Morgunblaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Ísland er herlaust land að fornu ognýju. Þar sjást því ekki háreistir
kastalar á hvurju strái, stolt merki
um tign, vald og vígbúnað. Og eins
og endranær er til á þessari fullyrð-
ingu og reglu undantekningin sem
sannar hana.
Því sé grannt skoðað kemur í ljósað hér hefur verið her í hundrað
ár og situr enn í
sínum kastala.
Hjálpræðisher og
kastali hans.
Þangað sækja
sumir þeirra sem
finna ekki annað
skjól þegar fjöld-
inn er allur með
hátíðarbrag.
Aðrir eru einnigtil staðar fyrir þá sem fara á mis
við flest. Kirkjan, Vernd, Samhjálp,
Rauði kross og Mæðrastyrksnefnd
koma handahófskennt upp í hugann,
einnig sem fulltrúar annarra, sem
láta gott af sér leiða.
Og bak við þessi nöfn er fólk, fórn-fúst fólk og gott. Bæði það sem
er að inna af hendi sín daglegu störf
með þessari þjónustu og hinir sem í
sínum tíma og á sínum forsendum
leggja svo mikið af mörkum.
Þarna er að minnsta kosti vísir aðskjaldborg, þótt aðrar láti bíða
eftir sér. Og hún er ekki ný af nál-
inni.
Og þangað geta þeir leitað skjólsog stuðnings, sem fátækt þjak-
ar, einstæðingsskapur eða
bjargræðisleysi. Þar er hjálp-
arhellum að mæta sem ekki hafa
gleymt þeim sem veikast standa, líka
um jól.
Verkefni okkar hinna má því ekkivera minna en það að gleyma
ekki að leggja hjálpendunum lið og
auðvelda þeim verkið og létta þeim
róðurinn.
Herkastalinn við
Aðalstræti
Hjálparhellur
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -5 snjókoma Lúxemborg 0 þoka Algarve 17 skúrir
Bolungarvík -7 snjókoma Brussel 1 léttskýjað Madríd 10 léttskýjað
Akureyri -10 snjókoma Dublin 1 skýjað Barcelona 14 skýjað
Egilsstaðir -10 léttskýjað Glasgow -2 heiðskírt Mallorca 17 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -5 alskýjað London 4 léttskýjað Róm 13 léttskýjað
Nuuk -7 skafrenningur París 4 skýjað Aþena 16 skýjað
Þórshöfn 1 léttskýjað Amsterdam 0 heiðskírt Winnipeg -7 alskýjað
Ósló -8 skýjað Hamborg 0 þoka Montreal -10 snjókoma
Kaupmannahöfn 2 alskýjað Berlín 0 heiðskírt New York -6 heiðskírt
Stokkhólmur -3 skýjað Vín 6 skýjað Chicago -1 alskýjað
Helsinki 1 skúrir Moskva 1 alskýjað Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
24. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.01 1,4 11.20 3,2 17.42 1,3 23.55 3,0 11:24 15:32
ÍSAFJÖRÐUR 0.47 1,5 6.53 0,7 13.10 1,6 19.43 0,6 12:10 14:55
SIGLUFJÖRÐUR 3.35 0,9 9.25 0,4 15.49 0,9 21.57 0,3 11:55 14:36
DJÚPIVOGUR 2.01 0,6 8.10 1,6 14.37 0,6 20.49 1,5 11:02 14:52
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag (jóladagur)
Norðaustlæg átt, 10-15 m/s og
snjókoma eða él NV-til, en ann-
ars hægari og úrkomulítið.
Hvessir heldur við S- og A-
ströndina um og upp úr hádegi
með líkum á dálítilli snjókomu
eða slyddu. Dregur úr frosti,
einkum við ströndina.
Á laugardag (annar í jólum)
Norðaustlæg átt, víða 5-10 m/s
með éljum, en björtu S- og V-
lands. Frost 0 til 8 stig.
