Morgunblaðið - 24.11.2009, Page 4

Morgunblaðið - 24.11.2009, Page 4
Netnotkun barna Hvaða reglur hafa foreldrar sett um notkun barnsins á netinu? Reglur um hve miklum tíma má eyða á netinu Barnið má ekki fara inn á vissar síður Má bara fara inn á vissar síður Fer ekki inn ánetið eitt/án þess að foreldri fylgistmeð Barniðmá ekki tala við ókunnuga á spjallrásum 63,8% 66,7% 50,9% 17,2% 23,2% 27,9% 13,0% 1,9% 9,3% 7,1% 7,5% 12,0% 6,3% jan.-feb. ‘09 jan.-feb. ‘07 des. ‘02 Flestir með netreglur  Foreldrar meðvitaðir um nethættur  Börnin hitti ekki ókunnuga  Færri mega afrita tónlist og myndefni  Spjallsíðurnar eru fjölsóttar af börnum Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is RÍFLEGA 60% barna er bannað að hitta fólk sem þau þekkja bara af netinu og ámóta mörgum er bannað að gefa persónulegar upplýsingar um sig. Þetta kemur fram í nýrri könnun um netnotkun barna og unglinga sem landssamtökin Heimili og skóli og SAFT, sem er vakningarátak um örugga netnotkun barna og unglinga, létu gera. Almenn vitund er fyrir því meðal foreldra að börnin fari varlega á netinu og þeir ræða sífellt meira við þau um hætturnar sem netnotkun geta fylgt. Víða á heimilum hafa börnum verið settar regl- ur um notkun netsins. 61,9% barna mega ekki hitta þann sem þau þekkja bara af netinu en árið 2003 var þetta hlutfall 37,5%. Meira en helmingi barna er uppálagt að segja ekkert á netinu, spjall- rásum eða í smáskilaboðum í síma sem talist getur særandi. Árið 2003 höfðu hins vegar aðeins 10,8% barna verið settar slíkar reglur af foreldrum sín- um. Sífellt fleiri börnum er bannað að hlaða niður myndum, tónlist, afrita texta og fleira slíkt og að- eins 8,1% barna svaraði því til að engar reglur um netnotkun giltu á heimili sínu. 21,7% höfðu algjört frelsi hvað þetta varðaði fyrir sex árum þegar sambærileg könnun var gerð. Þegar foreldrar voru spurðir hvað ylli þeim mestum áhyggjum við netnotkun barna sinna sagðist um fjórðungur áhyggjulaus og 18% nefndu áhyggjur af því að barnið færi inn á óæski- legar síður. 11% sögðust hafa áhyggjur af því barnið hitti ókunnuga eða hættulegt fólk á netinu en 83% barna hafa farið inn á spjallsíður þess, til að mynda Facebook og msn. 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2009 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÚTFLUTNINGURINN hefur gengið mjög vel. Við höfum aldrei flutt út jafn mikið af kjöti í kílóum talið. Við höfum líka fengið ágætt verð fyrir kjötið samfara aukinni eftir- spurn,“ segir Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurða- stöðvar Kaupfélags Skagfirðinga (KS), um söluna á lamba- kjöti á erlenda markaði eftir gengishrunið. KS flytur mest út af lambakjöti til Bretlands, eða um 600 tonn, sem Ágúst þakkar markaðssetningu það sem af er þessum áratug. Um 250 tonn fara til Spánar, þ.m.t. lamba- hryggir, og um 100 tonn til Færeyja. Vægi Japansmarkaðar fer vaxandi en þangað fara um 120 tonn af lambakjöti, fyrst og fremst feitu, sem heimamenn borða í staðinn fyrir kjöt af japönsku lambakyni. Þá hafa um 10 gámar af lambakjöti farið til Víetnams en Ágúst telur að gróflega megi áætla verðmæti alls útflutnings KS um 540 millj. kr. Verðmæti útflutningsins um 540 milljónir króna KS flytur út á annað hundrað tonn af kjöti á Asíumarkað RÍKISSTJÓRNIN áformar að leggja skatt á heitt vatn. Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra segir að skatturinn verði hóf- legur og verði hlutfallslega álíka hár og skattur sem lagður verður á raf- magn. Ríkisstjórnin samþykkti í síðustu viku að leggja 12 aura gjald á hverja kílóvattsstund, en gjaldið er hluti af orku- og auðlindagjaldi. Steingrímur sagði að í fjármálaráðuneytinu væri núna verið að skoða skattlagningu á hitaveitur. Verð á heitu vatni væri mismunandi á milli hitaveitna, en al- mennt væri verðlagning á heitu vatni lág. Steingrímur sagði ekki ákveðið hvernig gjaldið yrði útfært og ekki lægi því fyrir hversu miklum tekjum það kæmi til með að skila í ríkissjóð. „Þetta