SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Side 37

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Side 37
22. nóvember 2009 37 Í myndbandinu leiðbein- ir Karl áhorfendum við förðun frá grunni, notk- un og umhirðu förð- unarpensla, sýnir mis- munandi augnfarðanir og skyggingar andlitsins og ýmsar listrænar út- færslur. Í myndbandinu er að finna mismunandi útfærslur förðunar á konum á aldrinum sautján ára til sextugs. Vinkonurnar Hafdís Heið- arsdóttir og Vilborg Aldís Ragnarsdóttir settu á fót hönnunarfyrirtækið Arca De- sign í haust. Þær hafa hannað ýmiss konar vörur úr plexígleri sem eru fyrirferðarmiklar á borði en fyrirferðarlitlar í geymslu. „Þetta byrjaði þannig að það var nýbúið að ferma hjá mér og allir diskar sem voru notaðir undir kökur tóku svo mikið pláss. Þannig að ég settist niður með Hafdísi og við ræddum um hvað það væri gaman að eiga kökudisk á standi sem hægt væri að taka saman,“ segir Vilborg um upphafið. Vinkonurnar létu ekki þar við sitja og gerðu það sem fæstir gera, þær framkvæmdu það sem þær töluðu um. „Við settumst niður og fór- um að teikna og enduðum svo með heila línu. Fyrst teiknuðum við kö- kudisk og svo kertastjaka og svo komu hinar hugmyndirnar í kjölfarið,“ segir Hafdís. Vörurnar hjá stelpunum eiga það sameiginlegt að vera eins konar púsluspil sem hægt er að setja saman og taka í sundur. Þannig tekur kökudiskurinn lítið pláss í eldhússkápnum þegar hann er ekki í notkun. „Það er búið að vera brjálað að gera hjá okkur og þetta hefur undið rosalega hratt upp á sig og verið lyginni líkast,“ segir Vilborg. Stelpurnar hafa fengið rífandi viðbrögð og hafa vart undan að fram- leiða allar þær pantanir sem streyma inn. Fólk sem hefur í hyggju að gefa vörur frá Arca Design í jólagjöf verður að panta tímanlega þar sem þær gefa sér tvær vikur í að afhenda vöruna. En hver var ástæðan fyrir því að þær völdu að vinna með plexígler? „Það voru nokkrar ástæður fyrir því. Okkur þótti það fallegt og með fal- legum glans. Eins er bæði auðvelt að meðhöndla það og þrífa,“ segir Hafdís. Áhugasamir geta skoðað vörurnar á arcadesign.is og eins eru þær með síðu á Facebook sem heitir Arca Design Iceland. „Svo verðum við með opið hús á Miðbraut 9, Seltjarnarnesi, frá kl. 13-17, laugardaginn 21. nóvember. Þar verða allar vörurnar til sýnis.“ signyg@mbl.is Kökudiskur sem raðað hefur verið saman. Fyrirferðarmikið á borði en fyrirferðarlítið í geymslu Sami kökudiskur tekinn sundur. Aðventustjaki kr. 3.680

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.