SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 5

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 5
22. nóvember 2009 5 Markmiðið með EDDU-öndveg- issetri er að leggja áherslu á gagn- rýnar samtímarannsóknir. Irma Er- lingsdóttir, stjórnandi EDDU, sagði á málþingi sem setrið stóð fyrir á laugardag fyrir viku, að hug- myndafræði þess snerist um að skapa „vísi að því sem Jacques Derrida nefndi „skilyrðislausan vettvang“, háskóla þar sem á sér stað þverfagleg greining og um- sagnir um hvaðeina sem gerist í samfélaginu og vísindum“. Irma sagði að eitt helsta mark- miðið til að byrja með yrði að fjalla um áhrif hinnar alþjóðlegu fjár- málakreppu og bankahrunsins á Íslandi á menningu og fé- lagskerfið. Annað svið tæki til mis- mununar og ójöfnuðar, hvort sem það ætti við um kyn, aldur, stétt, eða þjóðerni, og þau skilyrði, sem efnahags- og stjórnmálakreppur sköpuðu fyrir hugmyndir um póli- tískar umbætur. Í þriðja lagi nefndi hún orðræðu um öryggismál og „uppbyggingu“ eftir áföll eða stríð. „Háskólinn ætti að vera höfuð- vígi gagnrýnnar túlkunar og and- spyrnu gegn ofurvaldi ríkjandi hug- mynda,“ sagði Irma. „Hann ætti að gagnrýna og vinna gegn kredd- um og óréttlátu forræði og yfirráð- um. Slíkur háskóli væri mótvægi við samfélagsleg valdsvið: ríkis- valdið, flokkapólitík, viðskipta- valdið, hugmyndafræði, menn- ingu, fjölmiðla og trú. Háskólasamfélagið gegndi því miður ekki slíku hlutverki fyrir bankahrunið. Stundum þjónaði það beinlínis markmiðum útrás- arinnar og þeim gildum sem komu þjóðinni á kaldan klaka og í faðm Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“ Hún sagði að markmiðið með gagnrýnum samtímarannsóknum væri ekki aðeins að afla þekk- ingar heldur einnig að hafa áhrif á samfélag og stjórnvöld: „Háskóli má aldrei vera þægur.“ „Háskóli má aldrei vera þægur“ Háskólasamfélagið þjónaði stundum hag útrásarinnar. Morgunblaðið/Kristinn HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ BERÐU SAMAN VERÐ OG ÞJÓNUSTU NÆST ÞEGAR ÞÚ FLÝGUR HVERS VEGNA VELUR ÞÚ ICELANDAIR? • Í flugvélum Icelandair er meira bil á milli sæta og gott rými fyrir alla farþega. • Hver farþegi hefur sinn eigin skjá á sætisbakinu fyrir framan sig. • Rafmagnsinnstungur eru í hverju sæti á Economy Comfort og Saga Class til hleðslu á tækjum. • Aukið athafnarými og betri stuðningur við líkamann gera flugferð með Icelandair ánægjulegri. Kærulaust fólk „Þau voru kærulaust fólk … möskuðu hluti og lifandi verur og drógu sig svo í hlé til pen- inga sinna eða hins feiknalega kæruleysis síns, eða hvers þess annars sem hélt þeim saman, og létu annað fólk um að hreinsa upp eftir sig óreiðuna sem þau höfðu vald- ið …“ Valur notaði lýsingu á auðmönnum liðinnar aldar úr Hinum mikla Gatsby eftir F. Scott Fitzgerald til að lýsa ástandinu á Ís- landi í byrjun þessarar aldar. „Reyndar hafa einstaklingarnir, sem í hlut eiga, ekki axlað neina beina ábyrgð á hruninu eða sýnt mikla iðrun sem hluta af bataferli sam- félagsins,“ segir hann. „En brottför þeirra sýnir að það var orðinn ógerningur fyrir þá pólitískt að vera áfram.“ Að auki hafi verið skipaður sér- stakur saksóknari með Evu Joly sér til fulltingis og sérstök rannsóknarnefnd á vegum Alþingis. Rannsóknarnefnd fyrir luktum dyrum Henni megi líkja við sannleiksnefndir, en hér fari starfsemi rannsóknarnefndarinnar þó ekki fram fyrir opnum tjöldum. Hvorki hafi verið haldnir opnir fundir, yfirheyrslur né vitna- leiðslur á vegum hennar. Vissulega sé ákveðin spenna milli þess að leita „sannleikans“ og ná fram réttlæti með því að fara dómstólaleiðina. Gerendur vilja ekki gangast við ábyrgð af ótta við að verða ákærðir nema þá að fá sakaruppgjöf eins og gert var í Suður-Afríku til að takast á við arfleifð aðskilnaðarstefnunnar. „En skorturinn á samskiptum við almenning vekur efasemdir um það hvort skýrsla, sem átti að koma út í nóvember en hefur verið frestað fram í febrúar 2010, muni þjóna hreins- unartilgangi sínum,“ segir Valur. „Gagnsemi slíks verkefnis – þörfin á skýringum eftir sam- eiginlegt áfall – þarf að vera brýn og sú tilfinning má ekki vakna að verið sé að draga málið á lang- inn.“ Hann segir að nú virðist allir vera að bíða eftir skýrslunni og stjórnmálamenn haldi fram að þeir geti hvorki axlað né hafnað ábyrgð vegna þess að hún sé ókomin. Sömuleiðis bíði almenn- ingur eftir að sök og sekt verði útdeilt. „Þessi endalausa bið eftir Godot vekur spurn- inguna hvort ein opinberlega viðurkennd útgáfa af sannleikanum muni ekki skapa falskt and- varaleysi; gefa til kynna málalyktir þar sem eng- ar málalyktir geta orðið.“ Það þurfi mun fleiri aðilar að koma að því uppgjöri. Valur segir að einu gildi hins vegar um það hver niðurstaðan verði. Nýtt viðhorf til sjálfs- myndar þjóðar muni fá opinberan stimpil: „Ís- lendingar hafa í sögunni sett sig í hlutverk fórn- arlamba utanaðkomandi afskipta og lítilmagnans – og stundum samsamað sig mál- stað „þriðja heims ríkja“ gegn nýlendustefnu – og nægir þar að nefna þorskastríðin við Breta,“ segir hann. Viðbrögðin við hruninu hafi ekki verið án slíkra vísana. Gott dæmi þess sé hin „óspillta“ „In Defence“-herferð gegn ákvörðun Breta um að nota hryðjuverkalöggjöf gegn Ís- landi og Icesave-málið. „Það sem hefur gefið orðræðu um and-nýlendustefnu byr undir báða vængi var vitaskuld að Bretum og Hollendingum tókst að beita áhrifum sínum innan Evrópusam- bandsins og í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að knýja Íslendinga til samninga á eigin forsendum. Það er þó einn grundvallarmunur á: Almennt sé ekki litið á Íslendinga sem fórnarlömb á al- þjóðavettvangi. Og því hafi slík orðræða ekki dugað til að draga athyglina frá hinum nýja raunveruleika, sem er afsprengi hrunsins: sjálfs- myndinni af Íslendingum sem gerendum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.