Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 21
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 21 – Öll aðstaða er til fyrirmyndar hjá ykkur. Það hlýtur að ýta undir að starfið verði enn öflugra? „Já, það hefur gert það og miðað við fólksfjölda höfum við ágæta aðstöðu. Á Hvammstanga eru gott íþróttahús, sund- laug og reiðhöll. Í sumar á að sá í knatt- spyrnuvöllinn hjá okkur og þá verður aðstaðan orðin fín á þeim vettvangi. Við höfum átt ágætis samstarf við sveitar- félagið, erum með samning upp á veru- legar fjárupphæðir sem við deilum algjör- lega út til aðildarfélaga í samræmi við magnið í starfinu hjá hverju og einu,“ sagði Guðmundur. Aðspurður hvort Ungmennasamband- ið verði í stakk búið til að halda Unglinga- landsmót á næstu árum sagði Guðmund- ur Haukur þá tæpast treysta sér til þess að því leyti til að þeir hafi ekki þá aðstöðu til frjálsra íþrótta sem til þarf. „Við sóttum um að fá að halda Lands- mót 50+ í sumar og fengum það. Það verður gaman að fá að takast á við það verkefni. Þegar ástandið í þjóðfélaginu skríður aðeins upp á við er aldrei að vita hvað við gerum hvað Unglingalandsmót áhrærir. Auðvitað er það draumurinn að geta tekið slíkt mót að sér. Okkur vantar til þess eitt stykki keppnisvöll í frjálsum íþróttum þar sem krafist er gerviefnis á hlaupabrautum. En auðvitað höfum við látið okkur dreyma um að taka þetta að okkur,“ sagði Guðmundur Haukur. – Starfið hjá ykkur virðist hafa verið gott en frá ykkur hefur komið keppnis- fólk í fremstu röð. „Það hefur verið ágætisstarf og þá alveg sérstaklega í Hrútafirðinum þaðan sem Helga Margrét og þær systur koma. Þær eru afreksmanneskjur á landsvísu og þó að lengra væri leitað. Það hafa komið hér upp ágætir íþróttamenn í fleiri grein- um. Meðal annars hafa stúlkur héðan ver- ið að leika með liðum eins og Keflavík og KR í kvennaflokkum í körfubolta þegar þær hafa þurft að sækja lengra nám í framhaldsskóla. Við höfum haft ágæta þjálfara á okkar snærum.“ – Hvernig sérðu þú framtíð ung- mennasambandsins? „Ég reikna með að við reynum að sigla svipaða línu og við höfum gert. Við reyn- um fyrst og fremst að einbeita okkur að starfinu með börnum og unglingum. Það er sú kynslóð sem tekur við og þegar kom- ið er heim eftir framhaldsskóla vonum við að þau taki við keflinu og haldi starf- inu áfram. Það verður gaman að fá að byrja á því að halda Landsmótið 50+ og síðan á næstu 5–10 árum að láta sig Fulltrúar nemendaráðs Grunnskóla Húnaþings vestra, þau Eygló Hrund Guðmundsdóttir, Iðunn Berta Bjarnadóttir og Guðrún Helga Magnús- dóttir, ásamt Sveini Benónýssyni, íþrótta-og tómstundafulltrúa, mættu til viðræðna við byggðaráð til að kynna helstu niðurstöður frá ungmennaráðstefnu sem haldin var í grunn- skólanum. Fulltrúarnir hittu sveitarstjórn og kynntu niðurstöður vinnu um ungmennalýðræði í þremur efstu bekkjum skólans. dreyma um að fá Unglingalandsmótið á svæðið.“ – Hver er framtíð ungmennafélags- hreyfingarinnar í þínum huga? „Ungmennafélagshreyfingin á erindi nú sem aldrei fyrr og mér finnst hún jafn- öflug ef ekki öflugri en hún var áður. Sami krafturinn og baráttuandinn er enn til staðar í störfum hennar hvert sem litið er. Hreyfingin hefur fært út kvíarnar á fjöl- mennari svæðum landsins eins og Stór- Reykjavíkursvæðinu. Mér finnst eðlilegt að UMFÍ haldi áfram að starfa sem sjálf- stæð heildarsamtök og viðhalda því góða starfi sem sambandið hefur gegnt í gegn- um tíðina,“ sagði Guðmundur Haukur Sigurðsson, formaður USVH. isnic Internet á Íslandi hf. Brugðið á leik í köðl- unum í íþróttahús- inu á Hvammstanga.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.