SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Side 17

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Side 17
hjartað í henni. „Verkið þarf helst að vera bæði fallegt og grimmt. Þær eru ómótstæðilegar systurnar, fegurðin og grimmdin. Það er ofboðsleg fegurð í jólaguðspjallinu. Það kveikir líka alltaf í manni að glíma við heilaga hluti,“ seg- ir hún. Gjarnan er talað um jólaguðspjallið sem merkilegustu sögu sem sögð hefur verið. Spurð hvort þau séu ekkert rög að takast á við efni af því tagi svara þau afdráttarlaust neitandi. „Alls ekki. Meðan við umgöngumst söguna af virðingu erum við í fullum rétti,“ segir Halldóra. Þau gera sér eigi að síður grein fyrir því að jóla- guðspjallið er eldfimt. „Sprengihættan er vissulega fyrir hendi en það er ekki ætlun okkar að ganga fram af fólki. Barbara og Úlfar eru ekki þannig. Ekki við heldur,“ segir Halldóra og bætir við að hún hafi engar áhyggjur af því að trúhneigðir sniðgangi sýninguna. „Ég hef meiri áhyggjur af því að þeir sem ekki trúa skili sér síður.“ Þau segjast bæði vera trúuð enda þótt það sé ekki endi- lega kveikjan að sýningunni. „Ef eitthvað er verður trúin sterkari með árunum,“ segir Bergur. Fyrsta sýning af tuttugu? Halldóra og Bergur eru gríðarlega ánægð með framlag Kristjönu Stefánsdóttur til sýningarinnar. „Það er ekki nóg með að hún syngi eins og engill, hún er líka frábær söngkennari og manneskja. Síðan kemur í ljós að hún hefur ótvíræða leiklistarhæfileika líka. Kristjana setur sterkan svip á sýninguna,“ segir Bergur. Sýningin hverfist um litla Jesú og Halldóra og Bergur viðurkenna að sárt hafi verið að skera stóra Jesú niður við trog. „Þetta gæti hæglega verið fyrsta sýningin af tuttugu um Jesú. Af nægu er að taka.“ Annars árétta þau að trúðboð sé seigfljótandi ferli. „Það er mikilvægt að láta ána líða og breyta henni ekki í gos- flösku. Við erum bæði fastráðin hér við Borgarleikhúsið og þurfum að sinna ýmsum öðrum verkefnum,“ segir Halldóra og Bergur staðhæfir að engin heimsfrægð sé í sjónmáli. „En nú vitum við að Barbara og Úlfar eiga er- indi. Það er stór áfangi. Trúðboðið mun standa meðan við lifum.“ Morgunblaðið/Kristinn 22. nóvember 2009 17 Sú auma kerling kreppan hefur ekki riðið húsum í Borgarleikhúsinu, alltént hafa aldrei fleiri áskriftarkort verið seld en á þessu hausti, svo sem fram kom í Morgunblaðinu í vikunni. Halldóra og Bergur segja þetta frábær tíð- indi enda sé ólíkt skemmtilegra að leika fyrir fullum sal af fólki en hálfum. „Maður leikur sýningu eftir sýningu fyrir fullu húsi og segja má að búið sé að brúa tímabilið frá því sýn- ing er frumsýnd og þangað til ágæti hennar spyrst út. Við þurfum ekki lengur að bíða eftir orðsporinu,“ segir Bergur. Þau Halldóra telja skýringuna á þessu fyrst og fremst liggja í því að sýningar hússins hafi upp til hópa fallið í frjóan jarðveg. Það spilli heldur ekki fyrir að áskriftarkortin séu á sanngjörnu verði. Sýningartíminn er líka almennt styttri en áður og fyrir vikið verða sýningar betri og þéttari, að mati Halldóru og Bergs. Betra sé að leika sýningu nokkrum sinnum í viku en bara einu sinni. Eini ókosturinn, að þeirra dómi, er að hætta hefur þurft sýningum fyrir fullu húsi, þar sem þær rekast á önnur verkefni. „Þetta gerðist t.d. með Dauðasyndirnar á sínum tíma en nú er búið að taka þá sýningu upp aftur, þannig að sá möguleiki er fyrir hendi,“ segir Bergur. Halldóra kveðst finna ofboðslega hlýju og þakklæti í áhorfendum. „Fólk er greinilega tilbúið að gleðjast og nærast andlega. Það kemur fyrir hjartað.“ Fólk kemur fyrir hjartað Bergur Þór og Halldóra eru ánægð með andann í Borgarleikhúsinu og hlýjuna og þakklætið sem streymir frá leikhúsgestum.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.