Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 42
42 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ÆTLA AÐ FÁ EINN HAMSTUR, PÁFAGAUK OG KÓKGLAS ÆTLI ÞUMALPUTTINN Á MÉR SÉ ÚTRUNNINN? BRÁÐUM ÁTTU EFTIR AÐ HUGSA ÖÐRUVÍSI UM STELPUR ÞÁ EIGA EFTIR AÐ VAKNA ALLS KONAR SPURNINGAR ÞEGAR ÞAÐ GERIST KAUPIR MAMMA ÞÍN HANDA ÞÉR BÓK ÞAR SEM ÞÚ GETUR LESIÐ UM ÞETTA ALLT SAMAN VARÚÐ! HUNDUR HANN AFI GAMLI ER EKKI MIKILL VARÐHUNDUR, ER ÞAÐ? ÞEGAR ÞEIR NÁ VISSUM ALDRI ÞÁ HÆTTA ÞEIR AÐ VERA VARÐHUNDAR ...OG BYRJA AÐ BJÓÐA MANN VELKOMINN ÞETTA VAR NÚ GAMAN! GOTT AÐ ÞIÐ SETTUST HJÁ OKKUR JÁ, ÞETTA VAR FRÁBÆRT KVÖLD LALLI OG ÉG HÖFUM TALAÐ UM HVAÐ ÞAÐ ER ERFITT AÐ KYNNAST ÖÐRUM PÖRUM ÉG VEIT HVAÐ ÞÚ ÁTT VIÐ VIÐ GETUM ÞAÐ EKKI VIÐ ÆTTUM AÐ SKIPTAST Á NÚMERUM OG HITTAST AFTUR EF MAKAR OKKAR KOMAST AÐ ÞVÍ AÐ VIÐ SÉUM AÐ HITTAST ÞÁ LENDUM VIÐ Í VANDRÆÐUM VELKOMIN Í ÞÁTTINN TIL MARÍU LOPEZ! GESTUR MINN Í KVÖLD ER... ENGINN ANNAR EN KÓNGULÓAR- MAÐURINN ENGINN VEIT AÐ HANN ER MEÐ FLENSU PETER, SEGÐU ÞAÐ SEM ÞÚ ÆTLAÐIR AÐ SEGJA OG KOMDU HEIM Jólaljósið Í miðju skammdeginu norður við heimskauts- baug, þegar dagurinn er stystur og birtu sól- ar nýtur hve skemmst, gerist það undur að daginn fer aftur að lengja og sólin að hækka á lofti. Á vetr- arsólstöðum er jörðin í kyrrstöðu uns hún tek- ur aftur til við að hall- ast í átt til sólar, á þriðja degi. Í svartasta skammdeginu á því upprisan sér stað. Sól- in, lífgjafinn, rís á ný, ljósið, sem gefur heiminum líf, og fær allt til að vaxa og dafna. Þannig reis Kristur einnig upp á þriðja degi, ljós heimsins, líf mannanna. Þegar myrkrið var hve svartast og sorgin nístandi í hjörtum lærisveina meist- arans varð upprisan á sunnudags- morgni og birtan tók við af nótt – hið sanna jólaljós. Hátíð ljóssins er um þessar mund- ir. Fæðing lífs og ljóss í heimi manna. Við tendrum ljósin jóla og búum okkur undir upprisuhátíð heimsins. Von og friður fylla hjört- un, því við vitum að upprisa ljóssins, lífs mannanna, er í vændum, hátíð ljóss og friðar. Framundan er tími hækkandi sólar, birtu og yls, fæðing Frelsarans. Við eigum von um betri heim, heim ljóss og friðar, og í hjört- um vorum eilíf, heilög jól. Einar Ingvi Magnússon. SÁÁ ÉG vil vekja athygli á stórmerkum sam- tökum, SÁÁ. Þarna starfar hugsjónafólk sem hlúir að þeim sem laklegast standa í þjóð- félagi okkar. Eftir meðferð þessa góða fólks er skjól- stæðingum bent til margra ráða, meðal annars sjálfsprottinna samtaka þar sem hin- um veiku býðst leið til nýs og hamingjuríkara lífs. Við vitum að sið- ferði þjóðar verður metið af því hvernig annast er um aldraða og þá sem bágast standa. Áskorun mín verður því til stjórn- valda: Hlúum áfram að gifturíku starfi SÁÁ, gefum ekki eftir þar sem svo augljóslega eru mannslíf í húfi. Jón Gunnar Hannesson. Tapað/fundið Laugardaginn 19. desember tap- aðist gulleyrnalokkur, þykkur hálf- hringur, annaðhvort við Landspítala eða Fjarðarkaup. Sama dag fauk lítil gjafaaskja með perlueyrnalokkum út úr bíl við Kleppsveg. Skilvísir finnendur vinsamlegast hafi sam- band í síma 555-2254. Ást er… … þegar hann hefur gaman af því að gera það sem þú segir. