Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 43
Menning 43FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
„Hvað viltu verða
vinur,“ spyr móðir
Georgs hann, og rauður
loginn brennur í augum
hennar 45
»
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
BÓKAÚTGÁFAN Edda stendur á gömlum
merg þótt fyrirtækið hafi gengið í gegnum
talsverðar breytingar á síðustu árum, en þó
aðallega frá því Eddu útgáfu var skipt upp og
fyrirtækið selt. Eftir varð Edda með umboð
fyrir bækur frá Disney, Andrés Önd og viðlíka.
Svala Þormóðsdóttir, útgáfustjóri Eddu,
segir að stefna fyrirtækisins hafi ekki breyst
svo mikið á árinu þrátt fyrir þessar breyt-
ingar, áherslan sé á efni frá Disney eins og áð-
ur, en einnig hefur bókaklúbbum fækkað
markvisst á árinu en fyrirtækið haldi eftir
nokkrum klúbbum sem hafi gengið mjög vel
og nefnir klúbbinn Hugmyndabanka heim-
ilanna, sem sendir félögum handavinnu- og
tómstundabækur, sem hún segir að nái vel til
fólks í kjölfar hrunsins. Aðspurð um fjölda út-
gefinna titla fyrir jólin segir Svala að Edda
hafi verið iðin við bókaútgáfu allt árið þótt eðli-
lega komi flestar bækur út skömmu fyrir jólin.
„Við erum með um 40 titla, sem er álíka og á
síðasta ári, og það hefur gengið mjög vel þótt
eðlilega seljist bækurnar misvel, eins og geng-
ur.“
Jólasyrpan slær í gegn
Einna best hefur Jólasyrpan gengið, en það
er syrpa af sögum af Andrési Önd og félögum
sem allar tengjast jólunum á einhvern hátt.
Við gefum hana út innbundna og hefur alltaf
selst upp hjá okkur og klárast líka núna, því
það eru aðeins nokkur eintök eftir hjá okkur í
búðinni en annars er hún uppseld frá útgef-
anda þótt við höfum prentað mun fleiri eintök
nú en í fyrra.“
„Hello Kitty-bækurnar eru nýjar hjá okkur,
við gáfum út sex Hello Kitty-bækur á árinu, og
þær hafa líka selst mjög vel, sérstaklega
þrautabækurnar svokölluðu, en þær eru með
annars vegar bókstafa- og hins vegar talna-
þrautum. Við ætlum að gefa út fleiri Hello
Kitty-bækur, en eitt af því sem er svo
skemmtilegt við Hello Kitty er að það er líka
fyrir unglinga.
Jólasyrpa þarsíðasta árs var svo endur-
útgefin hjá okkur í minna broti sem svokölluð
smásyrpa og hún hefur gengið mjög vel og líka
bókin Krókur bjargar jólunum sem byggist á
Cars-teiknimyndunum.“
Í ljósi þess að Edda gefur út 40 titla er af
nógu að taka, en Svala nefnir líka sérstaklega
Bangsímon-bækurnar sem gefnar voru út í
viðhafnarútgáfu í tilefni af því að 80 ár eru lið-
in frá því fyrsta bókin kom út. Sú, sem heitir
einfaldlega Bangsímon, kom reyndar út á síð-
asta ári en er endurútgefin enda seldist hún
upp. Seinna bindið sem er eftir A.A. Milne,
Húsið á Bangsahorni, kom svo út nú fyrir jólin
og svo þriðja bindið, Snúið heim í Hundr-
aðmetraskóg, sem skrifað var af D. Benedic-
tus.
„Annað sem selst hefur mjög vel er Andrés
Önd-fjölskylduspilið, en við höfum ekki áður
gefið út þannig spil og erum því mjög ánægð
með viðtökurnar. Það hefur til að mynda slegið
í gegn á vefnum okkar, en hann hefur nýst
okkur mjög vel sem söluvefur.“
Edda og Andrés
Edda gefur út fjörutíu titla á árinu
Morgunblaðið/Heiddi
Barnaefni Svala Þormóðsdóttir, útgáfustjóri
Eddu, lætur vel af bóksölu ársins.
Hún lætur ekki mikið yfirsér þessi litla bók, en þótthún sé ekki nema rúmar100 síður eru í henni 35
sögur og fullt af hugmyndum. Fyrri
hlutinn er að megninu örsögur sem
hnýttar eru saman með svuntu-
streng, en sá síðari
með veigameiri
sögum og þeim
sem mest spunnið
er í. Dæmi um það
er „Þjóðvegur
eitt“, sem er
einkar vel skrifuð
og beitt, og eins er
„Í bítið“ stór-
skemmtileg.
Sigurlín Bjarney er vel efnilegur
höfundur, lipur penni sem fer óvænt-
ar leiðir í málfari og hugsun, og
Svuntustrengir lofa mjög góðu.
Svuntu-
strengir fram-
tíðarinnar
Skáldsaga
Svuntustrengir
bbbmn
eftir Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur.
