Skinfaxi - 01.02.2011, Qupperneq 18
18 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Frjálsar:
Meistaramót Íslands 15–22 ára fór fram
helgina 29.–30 janúar sl. í Frjálsíþrótta-
höllinni og náðist frábær árangur í mörg-
um greinum. ÍR sigraði með yfirburðum,
fékk 491,3 stig eða 326,6 stigum fleira en
það félag sem lenti í öðru sæti sem var
HSK/Selfoss og í því þriðja varð UFA með
153,5 stig.
ÍR-ingar hlutu flest stig á Meistaramóti
Íslands 11–14 ára sem fram fór í Laugar-
dalshöll 26.–27. febrúar sl., með 500,5 stig.
Lið FH varð í öðru sæti, eftir jafna keppni
við ÍR, með 470 stig og lið HSK/Selfoss í 3.
sæti með 352 stig. Lið FH varð stigahæst
í fjórum aldursflokkum á mótinu af átta,
ÍR í tveimur en Skagfirðingar og HSK/Sel-
foss í sitthvorum aldurshópnum.
Góð þátttaka var í mótinu en alls hlutu
stig 18 lið, víða að af landinu. 337 kepp-
endur voru skráðir til leiks en fyrir tveim-
ur árum tóku um 280 keppendur þátt í
þessu móti. Af þátttöku í mótinu má sjá
að frjálsar íþróttir njóta vaxandi vinsælda
víða um land. Fjölmennustu greinarnar
voru 60 m hlaup 13 ára stúlkna þar sem
52 keppendur mættu til leiks og 12 ára
stúlkna og 13 ára pilta en 42 keppendur
mættu til leiks í þessum greinum.
Fimm stúlkur frá Ungmennasamband-
inu Úlfljóti kepptu á mótinu og stóðu sig
með prýði. Greinilega eru þarna á ferð
upprennandi stúlkur í frjálsum íþróttum.
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir er þjálfari stúlkn-
anna. Hún sagði þær mjög áhugasamar
og það væri alltaf spennandi að koma til
Reykjavíkur og keppa við toppaðstæður.
Aðstæður góðar eystra
„Það er alltaf ákveðinn hópur sem æfir
frjálsar innan USÚ og aðstæður eystra eru
Meistaramót Íslands
15–22 ára:
Góður
árangur í
mörgum
greinum
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, Ármanni,
bætti sig í þeim tveim greinum sem hún
keppti í og setti Íslandsmet í sínum aldurs-
flokki (20–22 ára) í kúluvarpi. Helga
Margrét kastaði kúlunni 14,99 metra og
hljóp 60 m grindahlaup á 8,69 sekúndum
sem lofar góðu fyrir framhaldið. Arna
Stefanía Guðmundsdóttir, ÍR, varð fimm-
faldur Íslandsmeistari í sínum aldurs-
flokki (16–17 ára) og bætti Íslandsmetið í
200 m hlaupi í aldursflokknum þegar hún
hljóp á 24,92 sekúndum. Hún sigraði enn-
fremur í 60 m grindahlaupi, langstökki,
200 m hlaupi og var í sigursveit meyja í
4x200 m boðhlaupi. Sveinbjörg Zophon-
íasdóttir, USÚ, hreppti þrenn gull og tvenn
silfurverðlaun en hún sigraði í langstökki,
kúluvarpi og hástökki og varð í öðru sæti
í 60 m grindahlaupi og 200 m hlaupi í
sínum aldursflokki (18–19 ára). Stefanía
Valdimarsdóttir, Breiðabliki, varð einnig
þrefaldur Íslandsmeistari í sínum aldurs-
flokki (18–19 ára) og sigraði í 60 m hlaupi,
60 m grindahlaupi og 200 m hlaupi. Þá
varð Kolbeinn Höður Gunnarsson, UFA,
einnig þrefaldur Íslandsmeistari í sínum
aldursflokki (16–17 ára) en hann sigraði í
60 m hlaupi, 60 m grindahlaupi og 200 m
hlaupi. Bjarki Gíslason, UFA, setti Íslands-
met í stangarstökki í sínum aldursflokki
(20–22 ára) og stökk 4,83 metra en hann
hefur verið að bæta sig að undanförnu.
Helga Margrét
Þorsteinsdóttir setti
Íslandsmet í sínum
aldursflokki (20–22
ára) í kúluvarpi á MÍ
15–22 ára.
„Mjög stolt af
stelpunum á
mótinu“
– segir Jóhanna Íris Ingólfs-
dóttir, þjálfari USÚ.
mjög góðar en byggður var frjálsíþrótta-
völlur í tengslum við Unglingalandsmót-
ið á Hornafirði 2007. Við bíðum alltaf eftir
því að komast út á vorin til að æfa. Kepp-
endur frá okkur stóðu sig vel á mótinu og
miðað við að við höfum litla aðstöðu
innandyra voru stelpurnar að gera góða
hluti á meistaramótinu. Þær voru að
stökkva í gryfju í fyrsta sinn síðan í ágúst
í fyrrasumar. Ég var mjög stolt af þeim á
mótinu,“ sagði Jóhanna Íris Ingólfsdóttir,
frjálsíþróttaþjálfari hjá USÚ, í spjalli við
Skinfaxa.
Stefnum á öll mót í sumar
„Við eigum efnilegt frjálsíþróttafólk og
svo hafa þær góða fyrirmynd en frjáls-
íþróttakonan Sveinbjörg Zophoníasdótt-
ir, sem er í fremstu röð, er héðan frá
Hornafirði. Aðstæður hér eystra voru ekki
sérstakar þegar hún byrjaði að æfa en ef
viljinn er fyrir hendi er allt hægt. Ég hef
ofsalega gaman af því að vinna með
krökkunum. Þetta er gefandi starf en get-
ur stundum verið mjög krefjandi. Við
ætlum að stefna að því að fara á öll mót
í sumar sem hægt verður að komast á.
Foreldrar krakkanna eru mjög virkir og
áhugasamir sem hefur mikið að segja.
Þeir standa þétt við bakið á krökkunum
sínum,“ sagði Jóhanna Íris Ingólfsdóttir.
Frá vinstri: Áróra
Dröfn Ívarsdóttir,
Anna Soffía Ingólfs-
dóttir, Alrún Iren
Stevensdóttir, Sigrún
Salka Hermanns-
dóttir og Jóhanna
Íris Ingólfsdóttir,
þjálfari. Á myndina
vantar Elínu Ásu
Heiðarsdóttur.
USÚ með fimm keppendur á Meistaramóti Íslands 11–14 ára: