Morgunblaðið - 24.12.2009, Page 4

Morgunblaðið - 24.12.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                !   "# $%& &  '''(  (  ) ! * (   +     ,+  #  ! *  ÁFRAMHALDANDI seinagangur við að losa gjaldeyrishöft og koma á stöðugleika á gengi krónunnar get- ur leitt til þess að lánshæfismat rík- issjóðs versni og fari þar með niður í ruslflokk. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu matsfyrirtækisins Fitch um óbreytt lánshæfismat rík- isins. Einkunn ríkisins er nú BBB- sem er einum flokki fyrir ofan svokall- aðan ruslflokk en þar eru skulda- bréf sem ekki eru fjárfestingahæf. Styrkari erlend staða Ennfremur staðfestir Fitch að horfurnar varðandi lánshæfi ríkisins séu ennþá neikvæðar. Hins vegar hefur Ísland verið tekið af gátlista. Fram kemur í tilkynningu Fitch að framvindan í endurskipulagningu fjármálageirans og viðunandi gang- ur í framkvæmd efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins ásamt styrkari erlendri stöðu þjóðarbúsins sé ástæðan fyrir því að Ísland er tekið af gátlista. Með því síðarnefnda er vísað í greiðslur á erlendum lánum stjórn- valda að undanförnu, og þá er tekið fram að íslenska ríkið þarf ekki að takast á við umtalsverða greiðslu- byrði af erlendum lántökum fyrr en árið 2011. Einnig kemur fram í tilkynning- unni að sérfræðingar líti svo á að staðfesting Alþingis á Icesave- samningnum sé í sjónmáli og telji þar með skref stigið í átt að því að koma efnahagslegum tengslum við umheiminn í eðilegt horf. ornarnar@mbl.is Hætta á ruslflokki  Horfur enn neikvæðar að mati Fitch  Ísland þó tekið af gátlista  Viðundandi framkvæmd á efnahagsáætlun AGS » Fáum langtímaeinkun BBB- í erlendri mynt » Einkunnin er hins vegar A- í innlendri mynt » Erlend staða þjóðarbúsins sögð sterkari » Horfur eru þó ennþá neikvæðar MIKILL mannfjöldi rölti um miðborgina í gær- kvöldi, enda upplifa margir hina sönnu jóla- stemningu með því að bregða sér í bæinn á Þorláksmessu. Innlit í bókabúð á þessu kvöldi þykir mörgum ómissandi. Kaupmenn í miðbæ Reykjavíkur eru ánægðir með jólaverslunina sem gengið hefur vonum framar. Þá var fjöl- menni í Friðargöngunni þar sem fólk fór með frómar óskir í anda jólanna um frið á jörðu. MARGIR Á MIÐBORGARRÖLTINU Morgunblaðið/Golli ALDREI hafa fleiri sótt um jólaaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar, mæðrastyrksnefndar og Rauða kross Ís- lands en í ár. Alls bárust 3.900 umsóknir samanborið við 2.700 í fyrra og tókst að veita öllum aðstoð sem eftir henni óskuðu. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, segir eftirtektarvert hversu margir sem búa í eigin húsnæði þurfi á aðstoð að halda í ár. „Þetta segir okkur að það er mjög þröngt í búi hjá þessu fólki.“ Fólk virðist gera sér vel grein fyrir því að þörfin er meiri en oft áður, enda var einnig mikil fjölgun í hópi sjálfboðaliða sem lögðu hönd á plóg við úthlutunina. Yfir fjögur hundruð sjálfboðaliðar tóku þátt og segir Vilborg sérstaklega gaman að sjá hversu margir unglingar séu tilbúnir að nota jólafrí sitt til að láta gott af sér leiða. Einnig hafi fjöldi fyrirtækja og félagasamtaka lagt sitt af mörkum. „Þetta hefur aldrei gengið eins vel og í ár, enda vorum við með mjög gott húsnæði