Morgunblaðið - 24.12.2009, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Sérfræðingar
á sviði jarðhita
Reykjavik Geothermal ehf. er fyrirtæki sem
fyrst og fremst sinnir verkefnum tengdum
jarðhita. Félagið var stofnað árið 2008. Verkefni
fyrirtækisins eru flest erlendis, bæði á sviði
ráðgjafar og í eigin þróunarverkefnum.
Núverandi verkefni RG eru m.a. í Mið-Austur-
löndum, Afríku og á Indlandi.
Leitað er að starfsmönnum á eftirtöldum
sviðum innan jarðhitageirans:
jarðvísindi
verkfræði
verkefnastjórnun
umhverfis- og gæðamál
Umsækjendur þurfa að hafa menntun sem
hæfir starfinu, reynslu af jarðhitaverkefnum og
getu og vilja til að starfa erlendis um lengri eða
skemmri tímabil. Æskilegt er að viðkomandi
hafi reynslu í starfi á erlendri grund.
Vinna í verkefnum RG fer fram á ensku og er
nauðsynlegt að umsækjendur hafi góð tök á
málinu.
Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2010
og ber að póstleggja umsóknir eða skila þeim
innan þess tíma í lokuðu umslagi á skrifstofu
félagsins að Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykja-
vík.
Öllum umsóknum verður svarað skriflega.
Frekari upplýsingar veitir Vilhjálmur Skúlason á
skrifstofu félagsins eða í síma 892 0018.
Styrkir
Villa Bergshyddan
Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar
býður dvöl í gestabústaðnum Villa Bergs-
hyddan, sem staðsettur er í miðborg
Stokkhólms.
Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endur-
byggðu húsi frá 18. öld. Fólk sem starfar að
listum og menningu og býr í einhverri
höfuðborga Norðurlanda getur fengið
bústaðinn að láni, án endurgjalds, í eina
eða tvær vikur á tímabilinu 1. apríl til 30.
september 2010.
Umsóknareyðublöð fást á www.reykjavik.is,
www.kultur.stockholm.se og í
upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Umsóknir sendist í síðasta lagi 1. febrúar
2010 til:
Stockholms kulturförvaltning,
Nordiskt kultursamarbete,
Yvonne Boulogner,
Box 16113
SE 103 22 Stockholm.
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Nanna
Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu
Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkur-
borgar, s. 590 1520, netf: nanna@reykjavik.is
og yvonne.boulogner@kultur.stockholm.se
Tilboð/Útboð
*Nýtt í auglýsingu
*14809 Matsala til starfsmanna Landspítala.
Ríkiskaup, fyrir hönd Landspítala (LSH),
óska eftir tilboðum í rekstur matsala fyrir
starfsmenn Landspítala. Nánari upplýs-
ingar er að finna í útboðslýsingu sem
verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is.
Opnunartími tilboða 26. janúar 2010
kl. 11.00.
14804 Togararall 2010-2014. Ríkiskaup, fyrir
hönd Hafrannsóknastofnunarinnar, óska
eftir tilboðum í leigu á togurum til verk-
efnisins „Stofnmæling botnfiska á
Íslandsmiðum“ árin 2010-2014. Um er að
ræða leigu á togurum með áhöfn í stutt-
an tíma til að stunda togveiðar í rann-
sóknaskyni. Að þessu sinni er óskað eftir
leigu á þremur togurum á NV-, NA- og
SA-svæði. Útboðsgögn eru aðgengileg á
vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
Opnunartími tilboða 28. janúar 2010
kl. 14.00.
*14796 Bað- og salernishjálpartæki.
Ríkiskaup fyrir hönd Sjúkratrygginga
Íslands (SÍ), óska eftir tilboðum í bað- og
salernishjálpartæki, stoðir og fylgihluti
þeirra. Áskilinn er réttur til að skipta
viðskiptum milli bjóðenda og/eða á milli
vöruflokka, jafnframt því að semja við
fleiri en einn bjóðanda í hverjum
vöruflokki - Bjóðendum er heimilt að
bjóða í einstaka flokka útboðsins. Sjá
nánari lýsingu í kafla 2 í útboðslýsingu
sem verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa
mánudaginn 28. desember. Opnunartími
tilboða 9. febrúar 2010 kl. 11.00.
14806 - Leiguhúsnæði fyrir vínbúð á
Akureyri
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að
taka á leigu um 500-600 m² húsnæði fyrir Vínbúð á
Akureyri. Flöturinn mun skiptast að u.þ.b. 2/3 hlut-
um í verslunarsvæði og 1/3 hluta í lager og starfs-
mannaaðstöðu.
Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:
1.Vera á skilgreindu verslunarsvæði samkvæmt
gildandi skipulagi, sem er aðlægt Glerárgötu
og afmarkast af Dalsbraut/Tryggvabraut og
Kaupvangsstræti.
2.Vera vel sýnilegt og aðgengilegt frá stofnbraut.
3.Umferð að og frá húsnæðinu sé greið.
