Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 32

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 32
32 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Ársþing UMSE fór fram í Þelamerkurskóla 5. mars sl. Þingið fór vel fram og umræður um þær tillögur sem fram voru lagðar voru með líflegra móti. Þingfull- trúar voru frá 10 af 12 aðildarfélögum og var um það rætt á þinginu að aðildarfélög- in yrðu að gera betur í þátttöku sinni en einungis voru 28 af 54 mögulegum full- trúum mættir. Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, sat ársþingið. Heitastar umræður urðu um Lottó- úthlutun sambandsins til aðildarfélaga en tillaga um reglugerðarbreytingu þess efnis lá fyrir þinginu. Var hún samþykkt með þeirri breytingu að hún yrði tekin til endur- skoðunar og yrði lögð fram á þingi á næsta ári. Þá var samþykkt að stofna þrjár nýjar nefndir innan UMSE og eru þær fræðslunefnd, almenningsíþróttanefnd og afreksíþróttanefnd. Nefndunum verð- ur falið það hlutverk að móta stefnu í þeim viðfangsefnum sem þær varða. Helga G. Guðjónsdóttir sæmdi Gest Hauksson, gjaldkera Umf. Smárans, starfs- merki UMFÍ. Haukur Valtýsson var sæmd- ur starfsmerki UMSE fyrir störf sín í þágu sambandsins. Kosið var til varaformanns, gjaldkera og þriggja í varastjórn UMSE. Kristín Her- mannsdóttir var endurkjörin varaformað- ur. Gjaldkeri sambandsins, Anna Kristín Árnadóttir, lét af störfum eftir fjögurra ára starf og í hennar stað var kjörinn Einar Úr hreyfingunni Ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar, UMSE: Þrjár nýjar deildir verða stofnaðar Hafliðason. Í varastjórn gáfu kost á sér til áframhaldandi setu Þorgerður Guð- mundsdóttir og Birkir Örn Stefánsson en Sigurður Bjarni Sigurðsson ekki. Þau Birkir og Þorgerður voru endurkjörin en í stað Sigurðar Bjarna tók Edda Kamilla Örnólfsdóttir sæti í varastjórn. Voru frá- farandi stjórnarmönnum þökkuð vel unnin störf í þágu sambandsins. Í kaffisamsæti á þinginu voru veittar viðurkenningar að venju. Kjörinn var Íþróttamaður ársins 2010 og kom sá titill í hlut Björgvins Björgvinssonar, skíða- manns frá Skíðafélagi Dalvíkur. Þá voru veittar um 35 viðurkenningar til íþrótta- manna sem höfðu unnið Íslands-, Lands- móts- eða bikarmeistaratitla, komist í úrvals- eða afrekshópa hjá sérsambönd- um eða sett Íslandsmet á árinu 2010. Félagsmálabikar UMSE kom í hlut Umf. Samherja en sitjandi stjórn UMSE úthlut- ar þeim bikar til þess félags sem talið er að hafi starfað hvað best í þágu félags- og íþróttamála á hverju ári. Þá var Þóri Áskelssyni veitt starfsmerki UMSE, fyrir vel unnin störf í þágu íþrótta á sambands- svæðinu. „Starfið hjá okkur gengur vel en er mest í frjálsum íþróttum. Við ræddum um það á þinginu að koma til móts við fleiri félaga með fræðslu og innra starfi og að því munum við vinna á næstunni,“ sagði Óskar Þór Vilhjálmsson, formaður Ungmennasambands Eyjafjarðar í sam- tali við Skinfaxa. Efti mynd: Óskar Þór Vilhjálmsson, formaður UMSE, í ræðustóli á ársþinginu. Neðri mynd: Björgvin Björgvinsson, íþróttamaður UMSE 2010. 94. ársþing USAH var hald- ið 5. mars sl. á Blönduósi. Góð mæting var á þingið frá félögum innan sam- bandsins. Á þinginu voru tekin fyrir hefðbundin aðal- fundarstörf; skýrsla stjórnar, reikningar sambandsins og samþykktar tillögur vegna næsta starfsárs. Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, sótti þingið. Mikil og góð starfsemi er innan félaga USAH. Íþróttamaður USAH 2010 var kjör- inn Stefán Valimer en hann stendur sig frábærlega í kúluvarpi í 15–16 ára flokki og er í þriðja sæti á afrekaskrá FRÍ í þeirri grein í sínum aldurflokki. Þórhalla Guðbjartsdóttir hætti í stjórn USAH og í hennar stað kom Bergþór Páls- Ársþing Ungmennasambands Austur Húnvetninga, USAH: Mikil og góð starfsemi innan USAH son inn, þannig að í stjórn USAH eru nú: Aðalbjörg Valdimarsdóttir formaður, Greta Björg Lárusdóttir varaformaður, Bergþór Pálsson gjaldkeri, Sigrún Líndal ritari og Guðrún Sigurjónsdóttir með- stjórnandi. „Þingið hjá okkur gekk vel en á því var meðal annars kosin nefnd til að annast undirbúning fyrir 100 ára afmælið sem verður 2012. Starfið innan Ungmenna- sambandsins gengur vel. Æfingar hafa verið innandyra í frjálsum íþróttum í vet- ur og 35 keppendur fóru á okkar vegum á mót á Akureyri. Krakkarnir hafa líka ver- ið dugleg við að sækja stóru mótin fyrir sunnan í vetur. Í sumar mun starfið að mestu leyti fara fram úti í félögunum,“ sagði Aðalbjörg Valdimarsdóttir, formað- ur Ungmennasambands Austur Húnvetn- inga, í samtali við Skinfaxa. Frá ársþingi Ung- mennasambands Austur Húnvetn- inga sem haldið var á Blönduósi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.