Morgunblaðið - 24.12.2009, Side 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Kveðjustundin er
komin, í dag kveð ég
ástkæra ömmu mína í
hinsta sinn. Sama
hversu vel maður telur sig undirbú-
inn, þá er alltaf erfitt þegar kallið
kemur.
Amma mín kvaddi laugardaginn
12. desember eftir hetjulega bar-
áttu við krabbamein. Ekki var um
að ræða fyrstu baráttu hennar við
það illvíga mein en hún hafði áður
farið með sigur af hólmi. Í þetta
sinn hafði sjúkdómurinn betur.
Þrátt fyrir veikindin bar amma mín
ávallt höfuðið hátt og hélt reisn
fram á síðasta dag.
Alltaf var jafn gott að koma til
ömmu og afa í Öldugerðið. Um leið
og ég kom inn heyrðist í ömmu:
„Nei ertu komin elskan mín“ og á
eftir fylgdi þétt og gott faðmlag.
Umræðurnar fóru fram í eldhúsinu
og þar var spjallað um lífið, til-
veruna og allt þar á milli. Oftar en
ekki var þó umræðuefnið hvernig
mér gengi í því sem ég var að taka
mér fyrir hendur hverju sinni.
Á mínum yngri árum kom ég oft
og dvaldi hjá ömmu og afa á Hvols-
velli og þá var nú ýmislegt brallað.
Heilu leikritin voru sett upp í Öldu-
gerðinu og mátti finna leikmunina
marga í brúna kistlinum góða. Afa
var hjálpað í garðinum, sendiferðir
Rannveig Júlíana
Baldvinsdóttir
✝ Rannveig JúlíanaBaldvinsdóttir
fæddist í Ólafsfirði
22. ágúst 1933. Hún
lést á heimili sínu á
Hvolsvelli 12. desem-
ber síðastliðinn.
Útför Rannveigar
fór fram frá Stórólfs-
hvolskirkju 19. des-
ember sl.
farnar í búðina, hopp-
að í sund í góða veðr-
inu og margt, margt
fleira. Eftir langan og
erilsaman dag var
komið heim þar sem
amma beið í eldhús-
inu með eitthvert góð-
gæti á borðum og þá
hófst sögustundin um
hvaða ævintýrum ég
hafði lent í þann dag-
inn.
Margar góðar
minningar á ég tengd-
ar sumarbústað fjöl-
skyldunnar í Syðstu-mörk. Þar kom
fjölskyldan margoft saman og átti
góðar stundir. Við frændsystkinin
lékum okkur saman í sveitinni og
sjaldan var amma langt undan að
fylgjast með okkur uppátækjasömu
villingunum. Oft voru mikil læti,
ærslagangur og fjör en þarna held
ég að ömmu og afa hafi liðið hvað
best, umkringd börnum sínum og
barnabörnum.
Undanfarnir dagar og vikur hafa
verið okkur fjölskyldunni erfiðir en
einnig hafa þessar stundir verið
okkur ómetanlegar. Mikið var gott
að koma upp á spítala til ömmu eftir
skóla og ræða um allt milli himins
og jarðar. Ég ákvað að leyfa ömmu
nú ekki bara að spyrja mig spjör-
unum úr heldur nota tækifærið og
spyrja um hennar líf þegar hún var
á mínum aldri. Það var svo gaman
að sjá hvað amma ljómaði öll þegar
hún sagði mér frá því þegar hún og
afi voru að kynnast og frá árunum í
Ólafsfirði. Væntumþykjan og ástin í
garð afa og barna hennar skein í
gegn og litaði hverja söguna á fæt-
ur annarri.
Elsku amma mín það er svo
margt gott sem þú skilur eftir þig.
Fjölskyldan er búin að standa sam-
an sem ein heild í veikindum þínum
og allir lögðu sitt af mörkum til að
gera þér lífið sem bærilegast sein-
ustu dagana. Þetta er það sem þið
afi kennduð okkur elsku amma mín,
að standa saman í blíðu og stríðu,
styðja og hlúa vel hvort að öðru.
