Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Félagsmálaráðu-
neytið er að leita
leiða til þess að
niðurskurður á
umönnunar-
greiðslum verði
5-10% eða svip-
aður og almennt
verður skorið
niður til velferð-
armála, að sögn
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur, aðstoðarmanns
Árna Páls Árnasonar félagsmála-
ráðherra. Hún sagði að samráðs-
hópur embættismanna ráðuneytis-
ins og fulltrúa Þroskahjálpar hafi
þegar hist einu sinni til viðræðna.
Anna sagði ekki ætlunina að lækka
framlög til umönnunargreiðslna
meira en aðra þætti velferðarþjón-
ustu.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
UMÖNNUNARGREIÐSLUR
vegna fatlaðra og langveikra barna
lækka um 18% samkvæmt nýsam-
þykktu fjárlagafrumvarpi ársins
2010. Landssamtökin Þroskahjálp
fordæma í ályktun „þá aðför að fjöl-
skyldum fatlaðra og langveikra
barna sem felst í mikilli lækkun
umönnunargreiðslna“. Samtökin
segja að lækkun umönnunar-
greiðslna um 18% sé langt umfram
þann niðurskurð sem almennt er
beitt í velferðarkerfinu.
Þroskahjálp bendir á að umönn-
unargreiðslur séu hugsaðar sem
stuðningur við foreldra fatlaðra og
langveikra barna. Þær séu einnig
viðurkenning á því að fötluð og
langveik börn þarfnist meiri
umönnunar en önnur börn. „Þessar
greiðslur hafa m.a. leitt til þess að
stofnanavistun barna er minni hér á
landi en víða annars staðar í heim-
inum,“ segir Þroskahjálp. Samtökin
telja að minni stuðningur við for-
eldra fatlaðra og langveikra barna
sé líklegur til að hafa slæm áhrif á
lífsgæði þessara fjölskyldna í bráð
og lengd.
Þá harmar Þroskahjálp að vel-
ferðarhugsjón ríkisstjórnar Íslands
og Alþingis skuli ekki ná til þessara
fjölskyldna.
Gerður A. Árnadóttir, formaður
Landssamtakanna Þroskahjálpar,
sagði að samkvæmt upphaflegum
drögum að fjárlögum hefði staðið til
að skerða umönnunarbæturnar um
31%. Þroskahjálp mótmælti þeirri
hugmynd og ræddi málið við félags-
málaráðuneytið, alþingismenn og
fleiri. Í endanlegri gerð fjárlaga var
dregið úr niðurskurðinum og endaði
hann í 18%. Gerður sagði að þetta
væri langt umfram þann 5-10%
niðurskurð sem almennt hefði verið
viðhafður í velferðarmálum.
Umönnunargreiðslur lækkaðar
Greiðslur vegna umönnunar fatlaðra og
langveikra barna verða skertar um 18%
Morgunblaðið/Ásdís
Skerðing Umönnunargreiðslur vegna fatlaðra og langveikra barna verða
skertar um 18% á fjárlögum. Leitað er leiða til að draga úr skerðingu.
Landssamtökin Þroskahjálp hafa
brugðist hart við 18% niður-
skurði á umönnunargreiðslum
vegna fatlaðra og langveikra
barna. Ráðuneytið leitar leiða til
að minnka niðurskurðinn.
STEINGRÍMUR
J. Sigfússon fjár-
málaráðherra
segir að þegar
gerður var við-
aukasamningur
við Breta og Hol-
lendinga í haust,
hafi það verið ein
af forsendum
samkomulagsins að endurskoðun
mála gæti farið fram hjá AGS án
þess að beðið væri eftir niðurstöðu
Alþingis. Hið sama hafi átt við um
fyrsta hluta lánsins frá Norður-
landaþjóðunum.
Fyrr í vikunni var fyrsti hluti
lánsins afgreiddur þrátt fyrir að Ice-
save-frumvarpið hefði ekki verið
samþykkt, en um miðjan mánuðinn
sagði Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra að Svíar og Norð-
menn vildu ekki greiða út lánið fyrr
en lausn Icesave-málsins lægi fyrir.
Steingrímur bendir á að í sam-
eiginlegri yfirlýsingu fjármálaráð-
herranna sem að samningnum
stóðu, hafi falist að ekki þyrfti að
bíða eftir endanlegri afgreiðslu Al-
þingis áður en næsta endurskoðun
færi fram. hlynurorri@mbl.is
Þurftu ekki
að bíða eftir
afgreiðslu
„ÞAÐ hefur gengið mjög vel, veðrið hefur leikið
við okkur þó reyndar hafi verið smá skot fyrir
norðan,“ segir Anna Kristín Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Ís-
landspósts, um póstdreifinguna fyrir jólin. Hún
kveður álag á póstþjónustuna vera svipað og um
síðustu jól, koma þurfi álíka mörgum póstsend-
ingum áleiðis og þá. Sé litið lengra aftur hefur
álagið þó minnkað og reiknar Anna Katrín með
að efnahagsþrengingarnar hafi haft nokkuð að
segja um það.
