Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 31
sem hann ætlaði sér. Þegar hann
hafði aldur til fór hann að dæmi eldri
bræðra sinna og keypti sér skelli-
nöðru sem hann notaði óspart til að
skreppa á æfingar eða til að hitta
okkur vini sína.
Á hverjum vetri komu danskenn-
arar frá Dansskóla Sigurðar í
Grundarfjörð og kenndu vinsælustu
dansana hverju sinni. Hér kom það
sér vel fyrir Krissa að vera fljótur,
því þegar bjóða átti upp stúlkunum
gilti að vera snar í að hlaupa yfir
dansgólfið. Stúlkurnar kunnu þessu
vel; Krissi var frábær dansari og það
var örugg ávísun á eftirsótt verðlaun
að dansa við hann.
Krissi var mikill dýravinur og
fannst sambýli manna og málleys-
ingja mjög mikilvægt. Hann taldi sig
lánsaman að búa á sveitabæ, í stöð-
ugu samneyti við dýr og vorkenndi
okkur hinum krökkunum sem bjugg-
um í þorpinu og fórum á mis við slíkt
kompaní. Hann varð alltaf mjög
hneykslaður og dapur þegar hann
heyrði af illri meðferð dýra og fannst
að sumir í sveitinni mættu hugsa
betur um dýrin sín.
Hann var mikill drengskaparmað-
ur og hafði ríka réttlætiskennd.
Hann þoldi ekki ef einhver var órétti
beittur og enn síður ef níðst var á
minnimáttar. Þá skarst hann hik-
laust í leikinn og skipti þá engu hvort
sá sem hrekkti væri stærri og sterk-
ari en hann. Hann mátti þola marga
pústrana fyrir þetta lífsviðhorf sitt,
en það skipti hann engu máli, virtist
algjörlega óttalaus gagnvart líkam-
legum sársauka og uppskar ómælda
virðingu okkar fyrir.
Hann var tryggur vinur vina sinna
og þótt mörg okkar flyttu burt úr
Grundarfirði að loknum grunnskóla
fylgdist hann vel með og vissi oft
mest um hvað allir í hópnum voru að
gera. Þetta kom berlega í ljós í sum-
ar þegar við hittumst á bæjarhátíð-
inni, Á góðri stund, í Grundarfirði.
Þar rifjaðist einnig upp hversu gott
lundarfar hann fékk í vöggugjöf og
átti auðvelt með að koma vinum sín-
um í gott skap með brosi og
skemmtilegheitum og oftar en ekki
var hann skotspónn eigin stólpa-
gríns.
Frammistaða hans á bæjarhátíð-
inni í sumar verður lengi í minnum
höfð, en þar fór hann fór á kostum
ásamt félögum sínum í bláa hverfinu.
Krissa verður sárt saknað af okk-
ur bekkjarsystkinunum. Fjölskyldu
hans sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Árgangur ’64, Grundarfirði,
Orri Árnason og
Sólrún Halldórsdóttir.
Ég vil með nokkrum orðum kveðja
Kristmund Harðarson, eða Krissa
eins og hann var kallaður, sem varð
bráðkvaddur aðfaranótt sunnudags
13. desember sl. Kallið kom óvænt
og var eitthvað sem maður átti alls
ekki von á.
Ég kynntist ekki Krissa fyrir al-
vöru fyrr en hann fetaði í fótspor
konu sinnar Kollu og gekk í kirkju-
kórinn þegar við æfðum fyrir söng-
för til útlanda. Hann kom á óvart
sem tenór og naut þess að syngja
með okkur en mér vitanlega hafði
hann ekki áður sungið með kór.
Hann var einnig með í fjáröflun
kirkjukórsins fyrir söngferðina og
var í sönghópi sem gekk undir nafn-
inu „The Holy People“. Þar settum
við upp skemmtidagskrá með lögum
Ríó tríós og sló hann í gegn þegar
hann söng lagið „Enski hermaður-
inn“ og vakti athygli fyrir skemmti-
lega túlkun sína á því. Mörgum árum
síðar tókum við lagið á Krákunni og
mér til mikillar furðu kom í ljós að
hann kunni ennþá textann algjörlega
línu fyrir línu!
Eftirminnileg er ferð okkar með
kirkjukórnum til Barcelona árið
2002. Þar fórum við Krissi og Gunni
Ragga að skoða hinn nýja leikvang,
Barcelona Camp Nou, og þótti okkur
það einn af hápunktum ferðarinnar.
Krissi spilaði sjálfur fótbolta og var
virkur í fótboltanum á Grundarfirði,
bæði sem spilari og tippari.
Annars starfaði Krissi sem raf-
virki með eigin rekstur og var alltaf
boðinn og búinn að aðstoða ef þurfti.
Nú síðast þegar við Svana gerðum
endurbætur á húsinu á Sæbóli árið
2004 og hann stökk ítrekað með
stuttum fyrirvara til að aðstoða okk-
ur með ljósin, var ótrúlega snöggur
að leysa úr málunum og farinn með
það sama.
Krissi var einn af þessum einstak-
lingum sem kannski ber ekki mikið
á, en hann var einstaklega ljúfur við
alla, alltaf hress, gerði grín að sjálf-
um sér og öðrum. Hann var hjálp-
samur, liðlegur, vinur vina sinna og
alltaf boðinn og búinn að aðstoða við
hvað sem var, hvenær sem var.
Ég minnist alveg sérstaklega hvað
Krissi kunni ógrynni af textum og
lögum. Það var erfitt að láta hann
standa á gati í texta. Ég man alltaf
hvað Krissi var ánægður þegar ég
lét kórinn syngja „You will never
walk alone“ en hann var eldheitur
Liverpool-aðdáandi.
