SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Page 24

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Page 24
24 22. nóvember 2009 Konurnar töluðu mikið saman og eyrun á mér sem krakka lengdust alltaf þegar þær töluðu um karlmenn. Mér varð snemma ljóst að í augum kvenna voru karl- menn nánast önnur dýrategund, óútreiknanleg, barna- leg og stundum hættuleg dýrategund. Samt vildi kon- urnar allt fyrir þessa karla sína gera, þær reyndu endalaust að ala þá upp og koma þeim til manns. Þegar ég svo sem unglingur fór sjálfur að taka þátt í vinnu- samfélagi karlanna, þá sá ég þá í nýju ljósi. Í gegnum ald- irnar hafa íslenskir karlmenn barist við náttúruöflin upp á hvern dag. Þess vegna eru þeir svona trylltir, illa sið- aðir en frábærlega úrræðagóðir í nauðvörn.“ Það er dásamleg saga í bókinni, sem hljómar næstum eins og fallegt ævintýri, þar sem sögumaður, sem þá er þrettán ára og vinnur sem sendill, kemur inn til konu og sér rúm fullt af bókum. Konan lánar drengnum bæk- ur og gefur honum seinna kassa af bókum. Mörgum ár- um seinna birtist hún honum í draumi og segir við hann að ef hann eignist dóttur vilji hún að hann skíri hana Unni. Þú eignaðist dóttur sem heitir Unnur. Er þessi saga af konunni alveg sönn? „Já, fjórtán ára gamall kynntist ég góðri konu sem var mikill lestrarhestur og hafði ástríðu til að miðla þeirri þekkingu. Hún vék að mér bókum og við áttum okkar prívatbókaklúbb þar sem við ræddum efni bókanna. Hún hafði vit á að láta mig hafa bækur sem hún taldi að ég kæmist í gegnum, Gamla manninn og hafið eftir Hættuleg dýrategund Hvernig voru aðstæður þinnar fjölskyldu? „Pabbi var skipstjóri til sjós og afkoma hans hefði átt að vera góð en hann fékk ekki alltaf útborgað. Mamma þurfti stundum dögum og vikum saman að eltast við út- gerðarmenn til að reyna að pína út launin hans svo hægt væri að borga húsaleiguna. Á þessum tíma þurftu sjó- menn að búa við það að fá ekki aflahlutinn greiddan fyrr en eftir dúk og disk. Í dag eru sjómenn þokkaleg milli- stétt í landinu hvað laun varðar og vel að því komnir.“ Varstu hamingjusamt barn? „Það er ekki endilega samasemmerki á milli þess að búa við þröng kjör og þess að geta ekki haft ánægju af líf- inu. Ég og félagar mínir nutum mikils frelsis í æsku. Í dag myndu kannski sumir kalla það eftirlitsleysi, jafnvel umhirðuleysi, en það er alls ekki rétt. Þetta var bara frelsi. Mér sýnist að krakkar í dag hafi ekki þetta svigrúm til frelsis. Á þessum tímum þótti sjálfsagt að börn stunduðu vinnu við hlið fullorðinna og tólf ára krakkar gengu til allra verka. Ég fór tíu ára gamall í sveit og var þar tvö sumur og vann mikið. Tólf ára fór ég að vinna í fiski í Vestmannaeyjum. Þetta þóttu engin tíðindi, var bara sjálfsagt. Frá þrettánda ári var ég flest sumur á sjó með föður mínum. Ég beið ekki neinn skaða af þessari miklu vinnu, hvorki á líkama né sál.