Morgunblaðið - 24.12.2009, Side 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
2 8 6 5
3
1 2
2 3 7 5 6
1 8 2 9 3
6 8
5 8 7
1 9
7 8 9
6 2 3 7 8
3 5
7 2
4 8
5 6
9 7 5
4 6 3
6 9 8 5
3 2 8
7 9 8
5 2 6
6 2 4 1
3 4
8 9 2
7 5
3 1 6 5
4 7 3 1
1 7 3 5 8 9 2 6 4
9 6 5 3 2 4 7 8 1
2 4 8 1 7 6 3 9 5
3 1 7 6 5 8 9 4 2
6 8 2 4 9 7 5 1 3
5 9 4 2 3 1 6 7 8
4 5 1 7 6 2 8 3 9
8 2 6 9 1 3 4 5 7
7 3 9 8 4 5 1 2 6
1 6 8 2 3 4 9 5 7
5 2 3 8 7 9 6 1 4
7 9 4 6 1 5 3 2 8
2 5 6 1 4 3 8 7 9
8 3 7 5 9 2 1 4 6
4 1 9 7 6 8 5 3 2
6 4 1 3 8 7 2 9 5
9 8 2 4 5 1 7 6 3
3 7 5 9 2 6 4 8 1
3 8 5 4 1 9 2 7 6
9 6 2 8 3 7 1 5 4
7 1 4 6 2 5 8 9 3
1 2 3 5 7 6 4 8 9
5 4 6 9 8 1 7 3 2
8 7 9 2 4 3 5 6 1
4 9 7 3 5 2 6 1 8
6 5 8 1 9 4 3 2 7
2 3 1 7 6 8 9 4 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 24. desember,
358. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Guð hefur uppvakið oss í Kristi
Jesú og búið oss stað í himinhæðum með hon-
um. (Ef. 2, 6.)
Hefð er rík í huga landsmannaþegar kemur að jólum. Í minn-
ingu Víkverja eru æskujólin slegin
töfraljóma og af fremsta megni hef-
ur hann reynt að kveikja þann töfra-
ljóma í kringum eigið jólahald. Ákaf-
lega margt hefur breyst, eins og við
er að búast, síðan Víkverji var barn
og börn Víkverja hafa síðan skapað
nýjar og skemmtilegar hefðir.
Móðir Víkverja var aðalnúmerið í
kringum jólin. Eins og væntanlega
flestar mæður þeirrar kynslóðar.
Móðirin skreytti húsið, móðirin bak-
aði kökurnar, móðirin saumaði og
prjónaði gjafirnar, móðirin pakkaði
inn gjöfunum, móðirin skreytti jóla-
tréð, með hjálp barnanna, og móð-
irin eldaði veislumatinn. Eitt slapp
þó móðirin við, en það var að skrifa á
jólakortin, það gerði faðirinn.
x x x
Á aðfangadag var föst hefð aðVíkverji og systkini hans fóru
með pabba sínum að keyra út jóla-
kortin. Víkverji er úr litlum bæ
norður í landi og þennan dag mátti
sjá marga pabbana með barnahóp-
inn í sömu erindagjörðum. Á meðan
fékk húsfreyjan ráðrúm til að leggja
lokahönd á undirbúninginn.
Eftir að kortaútkeyrslunni var
lokið settust börnin við sjónvarpið
og biðu eftir barnaefninu sem á þeim
tíma hófst ekki fyrr en hálftvö. Það
var sent út til um það bil fjögur en
þá var kominn tími á jólabaðið og að
klæðast sparifötunum. Eftir það
hófst það skemmtilega verk að raða
pökkunum undir jólatréð.
