Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2010 Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til úthlutunar á síðari hluta árs 2010. Verðlaun að upphæð 600 þúsund krónur verða veitt fyrir eitt handrit. Þriggja manna dómnefnd metur verkin; Kolbrún Bergþórsdóttir formaður og Jón Óttar Ragnarsson tilnefnd af menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Ingibjörg Haraldsdóttir tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands. Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi. Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2010. Utanáskrift: Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra menningarmála, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 2. hæð, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs s. 590 1520 og 590 1521. Flutningum frestað  Guantanamo-búðunum lokað í fyrsta lagi 2011  Framkvæmdir við Thomp- son-fangelsið í Illinois hefjast ekki fyrr en eftir kaup á því og taka marga mánuði BANDARÍKJASTJÓRN á í erfiðleikum með að finna fé til að fjármagna kostnaðinn sem hlýst af fyrirhuguðum fangaflutningum frá Guantanamo- fangelsinu á Kúbu í lítt notað Thomson-fangelsið í Illinois í Bandaríkjunum. Fyrir vikið virðist ljóst að flutningarnir verða í fyrsta lagi árið 2011. Þegar Hilary Clinton hóf störf sem utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna í janúar sl. fyrirskipaði Barack Obama forseti lokun Guantanamo-búð- anna og var stefnan sett á 22. janúar 2010. Á dög- unum var tilkynnt að fangarnir yrðu fluttir til Ill- inois, en talsmenn stjórnarinnar segja að það gæti tekið átta til 10 mánuði að koma Thompson-fang- elsinu í nauðsynlegt horf og framkvæmdir geti ekki hafist fyrr en gengið verði frá kaupum stjórn- arinnar á fangelsinu af stjórn Illinois-ríkis. Talið er að fangelsið kosti um 150 milljónir Bandaríkjadala. Ekki er gert ráð fyrir þessum kostnaði á fjárlögum 2010. Aukafjárlög vegna stríðsins í Afganistan verða væntanlega samþykkt í lok mars eða apríl og þá er fyrst möguleiki að samþykkja útgjöld vegna lokunar Guantanamo- búðanna, en það gæti dregist þar til kemur að fjár- lögum 2011. Um 200 fangar eru í Guantanamo-búðunum. Talsmenn Hvíta hússins benda á að flutningurinn spari í raun peninga vegna þess að reksturinn á Kúbu kosti 150 milljón dollara á ári en áætlað sé að rekstur Thompson-fangelsisins verði 75 milljón dollarar á ári. steinthor@mbl.is TVEIR ungir menn sluppu við refsingu vegna alvarlegrar hegð- unar á opinberum vettvangi en yf- irvaldið benti þeim á að hjóla fram- vegis með hjálm. Lögreglukona í Whangamata á norðausturströnd Nýja-Sjálands lét sér fátt um finnast þegar hún mætti tveimur nöktum hjólreiða- mönnum á þrítugsaldri. Hún sagði að þeim hefði brugðið og reynt að hylja nekt sína með höndunum. Þegar hún spurði hvað mönnunum gengi til var svarið að þeir vildu upplifa algjört frelsi. Hún sagði þeim að miðað við framgang þeirra stefndu þeir í algjöra innilokun. Að því loknu veitti hún þeim harðorða áminningu fyrir að vera ekki með hjálm og skipaði þeim að halda þegar til síns heima. Lögreglukonan sagði að hún hefði haft áhyggjur af málinu vegna þess að mennirnir voru alls- gáðir. Nekt á almannafæri getur þýtt ákæru í Nýja-Sjálandi en lög- reglukonan sagðist hafa ákveðið að láta áminningu nægja. „Það var myrkur og enginn annar á ferð- inni,“ sagði hún. „Þetta voru ungir kátir strákar sem höfðu ekki í hyggju að særa neinn.“ Nekt leyfð ef hjól- að er með hjálm Ungir hjólreiðamenn sluppu með skrekkinn STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í Kírgistan saka Kurmanbek Ba- kiyev, forseta landsins, um að hafa látið myrða blaðamanninn Gennadi Pavlyuk þegar hann var í við- skiptaferð í Kasakstan, en tals- maður forsetans vísar ásökunum á bug. Morðið var hrottalegt. Skömmu eftir komuna til Almaty í Kasakstan var Gennadi Pavlyuk, með hendur og fætur bundin saman, kastað út um glugga íbúðar á sjöttu hæð. Hann lést af sárum sínum í fyrra- dag. Hann var öflugur stjórnarand- stæðingur og var meðal annars með í undirbúningi þess að opna frétta- vef málstaðnum til stuðnings. Pólitískt morð á blaðamanni? BANDARÍSKA dómsmálaráðu- neytið óttast að fyrirhuguð sam- vinna nokkurra flugfélaga, þar á meðal American Airlines, British Airways og Iberia, á nokkr- um flugleiðum hafi skaðleg áhrif á samkeppnina og geti leitt til allt að 15% hækkunar á farseðlum. Tals- menn flugfélaganna vísa þessu á bug og telja að samkomulagið verði samþykkt. Ellefu flugfélög taka þátt í um- ræddu samstarfi, Oneworld Alli- ance. Samkeppnisstofnun, sem heyrir undir bandaríska dómsmálaráðuneytið, lagði fram ákveðnar tillögur vegna samstarfs- ins og ráðuneytið hefur óskað eftir takmörkunum á þeim, en sam- göngustofnun tekur endanlega ákvörðun. AA, BA og Iberia gerðu skrif- legan samning um samstarf í fyrra um flug milli Norður-Ameríku og Evrópu til þess að mæta auknum eldsneytiskostnaði og öðrum áföll- um. Í október sl. varaði Evrópu- sambandið flugfélögin við vegna samningsins og sagði að hann gæti brotið samkeppnislög. Óttast hækk- un vegna samvinnu UNDANFARNA daga hafa náttúruhamfarir víða haft áhrif á líf fólks á annan veg en það hef- ur sjálft kosið. Þúsundum hefur verið gert að yfirgefa heimili sín vegna goss í eldfjallinu Mayon suður af Ma- nila á Filippseyjum. Vetrarhörkur hafa kostað tugi manns lífið í Evrópu og Bandaríkjunum. Feneyjar sluppu ekki við snjókomuna og þar olli flóð í gamla bænum nokkrum vandræðum í gær. Ferðamenn sem aðrir þurftu að vaða til að kom- ast leiðar sinnar en yfirborð vatnsins var 143 cm yfir sjávarmáli. Náttúruhamfarir víða um heim í aðdraganda jólanna Ferðamenn kynnast flóði í Feneyjum Reuters BRETI sem missti næstum sjón á öðru auga fyrir 15 ár- um eftir að hafa fengið ammóníak í augað hefur fengið sjónina á ný eftir aðgerð á stofnfrumum. Maðurinn, sem er 38 ára, ætlaði að stilla til friðar í slagsmálum tveggja manna, þegar annar þeirra spraut- aði ammóníaki á hann. Hornhimna annars augans skað- aðist og maðurinn fann stöðugt til þegar hann blikkaði auganu eða horfði í skært ljós. Læknar læknuðu meinið meðal annars með því að nota stofnfrumur úr hinu auganu. Sex mánuðum síðar var sjónin nær eins góð og fyrir árásina. Fékk sjónina á ný Auga Aðgerð heppnaðist vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.