“ Þegar maður les bók þína þá fer ekki framhjá manni að það voru konurnar sem héldu heimilunum saman. „Já. Það var mjög algengt að konur hefðu með sér ná- grannasamfélag. Þær hjálpuðust að. Stundum var ekki til matur á einhverju heimilinu. Það gat átt sér ólíkar ástæður, aflabrest, atvinnuleysi, óreglu, veikindi. Þá var reynt að veita aðstoð. Stundum voru send út áköll í hverfinu. Þegar mig langaði til að læra að spila á gítar þá var enginn aur til á heimilinu fyrir gítar. Þá gengu skila- boð á milli kvennanna í hverfinu: Er einhvers staðar gít- ar á lausu? Á einu heimilinu fannst laskaður gítar uppi á háalofti og hann var síðan sendur niður í slipp þar sem bátasmiður tók að sér að gera við gripinn. Þetta var allt gert upp á gustuk og hjálpsemi, sem ekki er algengt að finna í dag. É g byrjaði á bókinni Fluga á vegg mér til dægra- styttingar og var að rifja upp gömul atvik. Í miðjum klíðum sá ég að þarna var orðið til efni í bók. Þannig fæddist sú hugmynd að skrifa tvær og kannski þrjár bækur,“ segir Ólafur Haukur. „Ég vil ekki flokka þetta sem ævisögu, kannski í og með vegna þess að það eru gerðar ákveðnar kröfur til ævi- sagna, bæði um trúverðugleika og nákvæmni í sambandi við tímatal og ýmis smáatriði. Svo leiðist mér þetta heiti skáldævisaga og vil ekki setja bókina í þann flokk. Þannig að ég vil kalla þetta laustengdar sögur af strák í skilgreindu tímarúmi í vesturbæ Reykjavíkur. Strák- urinn segir frá og ég reyni að láta sögumannsröddina þroskast í gegnum sögurnar. Ég vona að það skili sér með einhverju móti þannig að maður skynji ákveðna þroskasögu í gegnum það hvernig strákur sér og skynjar og segir frá. Þetta er uppvaxtarsaga. Manni finnst að þrátt fyrir erfiðleika og harða lífsbaráttu í umhverfinu þá sé þetta í vissum skilningi heimur sem hafi yfir sér notalegan blæ. Ertu sammála því? „Á þessum tíma var talsvert um fátækt og það þótti gott að hafa mat á borðum, þak yfir höfuðið og spjarir á kroppnum. Lífið var einfalt í sniðum og snerist um að fjölskyldan hefði í sig og á. Væntingarnar náðu ekki mikið lengra hjá flestum. Það sem fólk telur sjálfsagða hluti í dag, fín húsgögn, flunkuný heimilistæki, bíla í hlaði og reglubundin ferðalög til útlanda, var ekki á dagskrá hjá fjöldanum. En innan rammans sem þetta líf setti voru ýmis lífsins gildi sem mér finnst rétt að minna á eins og samheldni, heiðarleiki, nægjusemi og það að gera gott úr hlutunum. Þegar kom að því seinna að þjóðfélagið rétti úr kútnum og fólk fór að huga að því að byggja yfir sig þá voru þessi gildi enn við lýði. Ég man eftir því að stórfjölskyldan safnaðist saman á sunnudög- um inni í Smáíbúðahverfi, þar sem föðurbræðurnir og þeirra konur voru að byggja yfir sig, til þess að leggja steypu, slá utan af og skafa steypuborð. Við krakkarnir réttum nagla sem voru notaðir aftur og aftur. Allir mættu og hjálpuðust að. Þessi vinna var engin áþján heldur samhjálp veitt með glöðu geði. Ég veit ekki betur en öllum hafi fundist þetta vera góðar stundir.“ Viðtalið Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Gott líf er tíðindalítið Rithöfundurinn og leikritaskáldið Ólafur Haukur Símonarson hefur sent frá sér nýja bók, Fuglalíf á Framnesvegi. Bókin er sjálf- stætt framhald af bókinni Fluga á vegg sem kom út í fyrra og hlaut lofsamlega dóma gagnrýnenda. Í nýju bókinni, eins og þeirri fyrri, er á heillandi hátt rakin uppvaxtarsaga drengsins Óla í vesturbænum. Konurnar töluðu mikið saman og eyr- un á mér sem krakka lengdust alltaf þegar þær töluðu um karlmenn. Mér varð snemma ljóst að í augum kvenna voru karlmenn nánast önnur dýrateg- und, óútreiknanleg, barnaleg og stundum hættuleg dýrategund. Samt vildi konurnar allt fyrir þessa karla sína gera, þær reyndu endalaust að ala þá upp og koma þeim til manns.“

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.