Nykur, 113 bls
ÁRNI
MATTHÍASSON
BÆKUR
TÝNDA táknið,
nýjasta spennu-
saga Dans
Browns, situr á
toppi breska bók-
sölulistans fyrir
þessi jól og ýtir
niður fyrir sig
ævisögum frægs
fólks, en slíkar
bækur eru iðu-
lega söluhæstar í
Englandi á þessum tíma árs.
Salan á Týnda tákninu, þar sem
táknfræðingurinn Langdon glímir
við frímúrara, tók mikinn kipp síð-
ustu vikuna og skaust bókin þá upp
fyrir nýjustu útgáfu Heimsmeta-
bókar Guinness, sem er í öðru sæti.
Brown hefur áður verið söluhæst-
ur fyrir jólin í Bretlandi, 2004 þegar
Da Vinci-lykillinn var á toppnum.
Þriðja söluhæsta bókin í Bretlandi
er Eclipse eftir Stephenie Meyer.
Dan Brown
á toppnum
Rithöfundurinn
Dan Brown
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
EGGERT Þorleifsson fer með hlut-
verk Fagins í söngleiknum Óliver!
eftir Lionel Bart sem er jólaleikrit
Þjóðleikhússins og verður frumsýnt
annan í jólum í leikstjórn Selmu
Björnsdóttur.
Samúð með Fagin
Fagin er stjörnuhlutverk og með-
al þekktra leikara sem farið hafa
með hlutverk hans í kvikmyndum
eru Alec Guinness, Ben Kingsley og
Ron Moody. Eggert leitar ekki í
smiðju þessara leikara í túlkun
sinni á Fagin því hann hefur aldrei
séð kvikmynd gerða eftir sögunni.
Hina heimsfrægu sögu Charles Dic-
kens las hann hins vegar sem
strákur.
„Það er gaman að túlka Fagin,
hann er svo sterkur og fyrirferð-
armikill karakter,“ segir Eggert.
„Handrit þessa söngleiks er gam-
ansamt og Fagin vekur manni ekki
sömu skelfingu og í bókinni í gamla
daga þegar maður gat varla sofið
vegna þessa ógurlega manns. Fagin
sýnir á sér margar hliðar. Þótt
hann stjórni glæpagengi þá leggur
hann mikla áherslu á að hann sé á
móti ofbeldi. Það er á margan hátt
auðvelt að hafa samúð með honum
enda er ákveðið umkomuleysi í ör-
lögum þessa vesalings sem rekur
sitt litla sprotafyrirtæki í skolpræs-
um Lundúnaborgar. Aðbúnaðurinn
hjá honum er þó ekkert verri en á
munaðarleysingjahælinu þar sem
Óliver ólst upp.“
Söngleikur Lionel Bart um Óliver
hefur notið gríðarlegra vinsælda og
kvikmynd var gerð eftir honum árið
1968 og hlaut Óskarsverðlaun sem
besta mynd ársins. „Tónlistin í
þessum söngleik er ansi lagleg og
ég syng þar baki brotnu,“ segir
Eggert. „Ég hef svosem rekið upp
bofs áður, bæði í söngleikjum og á
plötum. Ég er ekki mikill söngvari,
en þokkalegur raulari.“
Eggert kvíðir ekki fyrir frumsýn-
ingunni. „Á frumsýningu er maður
oftast tilbúinn, sallarólegur og
hlakkar til. Spennan, sem maður
fann fyrir, breytist í einbeitingu á
frumsýningarkvöld.“
Fagin er hlutverk sem býður upp
á spennandi og eftirminnilega túlk-
un og Eggert er spurður hvort
hann finni fyrir mikilli pressu að
sýna stjörnuleik. „Ekki fyrr en þú
segir þetta!“ svarar hann. „Nei, ég
geri þetta bara eins og ég geri
þetta. Ég er ekki í samkeppni við
nokkurn mann. Kannski af því að
ég hef aldrei séð neinn leika þetta
hlutverk.“
Fagin á sér margar hliðar
Eggert Þorleifsson fer með hlutverk Fagins í söngleiknum Óliver! Segir
auðvelt að hafa samúð með Fagin Hefur ekki séð neinn leika hlutverkið
Ljósmynd/Þjóðleikhúsið
Á sviði Eggert sem Fagin í Óliver, umkringdur strákagengi. „Það er gaman að túlka Fagin, hann er svo sterkur karakter.“
Oliver Twist var önnur skáldsaga Charles Dickens og
birtist fyrst sem framhaldssaga í tímariti. Dickens
var einungis 26 ára gamall þegar hann skrifaði sög-
una, sem er ein sú vinsælasta sem þessi merki rit-
höfundur samdi á sínum mjög svo farsæla ferli. Sag-
an af litla og saklausa munaðarleysingjanum sem
lendir í slagtogi með þjófum hefur orðið að ótal
sjónvarpsþáttum og kvikmyndum og söngleikur eft-
ir henni var frumsýndur árið 1960 á West End og
síðan á Broadway. Söngleikurinn varð síðan að Ósk-
arsverðlaunakvikmynd árið 1968 en þar fór Ron
Moody með hlutverk Fagins, og þótti standa sig af-
burðavel. Mark Lester lék Oliver litla.
Saklaus munaðarleysingi
Charles Dickens