Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
HLEGIÐ var að kappklæddum blaðamanni þar sem hann
skalf sem hrísla í frostinu og taldi hausa í heitum potti yl-
strandarinnar í Nauthólsvík um hádegisbil í gær. Lax-
ableikir líkamar voru alls staðar um kring og nokkrir hvít-
ir á göngu út í sjó. Sífellt fleiri sækja í sjóinn á
Þorláksmessu til að eiga kalda kyrrðarstund fjarri al-
ræmdu jólastressinu.
Vel á annað hundrað manns skelltu sér í sjóinn á meðan
blaðamaður norpaði og saup á heitu súkkulaði. Örlaði á
skömm þegar telpur tvær á baðfötunum einum fata
skokkuðu framhjá og stungu sér til sunds. Steininn tók úr
þegar þær glaðlegar gæddu sér á frostpinna að sundinu
loknu.
Þá hlakkaði í sjóförum þegar þeir mættu til búnings-
herbergja og heyrðu að sjávarhiti væri við frostmark.
„Núll gráður. Það verður þá vonandi frost og krapi á ný-
ársdag,“ sagði keppnismaður mikill sem greinilega kallar
ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að synda í sjó.
Þess ber að geta að frost var á bilinu fimm til átta gráð-
ur í gær. Sjósundfólk virðist að einhverju leyti ofurmann-
legt.
Eftir sundið settust menn svo í heita pottinn, sáttir þótt
þröng væri á þingi. Boðið var upp á heitt súkkulaði og pip-
arkökur auk þess sem Gerður Kristný las jólaljóð yfir
mannskapnum. andri@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Lesið yfir Rithöfundurinn Gerður Kristný las upp jólaljóð sem fylgdi jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Gestir supu á heitu súkkulaði og yngsta kynslóðin nartaði í frostpinna.
Í land Eftir að hafa stokkið í sjóinn svömluðu fjallhressir karlmennirnir um stund. Einn þoldi þó ekki við og lagði fyrr af stað í land.
Jól í sjó Þessa fjórar hressu konur nutu sín vel í ísköldum sjónum og busluðu frá sér stressið. Ekki voru allir sundkappar með hettu en báru þess í stað viðeigandi höfuðfat, þ.e. jólasveinahúfu.
Laxableikir líkamar
við ylströndina
Zona Industrial da Mota • Apart. 136 - 3834-909 ILHAVO - Portugal • Telef. 234 326 560 / 1 • Fax 234 326 559
• Unninn úr ferskum þorski
• Veiddur á hinum köldu og hreinu hafsvæðum Íslands og
Noregs
• Blóðgaður um borð
• Flattur og saltaður og látinn verkast a.m.k. í 90 daga
• Þannig öðlast fiskurinn hinn rétta þéttleika fyrir útvötnun svo
að þú að lokum getir notið hins frábæra hefðbundna saltfisks.
Gleðilega hátíð - byrgjar, vinir og aðrir Íslendingar
Saltaður og þurrkaður þorskur
- Gadus Morhua morhua