SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Side 36

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Side 36
36 22. nóvember 2009 Þórey Björk Halldórsdóttir hefur unnið að hönnun í eitt ár undir merkinu Eight Of Hearts. „Ég hanna fylgi- hluti, svo sem töskur, slaufur og kraga til að lífga upp á flíkur, og yfirhafnir, en svo er ég að fara að hanna kjóla,“ segir Þórey sem útskrifaðist sem fatahönn- uður úr Listaháskóla Íslands árið 2006. Hún segir misjafnt hvaðan innblásturinn kemur. „Ætli ég láti ekki efnin ráða því, hvaða stefnu hönn- unin tekur,“ segir Þórey en hún vinnur mest með ull, krepefni, silkiefni og íslenska lopann. „Svo hef ég að- allega horfti til trúðslegra mynda en innblásturinn kemur líka frá Íslandi, náttúrunni, þjóðbúningnum og þessum gömlu fötum án þess að vera of þjóðleg.“ Hönnun Þóreyjar er til sölu hjá Pop Up-markaðnum en að auki er hægt að hafa samband við hana persónulega. Næsti Pop Up-markaður, að þessu sinni með jólaþema, verður haldinn 12.-13. desember. Staðsetn- ing hefur ekki verið ákveðin en þeir sem gerast aðdáendur Milliliðalausr- ar verzlunar á Facebook fá sendan póst þegar hún liggur fyrir. Efnin stýra útkomunni Þórey Björk Halldórsdóttir með hönnunargripi sína. Karl vildi gera kennsluefni fyrir venjulegar konur á öllum aldri en hann segir mikla eftirspurn hafa verið eftir því. Þ að er draumur hvers manns að skapa og miðla öðrum. Þetta er mín leið til að gefa eitthvað af mér sem kemur til með að verða til eftir minn dag,“ segir förð- unarfræðingurinn og tískuspekúlantinn Karl Berndsen. „Ég hef oft verið beðinn um að halda námskeið og fór að velta fyrir mér hvernig ég gæti miðlað sem flestum og nýtt tíma minn best,“ segir hann. „Ég held það sé mikil þörf fyrir þetta hjá konum yfirleitt – að geta setið heima í stofu yfir einni og hálfri klukkustund af efni, verið á námskeiði í sínum eig- in lazyboy og lært. Hugsunin með myndbandinu var ekki að bæta skrautfjöður í minn hatt heldur að gera kennsluefni fyrir venjulegar konur á öllum aldri. Það eru mínar einu áhyggjur, að fólk haldi að þetta sé sýndarmennska, en þetta er virkilegt kennsluefni, þetta er bara „Nýjasta tækni og vís- indi.““ Hræðsla í konum að prófa hlutina Spurður hvort ástæðan fyrir því að hann ætli að gefa út þetta kennslumyndband sé sú að hann telji íslenskt kvenfólk mála sig illa þvertekur hann fyrir það. „En konur eru oft hræddar við að prófa eitt- hvað nýtt. Í myndbandinu klippi ég myndirnar ekki niður í öreindir, heldur geta konurnar séð förðunina þróast á manneskjunni. Það er meira en að segja það fyrir förðunarmeistara að láta mynda- vélina fylgja sér við hvert fótmál gegnum förðunina en þarna gef ég konum tækifæri til að fylgjast með ferlinu frá A til Ö.“ Spurður hvað hann telji megi betur fara í förðun íslenskra kvenna nefnir Karl sjálfan farðann og augabrúnirnar. „„Less is more“ í mínum huga. Konurnar velja sér yfirleitt of dökkan farða og í staðinn fyrir að fylgja augabrúnunum, þá ná þær yfirleitt 3 metra á undan þeim. Þarna kenni ég konum að nota farðann rétt. Það þarf ekki mikið til að fá fullkomið andlit. Þetta fer allt eftir því hvernig viðhorf þær hafa til farðans. Það er mín upplifun að konurnar sem hafa séð myndbandið segist hafa vitað allt sem ég sagði en það skipti svo miklu máli hvernig ég set það fram. Þar af leiðandi fá þær öryggistilfinningu. Til dæmis er einn kafli um augnlínur þar sem ég sýni mis- munandi áferðir: Þurra, blauta, kremaða eða með penna. Ég mála alltaf sama augað og konur geta séð tvær útfærslur hlið við hlið og hversu mikill munur er á milli þeirra eftir því hvaða áferð er valin.“ Mikil eftirspurn eftir myndbandinu Karl segir mikla eftirspurn vera eftir kennslu- myndbandi í förðun. „Það kennsluefni sem hefur verið gefið út er venjulega tengt snyrtivörufyr- irtækjum og kostað af þeim og þá er verið að aug- lýsa einhverja vöru. Þetta myndband er ekki styrkt af neinu snyrtivörumerki og ég tala ekki um neinar sérstakar snyrtivörur í myndbandinu sjálfu. Með þessu vildi ég halda trúverðugleika svo konum fyndist þær ekki vera að horfa á auglýsingaskrum. Þetta hefur ekki verið gert í allri Evrópu og ég er þegar búinn að fá viðbrögð í Lettlandi þar sem myndbandið er framleitt, þar er því dreift líka og áhugi á því að þýða það strax yfir á rússnesku.“ Með myndbandinu fylgir 40 síðna bók þar sem Karl fjallar um sínar uppáhaldsvörur. „Ég tala um húðhreinsun, útskýri hvað „primer“ og „serum“ er og af hverju það er notað. Ég veit að þetta mun hafa áhrif, hvort sem það er á 15 ára stelpur sem eru að byrja að mála sig eða fimmtugar konur sem eru farnar að missa sína yngri fegurð og allt þar á milli.“ „Mín leið til að gefa eitthvað af mér“ Karl Berndsen ætlar að kenna konum að mála sig með Andliti – kennslumyndbandi í förðun sem kemur út á föstudaginn Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Tíska | Hönnun

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.