Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 44
ÞAÐ er hið nýstofnaða útgáfufyr- irtæki Borgin sem trónir í tveimur efstu sætunum hvað Tónlistann varðar en á þeirra vegum er platan Terminal með Hjaltalín, sem skipar efsta sætið, og svo IV, með reggí- sveitinni Hjálmum, en hún er í öðru sæti. Jólagjafasalan er nú komin á fullan snúning og innlendar plötur áberandi og á Sena meira en helm- inginn af þeim. Dikta er þá þaul- sætin í fyrsta sæti lagalistans með „From now on“ og haldast efstu þrjú sætin óbreytt frá því í síðustu viku. Tvö ný jólalög gera þó skurk á listanum; söngglaði langintesinn                                         !   "  # #$   $   % & $%'( )* +  $ %"  $% ,-.($%'(  $           ! "#$ %   &  ! ' ( )*+   " ,-#* .$ "#$ /   )!0    1*  2#  3 !  4!  ' ( ! /  5    ' ) #* 67  4* 8 !#*+9 :47 ! & 4$ )*  ; !           !" # $%& ' ( )*+% ,    -  ' .  /0    12 3-  1 %   .  4   5 % 2 6 .% 7 8 . 9 - 88   : 0'  - -   5  . ; 5                 ' '       )/ 0#    !      ( 1 '  '+2  '+2                    !  ! .$ :*!    )*#* 1*#9 8 :!0 0 <   =!#**#  > ; 1 1 ? %$  ? $   "#$ %  @ 5  7!#* 1  )  , # A*><=() " ,-#*  :  B 2 AC D <   0  *  67!  4$ (;! ?!  " "7!   *+ ) C ?  (  < = > ? .@  . 5   8% !   % A +       . B  @ $ % % 7'+ 5 C    D % $ 2 2 D % $2 %    6   7  E #  - B @ ( 2 ( '    8 88  ;@ 1 1  1 / '= 2 E-  12 ; % $ 2 D            0# 3  ' ' $  )* ! 2$   '+2 '  $ 0#  )/ ! $  )*  !  '+2 4545 !     Jólin „borga“ sig Á toppnum Hjaltalín er í efsta sæti Tónlistans með Terminal. Sigurður Guðmundsson landar fjórða sætinu ásamt Memfísmafí- unni með laginu „Það snjóar“ og svo fer Veðurguðinn Ingó inn á listann með lagið „Jólakrakkar“. Að öðru leyti óskar skrásetjari þeim sem lesa gleði- og friðarjóla. Góðar stundir og takk fyrir að lesa. 44 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is HINN 10. nóvember árið 1944 var skip Eimskipafélagsins, Goðafoss, á leið til Íslands í skipalest banda- manna. Þegar skipin komu fyrir Garðskaga skaut þýski kafbáturinn U-300 tundurskeyti í Goðafoss og grandaði honum, skipið sökk á örfá- um mínútum. Alls fórust 42 karlar, konur og börn í árásinni. Þetta er mesta mannfall sem Íslendingar urðu fyrir í seinni heimsstyrjöldinni. Tíu ára starf að baki Um jólin verður sýnd í Sjónvarp- inu heimildarmynd í tveimur hlutum um þennan skelfilega atburð, heim- ildarmynd sem ber nafnið Árásin á Goðafoss. Leik- stjóri mynd- arinnar er Björn Brynjúlfur Björnsson en Jón Ársæll Þórðarson og Þór White- head unnu hand- ritið. Um tíu ára starf liggur að baki heimild- armyndinni. Jón Ársæll segir að vinna við myndina hafi byrjað í framhaldi af þáttum um 20. öldina sem hann vann með Birni fyrir Stöð 2. „Þar kynntumst við nokkru af fólki, og ég hafði viðtöl við það sem hafði lifað árásina af,“ segir Jón Ár- sæll. „Við náðum viðtölum við alla sem eru á lífi og lifðu árásina af og svo jafnframt þá sem voru um borð í þýska kafbátnum, U-300, og eru enn á lífi. Við fylgjum síðustu för skips- ins, frá New York til Reykjavíkur, en skipið kom aldrei til hafnar, því var sökkt út af Garðskaga.“ Viðvaningsleg eftirför Jón Ársæll segir að í raun hafi far- ist á fimmta tug manna í árás þýska kafbátsins því bresku olíuflutninga- skipi í skipalestinni, Sirvan, hafi einnig verið grandað og þá hafi dráttarbátur horfið með manni og mús. Ekkert sé vitað um afdrif hans en Þjóðverjar kannist ekki við að hafa skotið á hann. „Þetta var mikill darraðardans, vitlaust veður og mikið af tundur- duflum á reki,“ segir Jón Ársæll. Tveir þýskir sjóliðar sem voru um borð í kafbátnum eru á lífi og eru sýnd viðtöl við þá í myndinni. Jón Ársæll segir þá muna þennan atburð mjög vel. „Þeir segja að kafbáturinn hafi aldrei verið í neinni hættu þó svo að eftirförin hafi verið svakaleg. Það fóru öll skip á svæðinu í það að leita að kafbátnum og henda djúp- sprengjum á hann en þeir segjast aldrei hafa verið í hættu, hafi fundist þessi eftirför vera mjög viðvanings- leg frá hendi bandamanna.