Morgunblaðið - 24.12.2009, Síða 23

Morgunblaðið - 24.12.2009, Síða 23
isaðstöðu, útskýra Katrín og Stefán. Yfir sumarið er áhersla lögð á að fæða þá og hlúa að þeim. Í byrjun nóvember er aftur komið að sláturtíð og tekur hún tæpan mánuð. Eftir að dýrin hafa verið fláð eftir kúnst- arinnar reglum er fitan skafin af skinnunum, þau eru strekkt á þönur, þurrkuð og þeim pakkað. Þetta er styttri útgáfan af ári minkabóndans, því mörg önnur handtök falla til. Vísindin eru notuð við að velja lífdýr, en öll hafa dýrin sitt númer og saga fjölskyldunnar er skráð. Upplýsingar um frjósemi, stærð og gæði skinns eru nákvæm- lega færðar inn í tölvu og lífdýrin val- in eftir því hvaða áherslur er miðað við. Grænn búskapur „Mín skoðun er sú að minkarækt sé einn hlekkurinn í grænum bú- skap,“ segir Katrín. „Okkar dýr éta um þúsund tonn á ári af úrgangi frá kjöt- og fiskvinnslum sem annars væri urðaður. Okkur vantar fleiri minkabú hér á landi til að eyða þeim úrgangi sem til fellur frá okkur mannfólkinu.“ „Það væri nær að skapa útflutn- ingstekjur úr úrganginum en svína út landið og borga stórfé fyrir,“ segir Stefán. „Nú þegar áburðarverð rýk- ur upp í hæstu hæðir er gott að vita af þeirri auðlind sem minkaskíturinn er.“ „Minkabúin eru núna 22 og ekkert refabú og því nóg pláss fyrir fleiri,“ segir Katrín, sem er ritari Sambands íslenskra loðdýrabænda. „Pabbi var til dæmis í öðr- um árgangi nemenda. Mér finnst líka oft skrýtið að hugsa til þeirra daga þeg- ar ég var sjálfur hér í skóla, þá grunaði mig ekki hvað yrði.“ Daglegt líf 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 Katrín og Stefán í Ásaskóla störf- uðu um árabil við tónlistarkennslu og söngiðkun í Reykjavík, m.a. við óperusöng í Íslensku óperunni og Þjóðleikhúsinu. Menntun þeirra beggja er aðallega í tónlistinni, Katrín er tónmenntakennari og pí- anóleikari, Stefán er grunnskóla- kennari og þau bæði söngkennarar frá Söngskólanum í Reykjavík. Hann stundaði framhaldsnám á Ítalíu, hún í Svíþjóð og Bandaríkj- unum. „Eftir að við fluttum hingað austur stjórnaði ég Vörðukórnum í nokkur ár og Kata sá um píanóleik, en áður hafði ég stjórnað Samkór Kópavogs í 11 ár,“ segir Stefán. „Ég söng heilmikið á sínum tíma, en kennslan tók samt mestan tíma,“ segir Katrín. „Að vinna sem söngkennari er ekki það sama og að syngja sjálfur og starfa ein- göngu við það. Ég sé ekki eftir þessum tíma í kennslunni og ég hafði gaman af að kenna þennan tíma. Mig langaði hinsvegar ekki til að gera það endalaust. Ég gat vel hugsað mér að hætta sem söng- kennari á sínum tíma og það getur komið að þeim degi að ég geti líka hugsað mér að hætta sem minka- bóndi og fara út í eitthvað allt ann- að. Ég hef alltaf sungið eitthvað hér og haldið mér við og þá spilað und- ir sjálf, samt hef ég haft þetta meira fyrir mig. Það er heldur ekki mikið verið að hringja í fólk uppi í sveit til að biðja það að koma og syngja þetta eða hitt. Í fyrra var ég samt með svolitla tónleikaröð og söng þá meðal annars heima á Húsavík,“ segir Katrín. Tónlistin lögð til hliðar Ljósmynd/Þjóðleikhúsið Grímudansleikur Katrín söng eitt aðalhlutverkanna í Grímudansleik Verdis í Þjóðleikhúsinu haustið 1985 ásamt Kristjáni Jóhannssyni, Kristni Sigmundssyni, Elísabet F. Eiríksdóttur og Sigríði Ellu Magnúsdóttur í leikstjórn Sveins Einarssonar. Á myndinni má sjá Katrínu í hlutverki sínu ásamt Kristni og Kristjáni. Í jákvæðum dómi um sýninguna í Morgunblaðinu sagði Jón Ásgeirsson, tónlistargagnrýnandi, meðal annars: Katrín Sigurðardóttir var mjög góð sem Oscar. Leikur hennar var frísklegur og þar sem hún fékk tækifæri til að láta rödd sína hljóma var hún frábær, sérstaklega á grímudansleiknum á móti Renato. Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær w w w .m ar kh on nu n. is OPIÐ TIL HÁDEGIS Í DAG Jólakveðja Starfsfólk Nettó

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.