SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 41

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 41
22. nóvember 2009 41 Nú styttist tíminn til jóla og huga þarf að því hvað við ætlum að gera á þessum tíma. Ætlum við t.d. að þvo glugga og gard- ínur? Sumir hengja upp jóla- gardínur í eldhúsi. Síðan baka flestir eitthvað eða laga konfekt og föndra. Best er að taka fram dagatalið og skrifa inn á það hvað þið ætlið að gera og hve- nær, því tíminn líður svo hratt. Gefið ykkur tíma til að vera með börnunum eða fjölskyld- unni við jólaundirbúninginn, t.d. í föndri, við að laga jólasæl- gæti eða að rölta í bæinn og horfa á jólaljósin og allar skreyt- ingarnar. Það er mikil synd að tapa yndislegum tíma í stressi og æsing. Betra er að gera hreint og viðra út úr skápum þegar fer að vora og sól er hærra á lofti. Húsráð Margrétar Jólaundir- búningur Öngulsstaðasúpan 1 laukur 1 – 3 hvítlauksrif Matarolía 1 – 2 teskeiðar karrí 1 dós niðursoðnir tómatar (400 gr.) 4 dl fisksoð (vatn og teningar) 1 dós niðursoðnar ferskjur 2 ½ dl rjómi Ferskjusafi úr dósinni Laukur og hvítlaukur saxaður og léttsteiktur með karríi. Niðursoðnir tómatar brytjaðir og settir saman við ásamt fisksoðinu. Látið krauma í 5 til 10 mínútur. Skerið ferskjurnar í bita og setjið út í súpuna ásamt rjóma. Bragðbætið með örlitlum ferskjusafa. Uppskriftin er ætluð fjórum. Rauðlauksmarmelaði 4 meðalstórir rauðlaukar ½ krukka af hindberjasultu ½ krukka af bláberjasultu 2 msk púrtvín Vanilluduft Rauðlaukur mýktur í smjöri og svo öllu hrært saman. Hrefna býður upp á þetta marmelaði á jólahlaðborði sínu í Öngulsstöðum og segir það sérlega gott með lifrarpaté. Heimatilbúið rauðlauksmarmelaði sem ku afar gott með lifrarpaté. kona og við settum matseðilinn saman og höfðum gaman. Mörgum þykir það kannski skrýtið en matar og matargerð er mitt helsta áhugamál og áður en ég fer að sofa á kvöldin les ég og stúdera upp- skriftir!“ Hrefna er ekki með kokka í vinnu heldur eldar fjölskyldan allt sjálf. „Við erum með fastan matseðil fyrir vikuna; sami matur alla mánudaga, ákveðinn réttur alla þriðjudag og svo framvegis, sem hljómar ekkert sérlega spennandi varðandi starfsfólkið – helst vildum við auðvitað hafa fjölbreytnina sem mesta – en hér eru alltaf nýir gestir og mestu skiptir að þeir séu ánægðir. Svona skipu- lag einfaldar líka vinnuna fyrir okkur.“ Hrefna segist verða vör við að fólk hugsi meira um hollustu matarins en áð- ur; að hráefni sem boðið upp á sé gott, forvitnist um uppruna þess og virðist spenntari fyrir tengslum við náttúruna en áður að þessu leyti. „Ég get sagt með góðri samvisku að maturinn hér hjá okkur er í hollari kant- inum. Við eldum ekki úr mikilli fitu, not- um ekki majones og engin krydd með aukaefnum. Það er helst að karlmenn sem koma hingað á fundi kvarti undan því að það sé óþarfi að bjóða upp á svona rosalega hollan mat í sveitinni! Þeir vilji fá sitt feita lambakjöt! En líklega er það nú meira í gríni sagt en alvöru.“ Talandi um lambakjöt segir Hrefna að það sé alltaf vinsælast og þegar hópar komi til hennar í mat sé nær undantekn- ingarlaust beðið um lamb. Fegurðin mikilvæg Hrefna er mikil matarkona eins og áður kom fram en áhuginn breyttist fyrir nokkrum árum þegar hún fór að hugsa um það sjálf að borða hollari mat en áður. „Það má segja að áhuginn hafi aukist að vissu leyti og þá fór ég að velta meira fyr- ir mér innihaldi réttanna; hráefni og gæðum.“ Hrefna segir það eitt áhugamálanna að hafa fallegt og snyrtilegt í kringum sig og segir afar mikilvægt að bera matinn fal- lega fram. „Umgjörðin skiptir gríðarlega miklu máli og maður getur stjórnað því sjálfur að töluverðu leyti hvernig and- rúmsloftið á staðnum er. Því hef ég kynnst bæði á jólahlaðborðum og öðrum veislum hér. Það, hvernig tekið er á móti fólki og hvernig umhverfið er skreytt, skiptir miklu máli.“ Ferskjusjúpa Hrefnu sem sló í gegn í sumar, ekki síst á meðal útlendinga. þegar alvaran tók við, reksturinn á Öng- ulsstöðum, var hún tilbúin í slaginn. „Síðan ég byrjaði hér langar mig sífellt að gera eitthvað nýtt og meira. Prófa mig áfram, sérstaklega vegna þess hve góð viðbrögð ég fæ frá gestunum. Sjálfs- traustið eykst við það.“ Hún hefur nú rekið staðinn í fjögur ár. Rétt er að taka fram að ekki er um hefð- bundinn veitingastað að ræða; fólk kem- ur ekki inn af veginum og kaupir sér mat, en næturgestum standa máltíðir til boða, bæði kvölds og morgna. Hrefna tekur líka oft á móti hópum sem panta sér- staklega. Les um mat fyrir svefninn! Eigendur Öngulsstaða ráku sjálfir ferða- þjónustuna í ellefu ár áður en Hrefna kom til sögunnar, en hún hefur nú séð um staðinn í fjögur ár. Hún segir að mikil vinna hafi verið lögð í að þróa matseðil og því engin ástæða til þess að breyta hon- um í snatri en það hafi þó gerst smám saman að einhverju leyti. „Svo fórum við að vera með jólahlaðborð og ákváðum að hafa það danskt til að vera ekki eins og allir aðrir. Ég bjó einu sinni eitt ár í Dan- mörku, hér hjá mér vinnur hálfdönsk Í takt við tímann kr. kg989 Lúxus G rísabóg steik úrbeinu ðGrillaðu r kjúkl ingur, 2l Peps i eða P epsi Ma x kr.998 ÓDÝRT FYRIR HEIMI LIÐ kr. pk.489 Yogi Te pakkar kr. stk.219 Gunnar s Sítró nu majóne s kr. pk.616 Merrild Kaffi 10 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.