Þegar jólamáltíðinni var lokið
hófst ákveðin athöfn sem allir tóku
þátt í nema húsmóðirin sjálf. Þennan
eina dag á árinu var hún laus við
uppvaskið. Hún settist inn í stofu og
hvíldi lúin bein. Þegar fjölskyldan
kom svo inn í stofu til að opna pakk-
ana var hún gjarnan sofnuð, sitjandi
með höfuðið upp að sófabakinu, ör-
þreytt eftir at daganna á undan. Eft-
ir að pakkarnir höfðu verið opnaðir
var gjarnan slegið í spil og amma
Víkverja fylltist eldmóði í fjögurra
manna vist, kappsöm mjög í spila-
mennskunni.
Já, bernskujólin voru ljúf. Vík-
verji óskar landsmönnum öllum
gleðilegra jóla. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 andstæða, 8
skvampa, 9 fiskar, 10
væg, 11 togvindu, 13
vísa, 15 hestur, 18 litur,
21 glöð, 22 búa til, 23
hryggð, 24 tómatur.
Lóðrétt | 2 sparsemi, 3
sjávardýrs, 4 vafans, 5
detta, 6 beitu, 7 ósoðna,
12 tíndi, 14 missir, 15
fíkniefni, 16 klampana,
17 vik, 18 staut, 19 sé til
ama, 20 sjá eftir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 uggir, 4 makki, 7 aflað, 8 kuldi, 9 aka, 11 stal,
13 kaun, 14 álfur, 15 flot, 17 ámur, 20 inn, 22 úlfúð, 23
jarli, 24 niðja, 25 lúann.
Lóðrétt: 1 unaðs, 2 gella, 3 ræða, 4 maka, 5 kólga, 6 ið-
inn, 10 kofan, 12 lát, 13 krá, 15 frúin, 16 orfið, 18 merla,
19 reisn, 20 iðja, 21 Njál.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í
Khanty-Mansiysk í Rússlandi.
Franski stórmeistarinn Etienne Bac-
rot (2700) hafði svart gegn ind-
verska kollega sínum Krishnan Sas-
hikiran (2664). 56… Bxf2! 57. Dxf2
Dc1+ og hvítur gafst upp enda staða
hans gjörtöpuð. Eins og venja stend-
ur til verða haldin skákmót á milli
jóla og nýárs. Taflfélag Reykjavíkur
og Skákfélag Akureyrar halda sín
jólahraðskákmót 27. desember næst-
komandi og sama dag heldur Tafl-
félagið Hellir Íslandsmótið í net-
skák. Nánari upplýsingar um þessi
og önnur mót eru á skákvef allra ís-
lenskra skákmanna, www.skak.is.
Gleðileg jól!
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þekking er vald.
Norður
♠6542
♥ÁD3
♦D64
♣D82
Vestur Austur
♠97 ♠DG1083
♥G92 ♥K1073
♦10985 ♦Á
♣G1065 ♣K93
Suður
♠ÁK
♥865
♦KG732
♣Á74
Suður spilar 3G.
Það kemur sér alltaf vel að vita hvar
varnarstyrkurinn liggur. Hér hefur
austur staðsett háspilin sín megin með
opnun á 1♠ og þar kemur vestur út
með níuna.
