Morgunblaðið - 24.11.2009, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2009
Kvikmyndin Reiðmenn semfrumsýnd var um síðustuhelgi lofaði góðu. Hún erfrábærlega vel heppnuð
blanda af spennutrylli og hrollvekju
með frambærilegum efnivið og
magnaðri notkun á táknfræði. Sjón-
ræn umgjörð er hrífandi og persónu-
sköpun og leikur fantagóð. Óþokk-
arnir eru trúverðug samfélagsleg
olnbogabörn og hefndarþorsti þeirra
vel framreiddur með djöfullegum
helgisiðamorðum. En allar þessar
safaríku forsendur enda í þurri og
vel krumpaðri döðlu þar sem fléttan
er gölluð og trosnar í enda sem er of
melódramatískur og fyrirsjáanlegur.
Morðingjarnir telja sig vera hina
útskipuðu reiðmenn sem Biblían
boðar að kalla muni heimsenda yfir
spillt og sjálfselskt mannfólkið. Þeir
lifa sig inn í hlutverkin og limlest-
ingar og blóðug morð þeirra verða
goðsagnakennd með samruna við
táknfræðina. Morðin sjálf eru ekki
sýnd en vettvangi glæpanna eru
gerð þeim mun gaumgæfilegri skil.
Óhugnaður gengur ekki út á að mis-
bjóða áhorfendum eins og í slæging-
armyndum á borð við Saw og Hostel
heldur er hér skapað afar bölsýnis-
legt og ógnvænlegt andrúmsloft sem
vekur áleitnar spurningar um sam-
félagslega ábyrgð áhorfenda.
Dennis Quaid kemur skemmtilega
á óvart í hlutverki þjáðu ofurlögg-
unnar sem sökkvir sér í vinnu til að
þurfa ekki að takast á við dauða
konu sinnar og vanrækir þar með
syrgjandi syni sína algjörlega.
Raunar er öll persónusköpun vel
heppnuð þar sem teflt er fram tætt-
um föður, vanræktum syni og heil-
ögum anda, mögnuðum kvendjöfli og
einstaklega áhugaverðum hjálp-
arhellum. En það er ekki nóg því að
fléttan fjötrar þessar annars ágætu
persónur og botninn dettur úr
myndinni. Það er til dæmis afar
ótrúverðugt að útsmoginn og kænn
kvendjöfull gefi sig fram og játi sekt
sína án þess að nokkur grunur hafi
fallið á hana og hvorki hún né fléttan
hafa nokkurn ávinning af því. End-
irinn er einnig eins og áður segir fyr-
irsjáanlegur og uppgjörið einum of
klént og melódramatískt sem veldur
algjöru spennufalli í lokin á mynd
sem byrjaði svo glimrandi vel en hún
fær prik fyrir þá þætti sem eru vel
gerðir og er áhorfsverð.
Heimsendaböðlar
Sambíóin
Reiðmenn / Horsemen
bbbnn
Leikstjórn: Jonas Åkerlund. Handrit:
David Callaham. Aðalhlutverk: Dennis
Quaid, Patrick Fugit, Ziyi Zhang, Clifton
Collins Jr., Lou Taylor Pucci, Barry Sha-
baka Henley. 90 mín. Bandaríkin, 2009.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Þjáður Dennis Quaid kemur skemmtilega á óvart í hlutverki þjáðrar ofurlöggu. Hann sést hér með Ziyi Zhang.
Reiðmennirnir fjórir sem boða
heimsendi skjóta með reglulegu
millibili upp kollinum í vestrænni
vinsældamenningu. Johnny Cash
fjallaði á afar eftirminnilegan hátt
um þá í einu síðasta laginu sem
hann samdi, „The Man Comes
Around“, sem er titillag sam-
nefndrar plötu frá árinu 2002. Al-
gengast er að Plága ríði á vaðið á
hvítum fáki og í kjölfar hennar geis-
ar herskátt Stríð sem ryður sér til
rúms á stórum villtum blóðrauðum
hesti. Í kjölfarið ríður Hungursneyð
inn í auman valinn á horuðum og
veiklulegum svörtum hesti og að
lokum birtist Dauðinn á bleiku
hrossi og heimsendir er vís.
Plága, Stríð, Hungursneyð og Dauði
ÍRSKA hljómsveitin U2 verður aðal-
númerið á Glastonbury-tónlistarhá-
tíðinni í Englandi á næsta ári.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
U2 kemur fram á Glastonbury, en
hátíðin heldur upp á fjörutíu ára af-
mæli sitt á næsta ári.
„Það eru allir í skýjunum yfir því
að samningurinn hafi verið undirrit-
aður. Michael (Eavis, tónleikahald-
ari) vildi fá stórt nafn á fjörutíu ára
afmælið og sú staðreynd að U2 hefur
aldrei spilað á Glastonbury á 32 ára
ferli sveitarinnar eykur bara á
ánægjuna af að fá þá,“ segir heimild-
armaður The Sun og bætir við að
Eavis hafi átt í samningaviðræðum
við bandið í nokkurn tíma.
U2 leikur á hátíðinni föstudaginn
25. júní 2010. Þegar er orðið uppselt
á hátíðina en miðasala hófst í októ-
ber og seldist upp á klukkutíma. Þá
var ekki búið að tilkynna um nein
nöfn sem koma fram á hátíðinni.
Tónleikahaldarar voru þó búnir að
lofa að fertugasta hátíðin yrði full af
bestu tónlistarmönnum í heimi.
Auk U2 mun Andy Williams koma
fram, The Rolling Stones mun lík-
lega vera aðalnúmerið á lokadegi há-
tíðarinnar, sem stendur í þrjá daga,
og Radiohead og Beyonce Knowles
eru líkleg nöfn á Glastonbury 2010.
U2 á
Glastonbury
Töffarar Bono og Jagger verða
kannski báðir á Glastonbury.
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
SUMIR DAGAR...
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í BORGARBÍÓI
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
35.000
MANNS!HHHH„Taugatrekkjandi og
vægast sagt óþægileg”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
FRÁ LEIKSTJÓRA INDEPENDENCE DAY OG THE DAY AFTER TOMORROW
„2012 er Hollywood-rússíbani
eins og þeir gerast skemmtileg-
astir! Orð frá því ekki lýst hvað
stórslysasenurnar eru öflugar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
Stórslysamynd eins og
þær gerast bestar.
V.J.V - FBL
„...þegar líður á verður spennan
þrælmögnuð og brellurnar ger-
ast ekki flottari“
„2012 er brellumynd fyrir augað
og fín afþreying sem slík“
S.V. - MBL
STÆRSTA FRUMSÝNING ÁRSINS!
VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI
2 VIKUR Í RÖÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM
Frábær rómantísk gamanmynd sem enginn ætti að missa af!
Geta tvær manneskur sem hittast á röngum
tíma látið sambandið ganga upp?
Love Happens kl. 5:30 - 8 - 10:20 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára
Zombieland kl. 6 - 8 - 10 B.i.16 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára
A Serious Man kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára
2012 kl. 5:45 - 9 B.i.10 ára
Desember kl. 6 - 8 B.i.10 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 8 - 10:40 B.i.16 ára
Jóhannes kl. 6 - 10 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9 B.i.10 ára
Jóhannes kl. 6 LEYFÐ
Paranormal Activity kl. 8 - 10 B.i.16 ára
600 k
r.
600 k
r.
600 k
r.
600 k
r.
SÝND Í
STÓRUM SAL
SÍÐUSTU
SÝNINGAR!
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR