Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 25
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Námskeið í félagsmála-
fræðslu, undir yfirskrift-
inni Sýndu hvað í þér
býr, voru haldin í Klé
bergsskóla á Kjalarnesi
og í Versölum í Kópa-
vogi í febrúar sl. Í mars voru námskeið
haldin á Hólmavík, Egilsstöðum og
Neskaupstað. Námskeiðin voru ágætlega
sótt og nefna má að þátttakendur á nám-
skeiðinu á Kjalarnesi voru frá Ungmenna-
félagi Kjalnesinga og björgunarsveitinni
á svæðinu. Námskeiðið tókst í alla staði
mjög vel. Þátttakendurnir tóku virkan
þátt í því og stóðu sig með prýði.
Þátttakendur á
námskeiðinu í
Klébergsskóla.
Hlutverk námskeiðsins, Sýndu hvað
í þér býr, er að sjá þátttakendum fyrir
fræðslu í ræðumennsku og fundarsköp-
um. Ennfremur er farið í ýmsa þætti er
tengjast ræðumennsku, s.s. að taka til
máls, framkomu, ræðuflutning og radd-
beitingu, svo að eitthvað sé nefnt.
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi
UMFÍ, kennir á þessum námskeiðum.
Geta áhugasamir snúið sér til hans og
fengið frekari upplýsingar í þjónustu-
miðstöð UMFÍ eða sent tölvupóst á net-
fangið sigurdur@umfi.is.
Námskeiðið Verndum þau var haldið
í Framhaldsskóla Snæfellinga í Grundar-
firði 11. janúar sl. Ungmennafélag
Íslands, Héraðssamband Snæfellsness
og Hnappadalssýslu og mennta- og
menningarmálaráðuneytið stóðu að
námskeiðinu.
Frábær þátttaka var og mættu 50 full-
trúar frá grunnskólum, leikskólum, fél-
agasamtökum, íþróttahreyfingunni, FSN,
FSSF, sem og foreldrar. Námskeiðið var
í höndum Ólafar Ástu Farestveit.
Nokkur námskeið undir yfirskriftinni
Verndum þau hafa verið haldin í vetur.
Flest börn búa við öruggt og friðsælt
umhverfi heima, í skóla og í leik- og frí-
stundastarfi. Því miður á þetta ekki við
um öll börn; sum eiga undir högg að
sækja, eru beitt ofbeldi – líkamlegu, kyn-
ferðislegu eða andlegu – eða eru van-
rækt á einhvern hátt.
Það er mikilvægt fyrir alla þá sem
starfa með börnum og unglingum að
vera meðvitaðir um skyldur sínar og
ábyrgð og geta lesið í vísbendingar um
að vanræksla eða ofbeldi eigi sér stað
gegn börnum heima fyrir, í skóla eða
annars staðar og viti hvernig bregðast á
við ef slík mál skjóta upp kollinum.
Námskeiðið er byggt á efni bókarinnar
Verndum þau og það er ætlað þeim sem
koma að uppeldi barna og ungmenna.
Á námskeiðunum er farið yfir hvernig
bregðast eigi við vanrækslu og/eða of-
beldi gegn börnum og unglingum. Nám-
skeiðið var frítt og öllum opið.
Vel sótt námskeið í Grundarfirði
Frá námskeiðinu
Verndum þau sem
haldið var í
Grundarfirði.
Fjöldi verkefna
Innan vébanda Ungmennafélags Íslands er
haldið utan um fjölda verkefna á flestum
sviðum er spanna starfsemi ungmenna- og
íþróttahreyfingarinnar. Auk þess sem nefnt
hefur verið hér að framan má nefna Frjáls-
íþróttaskóla UMFÍ sem rekinn er á sumrin,
rekstur íþrótta- og tómstundabúða að Laug-
um í Sælingsdal, útgáfu Skinfaxa sem verið
hefur málgagn hreyfingarinnar og komið út
samfellt í yfir 100 ár, rekstur skrifstofu Evrópu
unga fólksins og heimasíðu UMFÍ, þar sem
er fjöldi upplýsinga, m.a. um styrktarsjóði
UMFÍ, en þeir eru Fræðslusjóður, Verkefna-
sjóður og Umhverfissjóður. Í þá sjóði geta öll
félög innan UMFÍ sótt um styrki. Eins og gef-
ur að skilja eru íþróttir og íþróttastarf stærsti
pósturinn innan vébanda ungmennafélags-
Námskeiðið VERNDUM ÞAU:
hreyfingarinnar. Þar rúmast þó ýmsir fleiri
málaflokkar eins og menning og listir, um-
hverfismál o.fl.
UMFÍ í stöðugri sókn
Þó að Ungmennafélag Íslands sé orðið yfir
100 ára gamalt er það síungt og hefur undan-
farinn áratug verið í stöðugri sókn. Undir-
stöður samtakanna hafa verið treystar, bæði
félagslega og fjárhagslega, m.a. með aukn-
um fjárframlögum frá hinu opinbera. Starf
samtakanna hefur aldrei verið fjölbreyttara.
Hreyfingin hefur átt mikið og gott samstarf
við hið opinbera í ýmsum málaflokkum er
tengjast forvörnum og íþrótta- og æskulýðs-
starfi í landinu. Einnig hefur samstarf við
sveitarfélög verið gott, til að mynda þar sem
Unglingalandsmót og Landsmót hafa verið
haldin. Mótahaldinu hefur á mörgum stöðum
fylgt öflug uppbygging íþróttamannvirkja.
Á tímum þegar kreppir að í þjóðfélaginu
er mikilvægt að staðið sé þétt við bakið á
allri starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga í
landinu. UMFÍ gegnir þar mikilvægu hlutverki.
UMFÍ hefur þurft að taka á sig lækkun fram-
laga frá hinu opinbera eins og flestar stofn-
anir í landinu. Því hefur verið mætt með
hagræðingu og sparnaði í rekstri samtak-
anna sem skilað hefur góðum árangri og
þannig tryggt að þjónusta og stuðningur
við sambandsaðila og aðildarfélög haldist.
Ungmennafélag Íslands er hornsteinn sem
ávallt hefur verið til staðar fyrir íþrótta- og
ungmennafélögin í landinu. Um hann verð-
um við öll að standa vörð og tryggja að svo
verði áfram um ókomin ár.
Námskeið í félagsmálafræðslu:
Sýndu hvað í þér býr