.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.