verða ekki háar upphæðir og þetta gjald verður mjög hóflegt,“ sagði Steingrímur. egol@mbl.is Nýtt gjald á heitt vatn Útfærslan óákveðin Morgunblaðið/Heiddi ÍSLENDINGURINN sem leitað var að í Noregi og fannst látinn um há- degi í gær hét Karl Karlsson. Hann var 48 ára gamall og hafði búið í Nor- egi í um áratug. Karl lætur eftir sig norska sambýliskonu og tvö börn, dóttur sem búsett er í Danmörku og son, sem búsettur er á Íslandi. Síðast sást til Karls þegar hann var á leið heim frá Ósló til Hallingdal að- faranótt sunnudags með áætlunarbíl. Hann var ölvaður og látinn yfirgefa áætlunarbíl á stoppistöð í miðbæ Noresund í Krødsherad fyrir kl. eitt um nóttina, um 90 km frá Hallingdal. Samkvæmt norskum fjölmiðlum hringdi hann heim til sín fyrri hluta nætur en gat ekki gert grein fyrir því hvar hann væri staddur. Þegar mað- urinn skilaði sér ekki hófst leit og fannst hann um hádegi í gærdag um 20 metra frá landi í vatninu Krøder- en, skammt frá Noresund norðvestur af Osló. Fannst látinn í Noregi „FLÆÐI umferðar á þessum gatnamótum verður miklu betra með þessum breytingum. Í raun léttir þetta gríðarlega mikið á umferðinni,“ segir Jón Halldór Jónasson hjá framkvæmda og eignasviði Reykjavíkurborgar. Vegagerðin og Reykjavík- urborg hafa undanfarið unnið að endurbótum á nokkrum gatna- mótum til að auka öryggi og bæta flæði umferðar. Á þremur nýjum stöðum er Strætó bs. veittur sérstakur for- gangur. Á Miklubraut vestan Kringlumýrarbrautar hefur verið gerð sérrein fyrir strætó frá bið- stöð móts við Stigahlíð að Kringlumýrarbraut og á tvennum gatnamótum verður forgangurinn tengdur umferðarljósum, það er á Kringlumýrarbraut við Borg- artún og á Suðurlandsbraut við Kringlumýrarbraut. Ljósin á síð- astnefnda staðnum voru tekin út í gær. Á framangreindum stöðum munu strætisvatna hafa forgang. Á eldri forgangsreinum sem eru vestur Miklubraut frá Skeið- arvogi að Lönguhlíð og í Lækja- götu mega leigubílstjórar einnig nýta sér þessa akstursrein. „Þessar breytingar liðka mjög fyrir umferð strætisvagna, sér- staklega á þeim tímum dagsins þegar álag í umferð er mest. Með fimm sekúndna forgangi sem strætisvagnar fá á umferðar- ljósum á tveimur stöðum léttir slíkt mjög á umferðinni og auð- veldar okkur að halda áætlun,“ segir Reynir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Strætó bs. Í deiglunni er að setja upp for- gangsreinar og umferðarljós fyr- ir strætó víðar í borginni, að sögn Reynis, en þau mál eru enn á undirbúningsstigi. sbs@mbl.is Forgangsreinar og tvenn umferðarljós fyrir Strætó bs. í gagnið Liðkar fyrir allri umferð Gatnamót Á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og víðar munu strætisvagnar njóta forgangs með nýjum umferðarljósum. Framkvæmdin var tekin út í gær og reyndist vel en hún er talin liðka fyrir umferð. Ágúst var ekki á skrifstofunni þegar blaðamaður sló á þráð- inn til hans og leggur hann því áherslu á að þetta sé gróft mat. „Gengið gerir gæfumuninn. Það sem er kannski merkileg- ast í þessu er að nú er hægt að nýta nær allt sem getur farið til manneldis. Þannig erum við að flytja út vambir, garnir, nýru, þindar og eistu til Víetnams þar sem við fáum ágætt verð fyrir þessar hliðarafurðir,“ segir Ágúst. „Það sem kemur sterkt inn núna er að við flytj- um nú mikið af dýrara lambakjöti til Spánar. Fyrir fimm til sex árum fluttum við einn til tvo gáma á þennan markað en nú hefur magnið stóraukist.“ Afskurður og innmatur Ágúst Andrésson Magnaða moppuskaftið Dagar skúringafötunnar eru taldir Alltaf tilbúið til notkunar Gólfin þorna á augabragði Fljótlegt og þægilegt Húsasmiðjan - Pottar og prik Akureyri - Fjarðarkaup - Áfangar Keflavík - Eyjatölvur - Miðstöðin Vestmannaeyjum - Skipavík Stykkishólmi - SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki - Nesbakki Neskaupsstað - Núpur Ísafirði - Vélaleiga Húsavíkur - Óskaþrif Hólmavík SÖLUAÐILAR: Ræstivörur ehf - Sími 567 4142 - www.raestivorur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.