Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
LANDSPÍTALINN hyggst ná fram
sparnaði á komandi ári sem nemur
um 3,2 milljörðum króna. Það svar-
ar til um 10% af útgjöldum spítalans
á þessu ári. Hagræðingaraðgerð-
irnar eru útlistaðar á vef spítalans
en Björn Zoëga, forstjóri LSH, birti
þær í gær með vikulegum pistli sín-
um. Björn segir að ekkert á þessum
lista eigi að koma starfsfólki á óvart,
miðað þá kynningu sem aðgerðirnar
hafa fengið innan spítalans. Fyrir
liggur að einhverjir starfsmenn
munu missa vinnuna en að sögn
Björns má búast við að fækkað
verði um 200 stöðugildi á LSH árið
2010, miðað við fyrirliggjandi áætl-
un. Stærstur hluti af því næst með
starfsmannaveltu en til einhverra
uppsagna gæti komið, segir Björn.
„Reynt verður að útvega fólki önnur
störf innan spítalans, það er alltaf
töluverð hreyfing á okkar fólki,“
segir Björn. Alls eru stöðugildi á
spítalanum um 3.900 og fjöldi
starfsmanna kringum 5.000 manns.
Með almennum aðgerðum á að ná
fram nærri tveggja milljarða króna
sparnaði. Að stærstum hluta með
minnkandi yfirvinnu, eða 575 millj-
ónir, og rúmar 200 milljónir nást
með því að draga úr vakta- og
launakostnaði lækna. Sömu upphæð
á að ná fram með minni viðhalds-
kostnaði, innkaupum og eigna-
kaupum.
„Sparnaðarkrafan er ótrúlega há.
Við höfum ekkert val, við verðum að
ná okkar markmiðum, ná að fylgja
fjárlögum og einbeita okkur að ör-
yggi sjúklinga,“ segir Björn í pistli
sínum. Leiðarljós hagræðingar-
aðgerðanna sé að vera innan fjár-
laga ársins 2010. bjb@mbl.is
Spara á 3,2 milljarða kr.
Rík krafa um meiri sparnað á Landspítalanum á næsta ári
Stöðugildum gæti fækkað um 200 en eru um 3.900 í dag
Sparnaður á LSH 2010
milljónir kr.
Almennar aðgerðir 1.932
(- þar af skert yfirvinna 576)
Skurðlækningasvið 346
Stoðþjónusta 277
Lyflækningasvið 227
Rannsóknasvið 145
Kvenna- og barnasvið 138
Geðsvið 108
Bráðasvið 100
Vísinda- mennta- og gæðasv. 15
VIÐGERÐUM er nánast lokið í Höfða en um þrír mán-
uðir eru liðnir síðan miklar skemmdir urðu þar í bruna.
Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, forseta borg-
arstjórnar, munu flutningar á innanstokksmunum í
húsið klárast á milli jóla og nýárs þannig að hægt verði
að taka Höfða í notkun í byrjun nýs árs. Höfði verður
því klár fyrir annan leiðtogafund Bandaríkjanna og
Rússlands, ef sú staða kemur upp.
„Þetta hefur allt gengið samkvæmt áætlun og í raun
betur en það. Þarna hafa framúrskarandi iðnaðarmenn
og verkamenn verið að störfum og vil ég hrósa þeim
sérstaklega,“ segir Vilhjálmur. Viðgerðirnar utan á
húsinu og inni í því hafa miðast við að færa það allt til
fyrra horfs. Þó eru lítils háttar breytingar gerðar að
innan, eins og með nýrri hurð á milli herbergja. Allt
hefur verið málað upp á nýtt og er kominn á svipaður
litur og þegar Ronald Reagan og Mikaíl Gorbatsjov
áttu sögufrægan fund í Höfða árið 1986.
Ekki liggja fyrir tölur um endanlegt tjón Reykjavík-
urborgar en húsið er tryggt hjá VÍS. Mun tryggingin
dekka tjónið að langmestu leyti.
Viðhafnarstofan í Höfða er tilbúin en í gær skoðuðu
Trausti Sigurðsson yfirsmiður, Anna Karen Kristjáns-
dóttir móttökustjóri og Jón Þ. Einarsson húsvörður
fráganginn. Þau voru, líkt og Vilhjálmur, mjög ánægð
með hvernig til hefur tekist. bjb@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Viðhafnarstofan klár í Höfða
TÖLUVERT er um að verðmætum
sé stolið úr yfirhöfnum fólks en
lögreglan hefur fengið margar slík-
ar tilkynningar að undanförnu. Sér-
staklega á þetta við um verðmæti
sem hafa verið skilin eftir í yf-
irhöfnum í fatahengjum sam-
komustaða, t.d. á hótelum og ann-
ars staðar þar sem salir eru leigðir
út undir samkvæmi. Einnig hefur
verðmætum verið stolið með sama
hætti úr yfirhöfnum í kirkjum.
Lögreglan biður fólk að hafa þetta
hugfast og skilja ekki veski eða
önnur verðmæti eftir í yfirhöfnum.
Lögreglan varar líka eigendur og
umráðamenn ökutækja við því að
skilja verðmæti eftir í bílum. Sé
slíkt óumflýjanlegt er mikilvægt að
slíkir hlutir séu ekki í augsýn. Tals-
vert er um innbrot í bíla á höf-
uðborgarsvæðinu en þjófum er ekk-
ert heilagt og þeir stela jafnvel
jólagjöfum ef því er að skipta, segir
í tilkynningu frá lögreglunni.
Sömuleiðis vill hún benda á mik-
ilvægi þess að skilja bíla frekar eft-
ir á upplýstum bílastæðum, ef þess
er nokkur kostur. Þjófum finnst
nefnilega fátt betra en að athafna
sig í myrkrinu þar sem ekki sést til
þeirra.
Verðmætum stol-
ið úr yfirhöfnum
Um leið og við þökkum fyrir samstarfið á árinu
sem er að líða óskum við landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.
Ármúla 30 | 108 Reykjavík
Sími 560 1600 | www.borgun.is
Gleðilega hátíð
og farsælt nýtt ár
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Óskum viðskiptavinum okkar nær
og fjær og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
Gleðileg Jól
Óskum öllum vinum,
blaðberum og vandamönnum
Gleðilegra Jólahátíðar og
farsæls komandi árs.
Þökkum liðin ár.
Umboðsm. mbl. á Akureyri, Rúnar og Guðlaug.