Morgunblaðið - 24.12.2009, Side 24

Morgunblaðið - 24.12.2009, Side 24
Hátíðlegt Húsakynni Laugarnesskóla henta einkar vel til að slá upp glæsilegu jólaballi. Börnin dansa sæl í kringum jólatréð 24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Mann-heim-ar eru margbreyti- legir. Og fátt er kjurrt. Nútím- inn sennilega eirðarlausasta tíð sög- unnar. Tilbreyting og af- þreying er krafa hvers dags. Það sem toppar vin- sældalista vikunnar er horfið í þeirri næstu og enginn virðist sakna þess. Sífellt er verið að skipta um rás á öllum sviðum mannlífsins. Fjarstýringin er nær- tækasta vopn nútíma- mannsins. En hvað með jólin? Af hverju vilja flestir að þau lúti allt öðrum lögmálum? Þau séu þau sömu og síð- ast ef þess er kostur? Þeir sem eldri eru vilja að eitthvert brot úr jólum bernskunnar sé á staðn- um eða að minnsta kosti ekki langt undan. Það gildir líka um þau jól sem vitja manna síðar í dag. Og flestir vilja heyra jólaguðspjallið sem opnar sjálfa jólasöguna, þótt þeir kunni það orðrétt ut- an að. Þetta á við um þá sem trúa og einnig þá sem efast. Það er reyndar skemmra þar á milli en margur ætlar. Efasemda- maðurinn er oft sá sem mest leitar og kannski sá sem mest þráir. Ekki er deilt um frá sjónarmiði sagnfræð- innar að Kristur var uppi á þeim tíma sem hinar helgu frásagnir greina frá. Veraldlegri frásagnir eru einnig til sem segja þá sögu einnig. Stundum er þó nefnt að síðari tíma ársetningu þessara miklu atburða kunni að skakka um fáein ár. Það sýni dauði Heródesar og fyr- irmæli Ágústusar um þjóðskrá Rómaveldis. Og sama segi ferilskrá Pontíusar Pílatusar. Sjálfsagt er þetta satt og rétt. En þær athuga- semdir, þótt réttmætar séu, breyta í engu hinni stóru mynd. En sumir þeirra sem efast ekki um að Kristur var spyrja hins vegar hvort hann hafi endi- lega einnig verið sá sem hann sagðist vera. Var hann sonur Guðs og standast þau fyrirheit sem hann gaf og skipta mannkynið svo miklu? Gefa lífinu sanna fyllingu og raunverulegan til- gang? Þeir sem þannig spyrja vilja fá sannanir, og helst þá vísindalegar. Og þeim finnst stundum að öðrum beri skylda til að sanna það fyrir sér að svo hafi verið sem sagt var og ljós heimsins og lausnari rísi í raun undir fyrirheitum sínum og þess sem sendi hann. En það er einmitt galdurinn. Sönnunina er aðeins að finna í vitund hvers manns. En sanninda- merkin eru hins vegar mörg og mikilvæg, þau verða ekki tíunduð hér. Eitt gæti þó verið það að enn, tvö þúsund árum eft- ir að Kristur var með mönnum og einn af þeim, er fæðing hans enn tilefni mestu friðarhátíðar ver- aldar. En hann hafði boð- að mönnum frið á jörð. Og það er þögul en ríkjandi krafa sem um- lykur allt, að á jólum gildi friðarskylda. Eitt and- artak skal hinu illa bægt frá, hugsunum þess, orð- um og verkum. Um þetta er þó ekki orð í lögum, stjórnarskrám eða al- þjóðlegum sáttmálum. Efasemdamennirnir njóta einnig jólanna og gefa efanum frí sem öðru amstri og gleðjast ekki síður en aðrir. Og gleðin er í senn bernsk og björt á dimmustu dögum árs- ins, þegar sú hátíð sem hjartanu er skyldust gengur í garð. Morgunblaðið óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Friðarboðskapur Krists lýsir af hátíðinni sem haldin er vegna fæðingar hans.} Gleðileg jól STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.