og frábæra sjálfboðaliða,“ segir Vilborg, en úthlutunin fór að þessu sinni fram í MEST-húsinu við Norðlingabraut. Í tilkynningu vegna úthlutunarinnar er bent á að ef miðað er við að meðalstór fjölskylda standi á bak við hverja umsókn megi gera ráð fyrir að um 10.500 ein- staklingar njóti góðs af matvælum og gjafakortum sem úthlutað var. hlynurorri@mbl.is Meiri þörf á jólaaðstoð en áður og fleiri tilbúnir að hjálpa Morgunblaðið/Golli Fleiri hjálpa Margir lögðu hönd á plóg. „ÉG held að þetta séu nú ekki mikl- ar fréttir,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra um fregnir af óbreyttu lánshæfismati Fitch á ís- lenska ríkinu. Aðspurður hvaða þýð- ingu það hafi að vera tekið af gát- lista, eins og fram kemur í tilkynn- ingu sem Fitch sendi frá sér í gær að hafi gerst með Ísland, segir Gylfi: „Þetta er nú ekki eitthvað sem skipt- ir höfuð máli.“ Í haust sagði Paul Rawkins, fram- kvæmdastjóri hjá Fitch í Lundún- um, að lausn Icesave-málsins væri skilyrði þess að endurmat á láns- hæfiseinkunn íslenska ríkisins færi fram. Gylfi tekur undir að í ljósi þessa sé undarlegt að Fitch sendi frá sér mat nú. „Mér finnst skrýtið að þeir séu að breyta einhverju núna, frekar en að bíða þangað til úrslit Icesave-málsins liggja fyrir.“ Undarlegt að nýtt mat komi nú STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár- málaráðherra tel- ur það ekki vera áfellisdóm þótt IFS-greining komist að þeirri niðurstöðu að 10% líkur séu á greiðslufalli ís- lenska ríkisins taki það á sig Ice- save-skuldbindingarnar. „Miðað við þær svartsýnu for- sendur sem þeir gefa sér finnst mér það ekki vera svo slæm niðurstaða að það séu samt 90% líkur á að við ráðum við þetta.“ Hins vegar væru það mjög slæm skilaboð til umheimsins að þrátt fyr- ir svona miklar líkur á að við ráðum við skuldbindingarnar ætluðum við ekki að reyna að axla okkar ábyrgð. Ennfremur segir Steingrímur að komist Íslendingar klakklaust í gegnum næstu ár hafi hann ekki áhyggjur af getu okkar til að greiða af Icesave-skuldbindingunum frá árinu 2016, enda verði hagkerfið þá komið á góða siglingu. Afgreiði málið fyrir áramót Steingrímur segir ekki skynsam- legt að taka að nýju upp viðræður við Breta og Hollendinga, eins og lögmannsstofan Mischon de Reya nefnir sem möguleika. „Það er ein- róma mat þeirra sem hafa staðið í þessu að lengra verði ekki komist og að ekki sé hyggilegt að leggja í enn einn óvissuleiðangurinn með tilheyr- andi töfum.“ Steingrímur hefur áður sagt að lögfróðum mönnum sýnist sem svo að Mishcon de Reya hafi ekki skoðað alla hliðarsamninga í málinu. Að- spurður um hvaða samninga sé að ræða segir hann að svo virðist sem breska lögfræðistofan hafi ekki kynnt sér svokallaðan „Settlement Agreement“. Loks segir Steingrímur að ekki sé hyggilegt að bíða fram á næsta ár með að gera Icesave-frumvarpið að lögum, enda byggist áframhaldandi gott samstarf við AGS, næstu greiðslur af lánum frá Norðurlanda- þjóðunum og það að eðlilegt ástand komist á samskipti okkar við fjár- málaheiminn allt á því að Icesave- málið verði afgreitt. hlynurorri@mbl.is Mat IFS ekki áfell- isdómur Ekki hyggilegt að ræða málið áfram Steingrímur J. Sigfússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.