Við Svana viljum þakka Krissa
fyrir góðar stundir, góð kynni og
ljúfmennsku um leið og við vottum
Kollu og börnum þeirra okkar inni-
legustu samúð, sem og öðrum vinum
og vandamönnum. Missir þeirra og
okkar er mikill. Hvíli hann í friði.
Friðrik Vignir Stefánsson.
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
MultiOne fylgihlutir
Eigum á lager mikið úrval fylgihluta
fyrir MultiOne fjölnotavélarnar.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
MultiOne
Eigum á lager nýjar MultiOne
fjölnotavélar í ýmsum stærðum.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri- Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 fm
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is
Leó, s. 897- 5300. Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð kr
10.900. pakkinn með poka,
strengjasett og stilliflautu. 4/4
stærð 15.900.- Rafmagnsgítar-
pakkar frá kr. 39.900. Þjóðlaga-
gítarpakkar frá 19.900.-
Hljómborð frá kr. 8.900.-
Trommusett kr. 79.900.- með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is0
Atvinnuhúsnæði
Til sölu eða leigu
Súðarvogur - Kænuvogur 250 fm,
tvær hæðir, götuhæð og 2. hæð.
Innkeyrsludyr, 3ja fasa rafmagn á
1. hæð. Íbúð eða skrifstofa á 2. hæð.
Skoðum öll skipti. Upplýsingar í síma
695 0495.
Bílskúr
Flash 2 Pass fjarstýringar
Fjarstýringar f. bílskúrshurðaopnara.
Virkar með ljósabúnaði bílsins eða
mótorhjólsins. Kynntu þér málið.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið – Skór, leður
Svartir leðurskór. St. 36-41.
Verð kr. 14.400.
Sími 588 8050.
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið - Kjóll
Kjóll fyrir jólin eða áramótin.
Litur: Svart. St. S – XXL.
Verð kr. 13.990,-
Sími 588 8050.
Bátar
Sennilega ódýrustu skrúfurnar
á Íslandi
Útvega koparskrúfur á allar gerðir
báta, beint frá framleiðanda.
Upplýsingar á www.somiboats.is
Óskar, 0046704051340.
Bílar
Stór sparibaukur til sölu
Peugeot 307 SW, 2 lítra 136 hk
díselvél. Nánari upplýsingar í síma
663 5575 og á gis@rafpostur.is
Bílaþjónusta
!
"
#
$%&
'
( ) * +
!" # $% # &
# '( &' #" #
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Kerrur
Kerrur sem hægt er að fella
saman - Orkel FoldTrailer kerrurnar
er hægt að fella saman, þær taka því
lítið pláss í geymslu.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
Varahlutir
Með þessum fátæklegu orðum
langar mig að minnast tengdaföður
míns. Arnór var alltaf kallaður afi á
mínu heimili, jafnt af mér sem börn-
unum mínum. Hann var samt ekki afi
minn, heldur fyrrverandi tengda-
pabbi.
Í mínum huga er afi bara fluttur og
í dag hefst nýtt líf hjá honum. Nonni,
Simmi, Raggi og amma Heiða njóta
samvista hans núna, ásamt öllum
þeim sem á undan eru farnir. Það er
líka mín trú að núna sé gaman hjá
afa, þarna hinum megin. Hann var
nefnilega ekki mikið fyrir að vera
lengi á sama stað og núna getur hann
aldeilis ferðast að vild, frjáls og óháð-
ur.
Afi var mjög lifandi maður. Þegar
ég lít til baka, þá var hann alltaf að
fara eitthvað, gera eitthvað, nú eða
Arnór
Sigurðsson
✝ Arnór Sigurðssonfæddist í Ystahús-
inu í Hnífsdal 20.
mars 1920. Hann
andaðist sunnudag-
inn 13. desember síð-
astliðinn. Útför Arn-
órs fór fram frá
Guðríðarkirkju í
Grafarholti 22. des-
ember.
Eftirfarandi minn-
ingargrein er end-
urbirt þar sem síðari
hluti greinarinnar
féll út. Hlutaðeig-
endur eru beðnir velvirðingar á
mistökunum.
bara að leggja kap-
al við borðstofu-
borðið. Honum
þótti ákaflega gam-
an að dansa, ferðast
um landið, að
ógleymdu bingóinu
og öllum styttri bíl-
túrunum. Hann
naut þess í botn
þegar hann fékk að
spila á munnhörp-
una fyrir annað
fólk, því ekki leidd-
ist honum þegar at-
hyglin beindist að
honum.
Afi var einn af þeim mönnum sem
þurfa alltaf að vera að gefa. Ekki
vegna þess að hann væri svo ríkur,
nei öðru nær, heldur vegna þess að
það var hans líf og yndi. Aldrei hitti
hann börnin mín án þess að gauka
að þeim pening og ef hann vann eitt-
hvað í bingói eða happdrætti gaf
hann öðrum með sér og það var
ósjaldan sem hann vann eitthvað.
En hann gaf ekki bara veraldlega
hluti, hann gaf af sér líka á sinn hátt,
með nærveru sinni og kærleika.
Margar skemmtilegar sögur eru til
um afa og munu þær lifa í minning-
unni núna eins og dýrmætur fjár-
sjóður.
Um leið og ég kveð tengdaföður
minn vil ég senda eftirlifandi börn-
um hans, Möllu, Mummu og Sigga,
mínar innilegustu samúðarkveðjur
og öllu þeirra fólki.
Sigrún Baldvinsdóttir.