Reiknað er með að allur jólapóstur komist til
skila fyrir jól fyrir utan innihald um 1.500 póst-
poka sem strandaðir eru í Kaupmannahöfn.
Samkvæmt fréttatilkynningu Íslandspósts frá í
gær kemur þetta til vegna tafa á póstafgreiðslu í
New York og Kaupmannahöfn. Mun innihald
pokanna, um 2.000 bögglar og fjöldi bréfa og
póstkorta, ekki komast til skila áður en jólahá-
tíðin gengur í garð. „Við vonum auðvitað að þetta
berist milli jóla og nýárs,“ segir Anna Katrín en
hún segir það ekki liggja fyrir með vissu hvenær
póstpokarnir 1.500 berist til landsins og innihald
þeirra til réttra viðtakenda. skulias@mbl.is
Vel hefur viðrað til póstburðar og flestir fá jólapóstinn sinn á réttum tíma
Morgunblaðið/Heiddi
Síðustu pakkar berast vonandi fyrir nýárið
SJÓMANNAFSLÁTTUR,
sem hefur löngum verið um-
deildur, mun falla niður á fjór-
um árum samkvæmt lögum um
tekjuöflun ríkisins, sem sam-
þykkt voru á Alþingi þann 21.
desember. Með þessu gerir
ríkisstjórnin ráð fyrir að spara
um 1,1 milljarð á næsta ári.
Sævar Gunnarsson, formað-
ur Sjómannasambands Ís-
lands, er ósáttur við breytingarnar. „Ég fordæmi
bæði vinnubrögðin við það hvernig að þessu er
staðið og það að afnema þetta án þess að tryggja
það að þetta komi til baka til sjómanna með öðr-
um hætti.“
Spurður hvernig sjómenn ætli að bregðast við
vísar Sævar til yfirlýsingar sem gefin var út í
byrjun desember, um að sjómenn myndu ekki láta
þetta yfir sig ganga átakalaust og að ef sjómanna-
afslátturinn yrði tekinn af að þá yrði að bregðast
við því. Viðbrögðin muni hins vegar mótast á
fundum sem öll sjómannafélög og deildir verði
með núna á milli jóla og nýárs. Þar verði mörkuð
stefna um framhaldið og þangað til sé beðið með
frekari yfirlýsingar.
Hvað áhrifin á sjómannastéttina varðar minnir
Sævar á að það séu aðeins um tvö ár síðan ill-
mögulegt hafi verið að manna þann hluta flotans
þar sem kaup og kjör voru verst. Kjör sjómanna
fari oft á skjön við það sem almennt gerist vegna
tengingar sjávarútvegsins við gengið og verð á af-
urðum erlendis.
Inntur eftir því hvort sjómenn verði ekki að taka
á sig byrðar eins og aðrir, líkt og verið hefur í um-
ræðunni, segir Sævar að þá verði aðrir að taka á sig
líka. Það sé mikið af fólki bæði í opinbera geiranum
og á almenna vinnumarkaðinum sem hafi hlutfalls-
lega mun meiri fríðindi. sigrunrosa@mbl.is
Telur afnám skattafsláttar sjó-
manna ekki ganga átakalaust
Sjómannafélög með fundi eftir jól til að móta stefnuna og skipuleggja aðgerðir
Sævar Gunnarsson
Leita leiða til að
draga úr lækkun
greiðslna í 5-10%
Anna Sigrún
Baldursdóttir
EIÐUR Smári
Guðjohnsen
knattspyrnumað-
ur hefur stefnt
DV, ritstjórum
blaðsins og blaða-
manni, fyrir að
greina frá háum
lántökum Eiðs
hjá bönkunum. Í
stefnu segir að
fjölmiðlum sé
ekki heimilt að fjalla, án samþykkis
og vitundar Eiðs, um einkamálefni
hans.
Á vef DV kemur fram að knatt-
spyrnumaðurinn vilji að ritstjórar
og blaðamaður verði látnir sæta
þyngstu refsingu sem lög leyfa, sem
er eins árs fangelsi, auk þess sem
þeir greiði fimm milljónir kr. í bæt-
ur. Þá vill Eiður eina milljón kr. til
að kynna niðurstöðu dómstóla í mál-
inu.
DV greinir frá því að í stefnunni
komi fram að stefnandi telji fjár-
hagsmálefni sín hafi ekkert með
opinbera persónu sína að gera og
þau snerti almenning á engan hátt.
Eiður Smári
stefnir DV
Eiður Smári
Guðjohnsen