Morgunblaðið - 17.11.2009, Side 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
Peningar Ráðherra segir að erlend-
ir kröfuhafar bíði ekki eftir því að
rétta meira fjármagn inn í íslenskt
efnahagslíf.
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði á Alþingi í gær
að sparisjóðakerfið hefði orðið
græðgisvæðingunni að bráð með
hryllilegum afleiðingum fyrir byggð-
ir landsins og væri því verulega lask-
að. Steingrímur var að svara fyrir-
spurn frá Birki Jóni Jónssyni,
þingmanni Framsóknarflokks, um
hvað liði endurreisn sparisjóðakerf-
isins, sem boðuð var fyrr á þessu ári.
Sagði Steingrímur að það hefði
reynst erfiðara verkefni en til stóð að
styrkja sparisjóðakerfið með 20%
eiginfjárframlagi, vegna þess að ekki
væri ljóst hvort slíkt fjárframlag
dygði til að koma sparisjóðnum á
réttan kjöl. Enn ein úttekt stæði nú
yfir á því og væri búist við niður-
stöðu innan skamms.
Birkir Jón sagði að erlendir kröfu-
hafar sparisjóðanna, þar á meðal
þýskir sparisjóðir, biðu niðurstöðu í
málinu. Þeir hefðu ritað ríkisstjórn-
inni bréf og bæðu um svör. Stein-
grímur sagði að erlendir kröfuhafar
biðu ekki eftir því að rétta meira
fjármagn inn í íslenskt efnahagslíf
og ef til vill væri niðurstaðan sú, að
þeir væru ekki reiðubúnir til að gera
nóg, með þátttöku íslenska ríkisins,
til að sparisjóðirnir kæmust í lífvæn-
legra horf.
Sparisjóðakerfið varð
græðgisvæðingu að bráð
ÁRLEG höf-
undakynning
verður haldin í
Bókasafni Sel-
tjarnarness í
dag, þriðjudag-
inn 17. nóvember
kl. 20.
Að þessu sinni
verða kynntar
fimm bækur og
höfundar þeirra
og eru það þau Jón Kalmar Stefáns-
son með Harm englanna, Kristín
Marja Baldursdóttir með Karls-
vagninn, Sigurður Þ. Ragnarsson
og Hólmfríður Þórisdóttir með
Íslandsveður, Steinunn Sigurðar-
dóttir og Styrmir Gunnarsson með
bók sína Umsátrið.
Höfundakynning
á Seltjarnarnesi
Kristín Marja
Baldursdóttir
KYN og völd eru viðfangsefni ráð-
stefnu sem haldin er á Grand Hótel
dagana 18.-19. nóvember nk.
Meðal þeirra spurninga sem þar
er leitað svara við er hvers vegna
tekist hafi að auka völd kvenna í
stjórnmálum á Norðurlöndum en
ekki að sama skapi á vinnumark-
aðnum. Undanfarin ár hefur hópur
norrænna fræðimanna unnið að því
að safna og greina upplýsingar um
valdahlutföll kynjanna.
Ráðstefnan hefst að kvöldi 18.
nóvember með ávarpi Árna Páls
Árnasonar félagsmálaráðherra og
síðan flytur erindi Claes Borg-
ström, fyrrverandi umboðsmaður
jafnréttismála í Svíþjóð. Næsta dag
verða svo niðurstöður hvers lands
kynntar.
Aukin völd í pólitík
en ekki í atvinnulífi
Kynin Eru ekki jafnvaldamikil.
OLGA Kolbrún
Vilmundardóttir,
landfræðingur
hjá Náttúru-
fræðistofnun,
flytur erindi um
þróun rofbakka
og áfok úr fjör-
um við Blöndulón
miðvikudaginn
25. nóvember nk. kl. 12.15.
Fyrirlesturinn er hluti af Hrafna-
þingi, fræðsluerindum Náttúru-
fræðistofnunar, sem eru að jafnaði
á dagskrá annan hvern miðvikudag
yfir vetratímann. Veturinn 2009-
2010 fara fyrirlestrar Hrafnaþings
fram í sal söngskólans Domus Vox á
Laugavegi 116, 2. hæð.
