Skinfaxi - 01.02.2011, Page 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
KÖRFUBOLTI:
Ungmennafélögin hafa gert það
gott í körfuboltanum í vetur.
Keflavík bikar-
meistari kvenna
– Snæfell og
Hamar deildar-
meistarar
Kvennalið Keflvíkinga
varð bikarmeistari þegar
liðið lagði KR, 72-62, í
úrslitaleik sem fram fór í
Laugardalshöllinni 19.
febrúar sl. Staðan í hálf-
leik var 33-30 fyrir KR en í síðari hálfleik
sýndu stelpurnar úr Keflavík mátt sinn
og megin og tryggðu sér tíu stiga sigur,
72-62.
Snæfell í Stykkishólmi og Hamar í
Hveragerði urðu deildarmeistarar í körfu-
knattleik á dögunum.
Kvennalið Hamars vann
þennan titil í fyrsta sinn í
sögu félagsins. Stúlkurn-
ar í Hamri léku sérlega vel
fram af vetri og eru vel að
þessum titli komnar.
Karlalið Snæfells bætti
enn einni rósinni í
hnappagatið þegar liðið
tryggði sér deildarmeist-
aratitilinn eftir sigur á
Hamri á heimavelli.
Árangur Snæfellinga
hefur verið einstakur hin síðustu ár.
Keflavík, bikarmeistarar kvenna 2011.
Snæfell, deildarmeistarar karla 2011.
Hamar, deildarmeistarar kvenna 2011.