Það munum við gera áfram og mun-
um við öll standa þétt við bakið á
afa nú þegar þú ert á brott.
Ég kveð ömmu full af þakklæti
fyrir allt það sem hún gerði fyrir
mig og kenndi mér.
Halla Ósk Ólafsdóttir.
Elsku amma.
Nú þegar ég kveð þig koma upp í
hugann margar hlýjar minningar
um þær góðu stundir sem við áttum
saman. Í minningunni varstu alltaf
svo fín og flott til fara amma mín,
kjólarnir þínir og allir skórnir voru
eins og gersemar fyrir litlar skottur
sem fengu oft og iðulega að gramsa
í fataskápunum hjá ömmu sinni og
voru ófáar tískusýningar haldnar í
Öldugerðinu.
Mér er einnig minnisstætt hversu
hrifin þú varst af tónlist og varst
alltaf sérstaklega áhugasöm um
tónlistarnám okkar ömmubarn-
anna, enda var það fastur liður að
halda tónleika í stofunni hjá ömmu
og afa þegar komið var í heimsókn.
Ekki er hægt að sleppa því að minn-
ast á allar sumarbústaðaferðirnar
sem við fórum í saman. Við eyja-
fjölskyldan vorum dugleg að koma
til ykkar afa allan ársins hring til
þess að vinna í sumarbústaðnum við
bæði gróðursetningu og uppbygg-
ingu hans. Þessar stundir voru
sannkallaðar fjölskyldustundir og
þú varst ávallt í essinu þínu með
alla hjörðina í kring um þig.
Það er skrítin tilhugsun að vera
að kveðja þig núna svona rétt fyrir
jólin, þú sem varst svo mikið jóla-
barn, hafðir alltaf gaman af fallegu
jólaskrauti og góðri jólatónlist. Það
er eitthvað svo óraunverulegt að ég
fái aldrei aftur að heyra þig kalla
mig nöfnu, ég sem var svo stolt af
því að bera nafnið þitt og þótti alltaf
jafn vænt um að heyra þig kalla mig
nöfnu. En einna sárast finnst mér
þó að hugsa til þess að þú verðir
ekki með okkur í skírninni hjá litla
stráknum mínum og fáir ekki að
kynnast honum meira en þú gerðir.
Þú sem varst svo hrifin af honum,
lýstist öll upp þegar þú heyrðir í
honum eða tókst hann í fangið. Mik-
ið er ég þakklát fyrir þessar fáu vik-
ur sem þið áttuð saman, enda munu
þær minningar sem ég á um ykkur
saman aldrei gleymast.
Það er með miklum söknuði að ég
kveð þig amma mín, en hlýjar minn-
ingar um allar ánægjustundirnar
okkar saman munu fylgja mér alla
tíð.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín nafna,
Rannveig Rós.
Minningar á mbl.is
Ása Linda
Guðbjörnsdóttir
Höfundur: Nína Sólveig Jóns-
dóttir
Guðmundur
Guðmundarson
Höfundur: Tryggvi V. Líndal
Meira: mbl.is/minningar
Kveðja frá
blakfélögum
Hann Þórarinn er
dáinn sagði Birgir
Sveinsson þegar hann hringdi í
mig á þriðjudaginn, fréttin kom
ekki á óvart þó hún kæmi fyrr en
búist var við. Þórarinn var búinn
að vera hjartveikur í mörg ár og
eftir aðgerð í Svíþjóð hafði heilsu
hans hrakað.
Þórarinn var í hópi félaga sem
hafa komið saman tvisvar í viku í
yfir 30 ár til að spila blak. Í öll
þessi ár hefur kjarni hópsins verið
sá sami, nýir félagar bæst í hópinn
og nánast enginn hætt nema vegna
óviðráðanlegra ástæðna. Það fer
ekki hjá því að vinskapur verði ná-
inn þegar samskipti hafa staðið
Þórarinn Þorkell
Jónsson
✝ Þórarinn ÞorkellJónsson fæddist í
Reykjavík 7. júní
1938. Hann lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 23.
nóvember sl.
