Skinfaxi - 01.02.2011, Síða 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Ég finn fyrir krafti meðal mótshaldara
Unglingalandsmótsins sem verður á
Fljótsdalshéraði í sumar og mótshaldarar
eru staðráðnir í að halda besta Unglinga-
landsmót sem haldið hefur verið“. Þetta
sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, á borgarafundi á Egilsstöð-
um þar sem mótið var kynnt 3. mars sl.
Á fundinum var meðal annars undirrit-
aður samningur milli sveitarfélagsins
Fljótsdalshéraðs, UMFÍ og UÍA um mótið.
Fljótsdalshérað leggur til aðstöðu og
ýmsa þjónustu en UÍA heldur mótið.
Áætlað er að um 3–400 sjálfboðaliðar
komi að mótinu um verslunarmanna-
helgina.
Á fundi undirbúningsnefndar mótsins
var gengið frá ráðningu verkefnisstjóra,
Heiðar Vigfúsdóttur, sem þegar hefur
hafið störf. Enn hafa keppnissvæði í
knattspyrnu og mótokrossi ekki verið
staðfest en þau mál eru í vinnslu.
Búist er við að um 8000–10.000 gestir
sæki mótið. Gert er ráð fyrir 1200–1700
keppendum en metþátttaka, 1700
Heiður Vigfúsdóttir hefur verið ráðin verk-
efnastjóri 14. Unglingalandsmóts UMFÍ
og hóf hún störf nú í mars. Heiður er
fædd í Reykjavík, bjó síðan í fjögur ár á
Neskaupstað en lauk mennta- og háskóla-
námi í Reykjavík. Síðan bjó hún á Spáni í
þrjú ár og var þar við skíðaþjálfun.
Heiður fór eftir það með eiginmanni til
Ástralíu í frekara nám og endaði að því
búnu aftur á Austurlandi.
Borgarafundur vegna Unglingalandsmóts á Egilsstöðum:
manns, var í Borgarnesi í fyrra. Móts-
haldarar óttast ekki að fjarlægð frá höfuð-
borgarsvæðinu dragi úr áhuga gesta.
Þvert á móti er mótið orðið fastur liður í
sumarferðum margra fjölskyldna og
starfi héraðssambanda. Margir hlakka til
að heimsækja Fljótsdalshérað í fyrsta
sinn. Nýjar keppnisgreinar hafa bæst við
en í ár verður í fyrsta sinn keppt í fimleik-
um.
Nýir samstarfsaðilar hafa verið kynntir
til sögunnar en þeir eru Eimskip og
Alcoa. Auglýst hefur verið eftir félaga-
samtökum sem áhuga hafa á veitinga-
sölu á mótinu en hún hefur oft reynst
þeim drjúg.
Frá borgarafundinum á Egilsstöðum, en við það
tækifæri var undirritaður samningur á milli sveitar-
félagsins Fljótsdalshéraðs, UMFÍ og UÍA um mótið.
Mótið orðið fastur liður í
sumarferðum hjá fjölskyldum
Spennandi
starf sem ég
hlakka til að
takast á við
Heiður Vigfúsdóttir,
verkefnastjóri Unglinga-
landsmótsins á Egilsstöðum:
Ungmennafélagsandinn
kemur að góðum notum
„Ég var og er mikil íþróttamanneskja og
æfði flestar íþróttagreinar á Húsavík og
keppti í þeim. Ég
man vel eftir Lands-
mótum og Ungl-
ingalandsmótum í
gegnum tíðina en
aðallega keppti ég
í frjálsum íþróttum
undir hatti HSÞ.
Ég þekki vel ungmennafélagsandann
sem kemur mér eflaust að góðum notum
í starfinu fyrir Unglingalandsmótið. Ég
starfaði um tíma hjá fyrirtæki í við-
burðastjórnun þannig að ég hef skipu-
lagt ferðir, stóra viðburði og fjölskyldu-
skemmtanir. Þessi reynsla á eftir að nýt-
ast mér í verkefnastjórastarfinu. Þetta
er mjög spennandi starf sem ég hlakka
til að takast á við. Ég er að fara að starfa
með skemmtilegu fólki sem verður líka
spennandi,“ sagði Heiður Vigfúsdóttir,
verkefnastjóri Unglingalandsmótsins á
Egilsstöðum í sumar, í spjalli við Skinfaxa.