SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Síða 50

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Síða 50
50 22. nóvember 2009 B ókin heitir Mynd af Ragnari í Smára en gæti hafa heitið „Mynd af ólýsanlegum manni,““ segir Jón Karl. „Ragnar var ekki bara gríð- arlega afkastamikill á akri menningarinnar, heldur líka stórtækur atvinnurekandi, annar eigandi Smjörlíkisgerðarinnar Smára og Sápugerðarinnar Mána og átti í fleiri fyrirtækjum, þar á meðal brennisteins- vinnslu í Mývatnssveit. Drjúgur hluti af því sem Ragn- ar gerði var þó unninn bak við tjöldin, án þess að nafn hans kæmi beinlínis fram.“ Jón Karl nefnir sem dæmi að Ragnar hafi verið virkari við uppbyggingu bókafélagsins Máls og menn- ingar en menn hafi almennt gert sér grein fyrir. „Hann var á fjórða áratugnum eldheitur kommúnisti og stjórnarformaður Heimskringlu, sem var fyrirrennari Máls og menningar. Ég held að hann hafi átt umtals- verðan þátt í því hvað Mál og menning varð á skömm- um tíma fjölmennur bókaklúbbur. Þetta kemur fram þegar hann skrifar Bjarna Benediktssyni 15 árum síðar og býðst til að fræða forkólfana í Almenna bókafélag- inu um það hvernig þeim í Máli og menningu tókst svo vel upp við að safna áskrifendum. Bréfið leiðir enn- fremur vel í ljós að Ragnar vann ötullega að því að koma AB á legg.“ Þegar Jón Karl er spurður út í óvenjulegan tíma- ramma verksins, þá ákvörðun að segja ævisögu manns með því að beina sjónum að þremur dögum úr lífi hans, segist hann hafa hugsað bókina með hliðsjón af þeirri fagurfræði sem kennd er við „pars pro toto“, hluta fyrir heild. „Frekar en að skrifa tæmandi annál yfir allt sem Ragnar gerði, reyni ég að beina athyglinni að afmörkuðum viðfangsefnum og kafa dýpra ofan í þau. Til að mynda var Ragnar í nánum samskiptum við marga íslenska myndlistarmenn, svo sem Jóhannes Kjarval, Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason, Ásmund Sveinsson og Sigurjón Ólafsson, en sá kafli sem er helst helgaður myndlistarþættinum í lífi hans fjallar um samskipti Ragnars við Jón Stefánsson. Ég valdi Jón, hann bjó lengst af í Danmörku og átti í skemmtilegum bréfaskiptum við Ragnar. Kaflinn er um leið lýsandi fyrir afstöðu Ragnars til myndlistarinnar og framlag hans á þeim vettvangi, til að mynda með listaverka- kaupum, útgáfu á listaverkabókum og aðstoð við und- irbúning sýninga.“ Auk þess að styðja myndlistarmenn var Ragnar um fimmtíu ára skeið formaður Tónlistarfélagsins, sem stóð fyrir óperusýningum, flutti fræga tónlistarmenn til landsins og annaðist rekstur tónlistarskóla og hljómsveitar sem varð vísirinn að Sinfóníuhljómsveit Íslands. Mikilvirkastur var hann þó líklega sem for- leggjari bókaútgáfunnar Helgafells. „Ragnar gaf út hátt í þúsund bækur á sínum ferli. Það væri að æra óstöðugan að ætla að rekja allt það starf,“ segir Jón Karl. „Ég lýsi hinsvegar samskiptum hans við valda rithöfunda, meðal annars Elías Mar, Gunnar Gunnarsson, Kristmann Guðmundsson, Davíð Stefánsson og Halldór Laxness. Hver og einn þessara höfunda dregur fram ákveðna hlið á honum, auk þess sem ljósi er varpað á samskipti hans við þýðendur og prófarkalesara og hugkvæmni hans við að auglýsa og selja bækur.“ Samúraí með sverð á lofti Þær heimildir sem Jón Karl hafði aðgang að réðu vissulega nokkru um það hvernig saga Ragnars er sögð. Hann segir mestar og bestar heimildir hafa varð- veist frá fimmta og sjötta áratugnum, en það er jafn- framt sá tími þegar Ragnar er hvað virkastur í menn- ingarlífinu. „Dýrmætustu heimildirnar fékk ég frá Jóhannesi Nordal, bréf sem Ragnar skrifaði Ólöfu, eiginkonu Sig- urðar Nordals, milli 1951 og 1957 þegar þau voru búsett í Kaupmannahöfn. Það hafði áhrif á að ég ákvað að láta söguna gerast á þremur dögum í desembermánuði árið 1955. Þeir dagar marka líka sérstök tímamót á ferli Ragnars sem útgefanda.“ Við lestur á bókinni vekur athygli að Ragnar er oft æði dómharður um verk listamannanna vina sinna. „Einn af yngri höfundum Helgafells, Jóhannes Helgi, tók einhverju sinni svo til orða að Ragnar væri samúraí með sverð á lofti sem ýmist kvistaði listamenn niður eða slægi þá til riddara, en þá aðeins til þess að höggva af þeim hausinn síðar. Staðreyndin er hins vegar sú að við erum flest æði dómhörð um annað fólk og gjörðir þess, ekki síst þá sem við þekkjum best og þykir jafn- vel vænst um,“ segir Jón Karl. „Ég vonast til að bókin varpi ljósi á hve menn á borð við Ragnar, Halldór Lax- ness, Gunnar Gunnarsson, Jón Helgason prófessor og Bækur Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Einstakur í sinni röð Mynd af Ragnari í Smára nefnist ný bók Jóns Karls Helgasonar, rithöfundar og bókmenntafræðings, um iðnrekandann og menningarfrömuðinn sem kom út í vikunni. Bókin gerist á þremur dögum árið 1955 er Ragnar var á leið á Nóbelshátíðina í Stokkhólmi.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.