Útför Þórarins fór
fram frá Langholts-
kirkju 1. desember sl.
svo lengi. Þórarinn
var ein af kjölfestun-
um í hópnum hann
mætti manna best og
var hrókur alls fagn-
aðar þegar við átti.
Það verður söknuður
eftir félagsskap hans
á gamlársdag í ár-
vissu áramótablaki.
Þórarinn var
hreinskiptinn, hafði
sterkar skoðanir á
mönnum og málefn-
um en var aldrei ill-
kvittinn eða meinfýs-
inn. Það voru fleiri sem áttu
Þórarinn að félaga og vini en við
blakarar, hann spilaði bridge,
veiddi lax og var virkur í Lions
hreyfingunni. Þrátt fyrir hin
mörgu áhugamál og mikla vinnu
var Þórarinn umhyggjusamur fjöl-
skyldufaðir, eiginmaður, faðir, afi
og langafi.
Með Þórarni er genginn góður
drengur sem verður sárt saknað af
vinum og vandamönnum.Við blak-
félagarnir sendum fjölskyldu Þór-
arins samúðarkveðjur á sorgar-
stundu.
Sigurður Geirsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, mágur og afi,
GUÐMUNDUR CESAR MAGNÚSSON,
Blikaási 21,
Hafnarfirði,
lést af slysförum miðvikudaginn 16. desember.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði
miðvikudaginn 30. desember kl. 13.00.
Við afþökkum blóm og kransa en biðjum þá sem vilja minnast hans
að styrkja björgunarsveitirnar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Oddrún Kristófersdóttir,
Elísabet Sigríður Guðmundsdóttir,
Atli Már Guðmundsson, Jóhanna Þórisdóttir,
Arna Rún Cesarsdóttir, Hrafn Leó Guðjónsson,
Guðbjörg Krista Cesarsdóttir, Ívar Smári Guðmundsson
og barnabörn.
✝
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGEBORG GRIMM JÓNSSON,
Þorsteinsgötu 11,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju þriðjudaginn
29. desember kl. 14.00.
Guðmundur Jónsson,
Úlfar Guðmundsson, Joan Andersen,
Sverrir og Guðmundur Úlfarssynir,
Kristófer Þór, Michael Van Eric,
Timothy Manfred, Melinda og Christie.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
ANNA SIGRÚN SNORRADÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn
22. desember.
Birgir Þórhallsson,
Snorri Sigfús Birgisson,
Guðrún Sigríður Birgisdóttir, Martial Nardeau,
Þórhallur Birgisson, Kathleen Bearden
og barnabörn.
✝
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma, langamma og langalangamma,
JÚLÍA SVAVA ELÍASDÓTTIR,
Víðigerði,
Mosfellsdal,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi föstudaginn
11. desember, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju
þriðjudaginn 29. desember kl. 11.00.
Sigtryggur Þorsteinsson,
Hrefna Indriðadóttir, Ragnar Jónsson,
Ásgeir Indriðason, Sigrún Gunnarsdóttir,
Jens Indriðason, Sveinbjörg Hrólfsdóttir,
Guðrún Indriðadóttir, Jón Eyjólfsson
og ömmubörn.
✝
Hjartanlegar þakkir sendum við öllum þeim sem
með hlýhug og vináttu vottuðu minningu
PÉTURS H. ÓLAFSSONAR
virðingu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar L-5 á
Landspítala Landakoti fyrir elsku þeirra við
umönnun hans.
Sendum ykkur öllum óskir um gleðilega jólahátíð
og farsæld á komandi ári.
Hrefna Pétursdóttir,
Hugrún Pétursdóttir, Marteinn Elí Geirsson,
Pétur Pétursson, Anna S. Einarsdóttir,
Ólína Björk Pétursdóttir,
afabörnin öll og systkini hins látna.
Andlátstilkynningar
HELGARÞJÓNUSTA - andlátstilkynningar
í mánudagsblaðið eru eingöngu bókanlegar á
mbl.is frá kl. 18:00 á föstudegi til kl. 12:00 á
sunnudegi
Slóðin er: http://mbl.is/mogginn/andlat/form/