Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 Jóladansleikur Milljónamæringanna Í Súlnasal Hótel Sögu annan í jólum Milljónamæringarnir verða í hátíðarskapi á hinum árlega jóladansleik í Súlnasalnum annan í jólum, 26. desember. Húsið opnar kl. 22. Miðaverð aðeins 2.000 kr. Miðasala í Súlnasal frá kl. 13 samdægurs. Söngvarar eru Bogomil Font, Bjarni Arason og Raggi Bjarna. Upplýsingar í síma 525 9930 og á hotelsaga@hotelsaga.is. Minnum einnig á nýársdansleik Millanna nýárskvöld í Súlnasal. PPPPPPPIII PPPPPPPPAAAAAAAA RRRR \ TB W A • SÍ A • 9 2 5 2 6 PI PA R/ TB W A SI A 92 52 6 Á SUNNUDAG, 27. desember, verður haldinn fjölskyldudagur í Víkinga- heimum í Reykjanesbæ. Víkingar verða á svæðinu og segja frá jólahá- tíð heiðinna manna og hver veit nema frændur þeirra jólasvein- arnir kíki í heimsókn. Þá verður boðið upp á mat að hætti víkinga og jafnvel verða spiluð lög á vík- ingahljóðfæri. Hátíðin verður á milli kl. 12.00 og 16.00 og er frítt inn fyrir börn auk þess sem verður 2 fyrir 1- tilboð fyrir fullorðna. Víkingarheimar eru opnir alla virka daga kl. 11.00 til 18.00. Fjölskylduhátíð í Víkingaheimum PAPCO efndi í desembermánuði til styrktarsöfnunar þar sem ein rúlla af hverri seldri pakkningu af hrein- lætispappír í jólaumbúðum rann til líknarfélaga sem úthluta nauð- synjavörum til bágstaddra. Söfnunin gekk vonum framar og er styrktarpappírinn nú víðast hvar uppseldur. Þúsundir rúlla af hrein- lætispappír hafa í staðinn runnið til heimila með lítil efni í desember. Það voru mæðrastyrksnefndir um landið, Rauði kross Íslands, Hjálp- arstofnun kirkjunnar og Fjöl- skylduhjálp Íslands sem sáu um að koma hreinlætispappírnum til skila. Eggert Jóhannesson Gleði Jólasveinar og gefendur. Margir keyptu styrktarpappír SJÁLFSTÆÐISKONUR stóðu ný- lega fyrir söfnun til styrktar Mæðra- styrksnefnd undir yfirskriftinni „Tökum höndum saman – styðjum barnafjölskyldur í vanda“. Samtals söfnuðust tæpar þrjár milljónir króna, eða samtals 2.891.788 kr. Ætla má að fimm til sex þúsund ein- staklingar hafi lagt sitt af mörkum fyrir söfnunina. Sjálfstæðisflokk- urinn greiðir allan kostnað vegna söfnunarinnar og því rennur fram- lagið óskipt til fimm mæðrastyrks- nefnda; Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Mæðrastyrksnefndar Akraness, Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar og Mæðrastyrks- nefndar Kópavogs. Söfnuðu fyrir Mæðrastyrksnefnd HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, 1717, er opinn allan sólarhringinn, allan ársins hring. Númerið er gjaldfrjálst úr öllum símum og ekki kemur fram á símreikningi að hringt hafi verið í númerið. Einnig er hægt að hringja í 1717 án inn- eignar í gsm-símum. Hjálparsíminn veitir fólki ráðgjöf og stuðning t.d. vegna þunglyndis, kvíða eða vanlíðunar og veitir upp- lýsingar um samfélagsleg úrræði. Fyrir jól og áramót er hægt að fá upplýsingar um matarúthlutanir og hvenær ýmis athvörf eru opin. Í fyrra bárust um 500 hringingar yfir hátíðisdagana. Innhringjendur voru afar þakklátir fyrir að geta rætt við einhvern um mál sín á þessum tíma árs, sem er oft erfiður, m.a. vegna ástvinamissis, fjöl- skulduerja, fátæktar eða neyslu. Hjálparsíminn 1717 opinn um hátíðirnar „SKREYTINGAR í gluggum versl- ananna nú fyrir jólin hafa verið fal- legar og borgarbragurinn verið okk- ur að skapi,“ segir Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri Mið- borgarinnar okkar. Tilkynnt var í gær um niðurstöðu í vali á fallegasta jólaglugga miðborgarinnar en Mið- borgin okkar veitti viðurkenninguna að fenginni niðurstöðu valnefndar. Aðstandendur keppninnar óskuðu eftir tilnefningum um fallegasta gluggann og frá valnefnd komu þrjár tilnefningar. Það voru Ey- mundsson í Austurstræti, Sævar Karl við Bankastræti og 38 þrep við Laugaveginn. Sú síðastnefnda sigr- aði, en þar skapaði Signý Kolbeins- dóttir hönnuður ævintýraheim sem birtist í gluggum verslunarinnar. „Þá þóttu ævintýralegar grímur úr heimi dýraríkisins ríma vel við út- stillingu Signýjar en veg og vanda af grímugerðinni á Ragnheiður Þor- grímsdóttir,“ segir Jakob Frímann. Hann segir þá sem komu að þessu verkefni afar ánægða með hvernig til tókst og samstarf Miðborgar- innar okkar og OR hafi verið með ágætum. „Jólaverslun í miðborginni hefur gengið vel, þrátt fyrir kulda síðustu daga. Jólaþorpið á Hljómalindar- reitnum hefur verið brennipunktur stemningar og viðburða og hefur verið mikið aðdráttarafl. Flestir virðast sammála um að jólaverslun í miðborginni hafi verið miklum ágæt- um og samkeppnin við stóru verslunarmiðstöðvarinar hefur gengið vel. Það ber ekki síst að þakka þeim mikla fjölda nýrra og skapandi verslana sem byggja af- komu sína á listrænu hugviti,“ segir miðborgarstjórinn. sbs@mbl.is Fallegasti jólagluggi verslana miðborgarinnar í 38 þrepum Morgunblaðið/Ómar Vel heppnaður Búðarglugginn hjá 38 þrepum við Laugaveginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.