Hrafnaþing hefst
aftur í vetur
Blöndulón
LAGADEILD
Háskólans í
Reykjavík stend-
ur fyrir hádeg-
isfundi þriðju-
daginn 17.
nóvember frá kl.
12-13 í stofu 201
í húsakynnum
Háskólans í Reykjavík í Ofanleiti.
Viðfangsefni fundarins er hóp-
málsóknir.
Gísli Tryggvason, aðjunkt við
lagadeild HR og talsmaður neyt-
enda, mun fara yfir gildandi rétt og
þörf á úrbótum og Guðrún Björk
Bjarnadóttir, aðjunkt við lagadeild
HR og lögmaður hjá Samtökum at-
vinnulífsins, fjallar um ákvæði ís-
lenskra laga um hópmálsóknir.
Fundarstjóri er Sigurður Tómas
Magnússon, sérfræðingur við laga-
deild HR.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
Er hópmálsókn
tímabær á Íslandi?
Hæstiréttur
Þórunn J. Hafstein Henrik W.K. Kaspersen
Jukka Viljanen Eric Barendt
Kyrre Eggen Eiríkur Jónsson
Björg Thorarensen
Haukur Arnþórsson Árni Matthíasson
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og dómsmála- og mann-
réttindaráðuneytið efna til alþjóðlegrar ráðstefnu um ábyrgð á
birtingu og dreifingu efnis á Internetinu. Fjallað verður um helstu
knýjandi álitaefni á þessu sviði, m.a. um alþjóðlega dreifingu á
barnaklámi, kynþáttahatri og meiðyrðum, hvernig gerendur verði
fundnir og hvar þeir verði dregnir til ábyrgðar fyrir dómstólum.
Þá verður fjallað um skyldu ríkja til að vernda friðhelgi einkalífs
einstaklinga. Norræna ráðherranefndin veitir styrk vegna ráð-
stefnunnar í tilefni af formennsku Íslands árið 2009.
Ábyrgð á Internetinu
Responsibility for Expression and Information on the Internet
13.00-13.10 Þórunn J. Hafstein, settur ráðuneytisstjóri dómsmála- og mannréttindaráðuneytis
13.10-13.30 Fighting Cybercrime: Meaning of Council of Europe Cybercrime Convention 2001
Próf. Emeritus Dr. Henrik W.K. Kaspersen, ráðgjafi Evrópuráðsins og hollenska
dómsmálaráðuneytisins á sviði netglæpa
13:30-13.50 State Obligations under Article 8 of the ECHR
Ph.D. Jukka Viljanen, lektor í mannréttindum við háskólann í Tampere, Finnlandi
13.50-14.10 The Legal Control of Pornography and Hate Speech on the Net in the United
Kingdom
Próf. Eric Barendt, Goodman prófessor í fjölmiðlarétti við University College,
London
14.10-14.25 Fyrirspurnir og umræður
14.25-15.00 Kaffihlé
15.00-15.20 Jurisdictional Issues in Private Litigation
Dr. juris Kyrre Eggen, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda lögfræðistofunnar
Wiersholm, Mellbye & Bech í Osló.
15.20-15.40 Responsibility for Internet Defamation in Icelandic Law
Eiríkur Jónsson LL.M., lektor og doktorsnemi við Lagadeild Háskóla Íslands,
LOGOS lögmannsþjónusta styrkir stöðuna
15.40-16.00 How to prevent Anonymity on the Internet
Ph.D. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur
16.00-16.15 The Internet and the Media
Árni Matthíasson, blaðamaður og verkstjóri á mbl.is og umsjónarmaður blog.is
16.15-16.45 Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri: Björg Thorarensen, prófessor og forseti Lagadeildar Háskóla Íslands
Nánari upplýsingar: www.hi.is og http://hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/lagadeild/adal/conference
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Fimmtudaginn 19. nóvember í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands
Dagskrá ráðstefnunnar