Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Starfsemin innan Ungmenna- og íþrótta- sambands Austurlands hefur sjaldan verið í eins miklum blóma og nú. Starfið er þrótt- mikið á öllum sviðum og fram undan er Unglingalandsmótið sem haldið verður á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina í sumar. Það má því segja með sanni að héraðssambandið hafi í nógu að snúast og verkefnin verði ærin á næstu mánuðum. „Laugardaginn 28. júní 1941 var haldinn fundur að Eiðum og þar rædd og ákveðin stofnun ungmennasam- bands fyrir Austurland. Undirbúning að fundinum hafði annast nefnd, kosin af sambandi Eiðamanna. Nefndina skipuðu þrír menn, skólastjóri og kennarar Eiðaskóla, þeir Þórarinn Þórarinsson, Þóroddur Guðmunds- son og Þórarinn Sveinsson. Á fundi þessum voru mættir fulltrúar frá sex félögum, auk fundarboðenda og Ingólfs Kristjánssonar tollvarðar, en hann mætti fyrir hönd Íþróttaráðs Austurlands. Stofnað var Ungmenna- samband Austurlands – U.M.S.A. – og samin lög fyrir það. Flestir fundar- manna skrifuðu þó undir lög sam- bandsins með fyrirvara, þar sem þeir töldu sig ekki hafa nægilega traust umboð frá viðkomandi félögum. Sambandssvæðið var Múlasýslur báðar. Sambandinu var valið lög- heimili að Eiðum. Kosin var fimm manna stjórn og jafnmargir til vara. Skólastjóri Eiðaskóla, Þórarinn Þórar- insson, sagði við þetta tækifæri, að allar dyr Eiðaskóla skyldu standa opn- ar fyrir starfsemi ungmennasam- bands á Austurlandi. Var þeim orðum vel fagnað og þótti af vinsemd mælt.“ Svo hljóðar lýsing Skúla Þorsteinssonar á stofnfundi héraðssambands á Austur- landi sem hann ritaði í Snæfell á fimm ára afmæli UÍA. Á sambandsþingi árið eftir var nafni sambandsins breytt í Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands og gekk sambandið til liðs við bæði UMFÍ og ÍSÍ, fyrst héraðssambanda. Alla tíð síðan hefur UÍA skapað kjölfest- una í austfirsku æskulýðs- og íþróttastarfi ásamt ungmenna- og íþróttafélögunum og staðið fyrir ótal samkomum, mótum, námskeiðum en síðast en ekki síst verið ötull talsmaður austfirskrar æsku á landsvísu. Elín Rán Björnsdóttir, formaður UÍA, segir að starfsemin innan UÍA í dag snúist að mestu leyti um að hvetja aðildarfélög til að starfa saman að því að bæta íþrótta- starfsemina á Austurlandi, vinna saman að mótahaldi, keppa saman undir merkj- um UÍA út á við og vinna saman að því sem snýr að félagsmálafræðslu og teng- ingu við UMFÍ og ÍSÍ. – Nú virðist sem mikill kraftur sé í starfi ykkar hvert sem litið er. Var ákveðið að blása til sóknar? „Já, það var ákveðið árið 2008 að gera það. Okkur fannst hafa verið svolítil lægð í starfseminni. Við vorum því farin að sjá verulega þörf fyrir að héraðssambandið yrði sterkt og aðildarfélögin fundu að eitt- hvað þurfti að gerast. Ný stjórn kom til starfa 2008, afskaplega virk, og um leið komu inn einstaklingar sem voru tilbúnir að leiða starfið. Þá stóð ekki á því að aðildarfélögin væru tilbúin að vera með. Við settum í gírinn og unnum markvisst að því að færa héraðssambandið til nútímans. Mikill tími var búinn að fara í stefnumótun og vinnu í því hvernig við vildum sjá héraðssambandið. Um leið og stefnan lá fyrir var miklu auðveldara að vinna að henni. Árangurinn af þessu starfi hefur hægt og bítandi verið að koma í ljós. Greinaráðin eru mun virkari en áður, þeim fjölgar og fólk er farið að koma til okkar í mjög mörgum tilfellum og biðja um að stofnuð verði greinaráð í fleiri greinum til að standa saman að móta- haldi. Við finnum fyrir mun meiri vilja en áður til að hrinda af stað fleiri hlutum. Núna nýlega var stofnað körfuboltaráð, sem aldrei hefur verið til innan UÍA, og einnig er komin í gang keppni um Bol- holtsbikarinn í utandeildarkörfubolta. AFSKAPLEGA GEFANDI AÐ STARFA INNAN HREYFINGARINNAR Elín Rán Björnsdóttir, formaður Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands: Elín Rán Björnsdótt- ir, formaður UÍA.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.