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Hallmundur Kristinsson sendikveðju á bundnu máli inn á Fésbókina: Liggur oft um langan veg leiðin yfir hóla. Öllum vinum óska ég allra bestu jóla. Hlynur Snæbjörnsson yrkir á jól- um: Bíð ég jóla býsna klár, bærinn allur þveginn. Er loksins kemur annað ár, ögn þó verð ég feginn. Jón Gissurarson rifjar upp að veðurfræðingur sagði eitt sinn að sólin hækkaði um eitt hænufet á dag fyrstu dagana eftir sólstöður. Geislatrafið mikils met mitt það gleður hjarta. Hækkar nú um hænufet himnadísin bjarta. Andrés Björnsson frá Brekku í Skagafirði var beðinn um að skrifa fyrstur í „poesibók“, sem gefa átti ungri stúlku í jólagjöf: Haltu jólin hress og kát við hangiket og bolaspað. Eigðu þetta leirílát og láttu aðra fylla það. Bjarni Ásgrímur Jóhannesson kennari orti um Stínu í Teigi, en þau voru systkinabörn: Ávallt gleði inn til þín yndis flytji sólin. Komdu Stína, kæra mín og kysstu mig um jólin. Vísnahorn pebl@mbl.is Af jólum í bundnu máli Kúabóndinn varði titilinn á Flúðum Það var hart barist í einmennings- keppni Uppsveitafólks á Flúðum, sem er nýlokið. Keppt var á sex borðum. Fór svo að kúabóndinn í Ás- um varði titil sinn frá í fyrra. Efstu sæti: Viðar Gunngeirsson 211 Sigurður Sigmundsson 200 Hreinn Ragnarsson 198 Guðrún Einarsdóttir 196 Magnús Gunnlaugsson 191 Knútur Jóhannesson 191 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 18. desember var síð- asta spilakvöld á þessu ári hjá FEBH. Ólafur og Þorsteinn unnu N/ S-riðilinn með glæsibrag. Úrslit urðu annars þessi í N/S: Ólafur Ingvarsson – Þorsteinn Sveinss. 415 Rafn Kristjánsson – Magnús Halldórss. 345 Jón Hallgrímsson – Bjarni Þórarinss. 343 Tómas Sigurjss. – Jóhannes Guðmannss. 341 A/V: Örn Isebarn – Örn Ingólfsson 351 Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldsson 347 Oddur Jónsson – Sigríður Gunnarsd. 343 Ágúst Stefánss. – Helgi Einarsson 334 FEBH sendir Arnóri Ragnars- syni, ásamt öllum sem spilað hafa hjá félaginu, bestu jóla- og nýársóskir með þökk fyrir liðið ár. Spila- mennska hefst 12. janúar á næsta ári. Jólamót Að venju er fjöldi bridsmóta um jólin. Jólamót Bridsfélags Akureyr- ar verður 27. des. á Hótel KEA og hefst kl. 10. Sama dag verður jóla- mót á Reyðarfirði. Árlegt jólamót Bridsfélags Hafn- arfjarðar verður 28. des. í Flata- hrauni 3 og hefst spilamennskan kl. 17. Jólamót Bridsféags Reykjavíkur verður 30.12. í Síðumúla 37 og Rang- æingar verða með mót í Golfskálan- um á Strönd 2. janúar kl. 12. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.