Á sunnudag, mánudag
og þriðjudag
Hægari norðlæg eða breytileg
átt og dálítil él, en áfram bjart
veður S- og V-lands. Kólnandi.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Viðvörun: Búist er við stormi á
Vestfjörðum í dag. Spá: Gengur
í norðaustan 18-25 m/s á Vest-
fjörðum, en hægari annars
staðar, einkum austantil. Snjó-
koma eða él fyrir norðan, en
bjart að mestu syðra, en líkur á
éljum vestanlands undir kvöld.
Frost víða 4 til 16 stig, kaldast
til landsins.
Blönduós | Selur lét líða úr sér á ís-
jaka skammt frá lögreglustöðinni á
Blönduósi nýverið. Hann veit það
eitt að hann er hólpinn á ísjaka í
jökulánni Blöndu í Austur-
Húnavatnssýslu.
Einn ágætur Blönduósingur
hafði á orði að þessi selur væri „Ice-
save“, þ.e. hólpinn á ísnum þó svo
að Hraunsbirnan sem nú dvelur
uppstoppuð á Hafíssetrinu sé stödd
í næsta nágrenni.
Selurinn
„Icesave“
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
„ÞAÐ ánægjulega við þetta er að við
finnum fyrir miklum áhuga heima-
manna í Winnipeg og víðar í Kanada
fyrir þessu flugi. Heimamenn leggja
til töluverðar fjárhæðir í markaðs-
starf og þetta fer vel af stað,“ segir
Matthías Imsland, framkvæmda-
stjóri Iceland Express, en félagið hóf
í gær sölu á áætlunarferðum til
Winnipeg í Kanada næsta sumar.
Fljúga á einu sinni til tvisvar í
viku, á miðvikudögum og laug-
ardögum, frá og með júníbyrjun
2010. Er Winnipeg 27. áfangastaður
Iceland Express en félagið hyggst
sem kunnugt er einnig hefja flug til
New York í Bandaríkjunum á kom-
andi ári. Að sögn Matthíasar er Ice-
land Express fyrsta evrópska flug-
félagið til að fljúga beint til Winnipeg
en Icelandair hefur flogið til Halifax
og Toronto í Kanada, svo dæmi sé
tekið.
Þjóðræknisfélag Íslendinga sá
ástæðu til að fagna þessari nýju flug-
leið sérstaklega með yfirlýsingu í
gær. Segir Almar Grímsson formað-
ur að beint flug til Winnipeg hafi
lengi verið eitt helsta baráttumál fé-
lagsins.
Í tilkynningu frá Iceland Express
um Kanadaflugið kemur m.a. fram
að mikill uppgangur hafi verið í
Winnipeg undanfarin misseri þrátt
fyrir efnahagslægð víðast hvar ann-
ars staðar. Hagur íbúanna hafi
vænkast, fasteignaverð hækkað og
atvinnuleysi sé hverfandi.
Um 1.300 þúsund manns búa í
Manitoba-fylki en Winnipeg er þar
höfuðborgin. Um 19% íbúanna, eða
um 250 þúsund manns, eru af erlend-
um uppruna. Hefur utanríkisráðu-
neytið áætlað að um hálf milljón nú-
lifandi Ameríkumanna eigi rætur
sínar að rekja til Íslands. Vestur-
Íslendingar hafa í auknum mæli
heimsótt Ísland á seinni árum, ekki
síst eftir að Vesturfarasetrið á Hofs-
ósi tók til starfa fyrir um 13 árum. Á
vegum þess hefur fjöldi Vestur-
Íslendinga komið til landsins og
margir farið héðan vestur. bjb@mbl.is
Iceland Express
flýgur til Winnipeg
Morgunblaðið/Kristinn
Winnipeg Fjöldi Vestur-Íslendinga
býr í höfuðborg Manitoba-fylkis.
Þjóðræknisfélagið
fagnar fluginu