“ Margir með samviskubit – Hvernig var að ræða við eftirlif- endur árásarinnar? „Það er greinilegt að þetta fólk hefur aldrei komist yfir þetta í raun og veru. Þessi saga fylgir því eins og dökkur skuggi enda getur maður vel ímyndað sér það, það voru margir líka með samviskubit, það fórust þarna börn fyrir framan augun á þeim og menn gátu ekkert gert,“ svarar Jón Ársæll. Þarna hafi farist konur og börn og skipið sokkið á ein- um sjö mínútum. Eftirlifendum hafi þó ekki verið komið til bjargar fyrr en tveimur tímum seinna. Dökkur skuggi Goðafoss Heimildarmynd í tveimur hlutum um þann örlagaríka atburð þegar þýskur kafbátur grandaði Goðafossi árið 1944 verður sýnd í Sjónvarpinu um jólin Goðafoss Ljósmynd af skipinu við bryggju í Hamborg. Flak skipsins hefur ekki fundist enn þrátt fyrir mikla leit. Jón Ársæll Fyrri hluti Árásarinnar á Goðafoss verður sýndur á jóladag kl. 19.25 en seinni hlutinn á nýársdag kl. 19.30. Tónlistarkonan Margrét Krist-ín Sigurðardóttir eða Fabúlaeins og hún kallar sig sendinýverið frá sér sína fjórðu sólóplötu, nefnist hún In Your Skin. Fabúla sagði sjálf í viðtali í tengslum við útkomu plötunnar að lög sín ein- kenndust af tregablandinni leikgleði og held ég að fátt lýsi þeim betur. Þrátt fyrir að lögin séu róleg eru þau líka full af fjöri og fegurð, jafnvel stríðni. Til dæmis er fyrsta lagið, „Monster“, létt lag og leiðir hlustand- ann skemmtilega inn í plötuna, áhrifa frá kántrí- og þjóðlagatónlist gætir í sumum laganna og er vel unnið með það. Björt og einstök söngrödd Fabúlu skemmir svo ekki fyrir. Fabúla semur öll lögin tólf á In Your Skin og textana við ellefu þeirra, Frie- derike Hesselmann á textann við „Little Moon“. Það var ljóst fyrir löngu að Fabúla er mikill textasmiður og segja sumir þeirra miklar sögur, eru meiri ljóð en lagatextar og gerir það hlustunina enn ánægjulegri. Eini galli plötunnar að mínu mati er að sum lögin skortir frumleika, er ég þá aðallega að tala um lögin „With His Eyes Closed“ og „Don’t Wake Me Up“, þau eru skemmtileg áheyrnar en mér fannst ég hafa heyrt þau oft áður þegar ég heyrði þau í fyrsta sinn frum- samin og flutt af Fabúlu. Fabúla tileinkar foreldrum sínum plötuna og eru tvö síðustu lögin á henni samin við ljóð sem hún samdi til þeirra á gullbrúðkaupsafmælinu. Lög- in tvö eru falleg og textarnir fullir af ást og þakklæti, og þótt þau séu einu lögin á plötunni sungin á íslensku skemmir það ekki heildarsvipinn, þau falla vel inn í rennslið og gera plötuna bara persónulegri. Upptökustjóri In Your Skin er Birk- ir Rafn Gíslason og er öll vinnsla plöt- unnar til mikillar fyrirmyndar en tón- listin er fyrst og fremst hugljúf og áheyrileg. Allt til fyrirmyndar Geisladiskur Fabúla – In Your Skin bbbmn INGVELDUR GEIRSDÓTTIR TÓNLIST Í FYRRI hluta heimildarmynd- arinnar er för Goðafoss rakin, frá því hann lagði úr höfn í New York þar til honum var sökkt út af Garð- skaga. Í seinni hlutanum eru viðtölin og leitinni að flakinu gerð góð skil en hún hefur staðið yfir í 65 ár. „Menn byrjuðu fljótlega eftir að skipið sökk að leita að flakinu því um borð í skipinu voru mikil verð- mæti. Sú leit stendur í raun enn og Landhelgisgæsla Íslands hefur að- stoðað okkur og við fylgst með mikilli leit, í raun og veru,“ segir Jón Ársæll. Margar dramatískar og dularfullar sögur eru til tengdar skipinu, að sögn Jóns Ársæls. „Til dæmis líkin, það rak aðeins tvö lík á land, af öllum þessum fjölda fólks sem fórst, tveir litlir drengir,“ segir Jón Ársæll, synir hjónanna Friðriks Ólasonar og Sig- rúnar Briem. Þá hafi Goðafoss bjargað 19 mönnum af brennandi olíuskipi um hálftíma fyrir árásina. Aðeins tveir þeirra lifðu árásina af og má segja að hinir hafi sannarlega ver- ið feigir. Enn leitað að flaki skipsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.