4.Húsnæðið skal vera á einni hæð og bjóði upp á
að Vínbúðin opnist beint út og að vöruhurð
opnist beint út.
5.Góð aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskipta-
vini og næg bílastæði fyrir þá (a.m.k. 40-50
bílastæði sem að jafnaði nýtist Vínbúðinni).
6.Lögð er áhersla á gott aðgengi af bílaplani fyrir
hreyfihamlaða og jafnframt þurfa að vera
bílastæði fyrir starfsfólk.
7. Aðkoma að húsnæðinu fyrir flutningabíla og
lyftara með vörur skal vera góð og þannig
fyrirkomið að ekki trufli aðkomu viðskiptavina.
8.Æskilegt að hægt sé að koma fyrir ruslagámi
þannig að ekki sjáist þegar komið er að versl-
uninni.
9.Verslunarrýmið sé sem næst rétthyrnt (hlutföll
rýmisins nálægt 3 á móti 2) og mega súlur,
veggir eða annað ekki hamla yfirsýn um versl-
unarhluta húsnæðisins.
10.Hljóðdempun í verslun skal tryggja góða
hljóðvist og birtulýsing skal vera 500-600 lux
(séu þessir þættir innifaldir í tilboði).
11. Góð aðstaða þarf að vera fyrir starfsfólk og allt
aðgengi í húsnæðinu þarf að hæfa vel hreyfi-
hömluðum.
12. Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum
sem opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnar-
aðilar gera til slíks og vera samþykkt af þeim.
13.Leigutími húsnæðisins skal vera allt að 10
árum.
14.Húsnæðið skal afhenda vorið 2010 og ræðst
afhendingartími nánar af ástandi þess við
afhendingu.
Áhugasamir skulu senda öll gögn um það hús-
næði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til
skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík
fyrir kl. 11:00, miðvikudaginn 30. desember 2009.
Merkt : 14806 - Leiga á húsnæði fyrir vínbúð
Á.T.V.R. á Akureyri.
Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfar-
andi:
1. Staðsetning.
2. Teikningar af húsnæði.
3. Afhendingartími.
4. Ástand húsnæðis við afhendingu.
5. Leiguverð án vsk. og skal tiltaka hvað er inni-
falið í því.
6. Fyrirsjáanlegar breytingar sem gætu haft áhrif
á kröfuliði 1-14 að ofan á leigutímanum.
Tilkynningar
Aðalfundur
Sjómannafélags Íslands
verður haldinn að Skipholti 50d, 3. hæð,
þriðjudaginn 29. desember kl. 16:00.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Minnum félagsmenn á heimasíðu félagsins
www.sjomenn.is
Stjórnin.
Félagslíf
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund jóladag kl. 14.00
og sunnudag 27. desember
kl. 14.00.
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð
Helgistund á aðfangadegi
jóla kl. 16.00.
Ræðumaður verður Haraldur
Jóhannsson.
Sunnudagur 27. desember.
Samkirkjuleg lofgjörðar- og
hátíðarsamkoma kl. 16.30 í
Fíladelfíu.
Allir velkomnir.
Gleðilega hátíð í Jesú nafni.
Jóladagur: Hátíðarstund
kl. 15.00 (klukkan þrjú).
Sunnudagur 27. des.: Eitt
hjarta, ein sál. Sameiginleg sam-
koma í Fíladelfíu kl. 16.30.
www.Krossinn.is
Jólafagnaður og jólamatur
í dag aðfangadag kl. 18.
Fjölskyldu-hátíðarsamkoma
jóladag kl. 14 í umsjá
kafteinanna Rannvá Olsen og
Sigurðar Harðar Ingimarssonar.
Kaffi á Gistiheimilinu eftir
samkomuna.
Jólafagnaður eldri borgara
sunnudaginn 27. des. kl. 18.
Umsjón: Anne M. Reinholdtsen.
Sr. Frank M. Halldórsson talar.
Heitur matur o.fl. í boði.
GLEÐILEG JÓL!
Aðfangadagur kl. 16.30.
Hátíðarsamkoma. Ræðumaður
er Vörður LevíTraustason.
Jóladagur kl. 16.30.
Hátíðarsamkoma. Ræðumaður
er Hafliði Kristinsson.
Sunnudagur 27. desember
kl. 13.00. Alþjóðakirkjan.
Ræðumaður er Helgi Guðnason.
Samkoma á ensku.
Kl. 16.30. Samkirkjuleg bæna-
og lofgjörðarsamkoma.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu og
GIG sjá um lofgjörðina.
Komum saman og þökkum fyrir
liðið ár og göngum í sannri
einingu inn í nýja árið.
Raðauglýsingar 569 1100
Tvöföld
áhrif
Auglýsing í Atvinnublaði
Morgunblaðsins birtist
líka á mbl.is
– vinnur með þér
Ertu að leita þér að vinnu?
Vantar þig starfskraft?
Farðu inn á mbl.is/atvinna