Fyrirsjáanlega mun austur lenda í
klemmu með kóngana sína í hjarta og
laufi. Hann þarf að valda þá báða, sem
skapar möguleika á að senda hann inn
á annan til að spila frá hinum. En inn-
kastið fer auðvitað fyrir lítið ef tígull-
inn stendur ekki fyrir sínu. Og þar eð
vitað er um ♦Á í austur með öðrum
styrk er sjálfsagt að nálgast tígulinn
varlega: fara inn í borð á ♥Á og spila
litlum tígli að ♦KG. Þessi varúðarráð-
stöfun reynist nauðsynleg og breytir
ekki neinu um yfirvofandi þrengingar
austurs. Hvernig sem austur hendir af
sér ætti níundi slagurinn að skila sér á
aðra drottningu blinds.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Vinnufélagar þínir eru samstarfs-
fúsir og hjálplegir og framkoma þeirra
kallar fram gleði þína. Ekki loka aug-
unum fyrir eymd annarra.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það getur bjargað fjárhagnum að
sleppa einhverjum útgjöldum. Hvað sem
þú gerir mun það hafa góð áhrif til
langs tíma. Óvænt útgjöld verða á næst-
unni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Bjartsýni borgar sig þótt ást-
arsamband standi tæpt. Frammistaða
þín á vinnustað vekur aðdáun. Ferðalag
gæti verið framundan.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Láttu það ekki aftra þér þótt til-
lögur þínar fái lítinn hljómgrunn. Allt er
best í hófi og gamall kunningi kemur
óvænt frá útlöndum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þótt hlutirnir líti vel út á pappírum
er ekki þar með sagt að þeir séu borð-
leggjandi gróði. Reyndu að setja þig í
spor vinar sem á erfitt þessa dagana.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Samband þitt við hitt kynið geng-
ur betur en áður. Hverjum finnst ekki
gott að fá hrós? Prófaðu, þú verður
undrandi á viðbrögðunum. Þú ert með of
margt í takinu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Af hverju er sannleikurinn svona
sár? Skoðaðu málið í víðu samhengi.
Hugsanlega fellur þú í stafi yfir óvænt-
um glaðningi, þú átt hann skilið.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur legið í dvala allt of
lengi svo nú er komið að því að láta
hendur standa fram úr ermum, ekki of-
keyra þig þó. Reyndu að losa þig við
óþarfa dót.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Sár missir getur kennt manni
ýmislegt. Sinntu sálinni ekki síður en
líkamanum. Láttu ekki freista þín.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Forðastu tilboð þar sem eitt-
hvað gruggugt býr undir. Augun eru
spegill sálarinnar. Þú getur treyst því.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er eitthvert eirðarleysi í
þér án þess að þú vitir nákvæmlega
hvers vegna. Einhver hindrun gæti orðið
á vegi þínum í nánustu framtíð. Gerðu
gott úr hlutunum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Reyndu að sjá það góða í öðru
fólki fremur en það slæma. Mistök eru
til að læra af þeim. Heimsókn til vinar á
eftir að breyta lífi þínu.
Stjörnuspá
Sigurður Jóns-
son, fyrrum
prentsmiðju-
stjóri í Prentstof-
unni Ísrún á Ísa-
firði, verður
níræður 28. des-
ember næstkom-
andi. Sigurður
var einn af stofn-
endum Tónlistarfélagsins og hefur
einnig starfað í þágu skíðaíþrótt-
arinnar. Fjölskylda Sigurðar og
vinir koma saman milli kl. 16 og 19
á afmælisdaginn í samkomusal
Oddfellowa á Ísafirði og samfagna
honum og konu hans, Mörthu Árna-
dóttur, í tilefni dagsins og vonast
eftir að sjá sem flesta.
90 ára
Hjónin Ingibjörg Jónasdóttir og
Guðmundur A. Elíasson frá Suður-
eyri við Súgandafjörð eiga sextíu
ára brúðkaupsafmæli 26. desember
næstkomandi. Þau fagna deginum
með fjölskyldu sinni.
Demantsbrúðkaup
HEIMIR Sindrason, tannlæknir og lagasmiður, er
65 ára í dag. Hann segir það alltaf hafa verið hálf-
gert ævintýri að vera jólabarn. „Jólin hafa alltaf
verið mikill hamingjutími hjá mér,“ segir hann, en
viðurkennir að afmælisgjafirnar hafi gjarnan fall-
ið í skuggann af jólagjöfunum. „Mamma gerði
eina tilraun til þess að breyta þessu fyrir mig og
hélt upp á afmælið mitt á sama tíma og afmæli
bróður míns í mars. Ég var kátur með það en hann
var ekki hrifinn og leikurinn var ekki endurtek-
inn.“ Þegar Heimir var fimmtugur sendi hann út
boð um afmælisveislu og sagðist bjóða upp á kok-
teil milli kl. 17 og 19 á aðfangadag. „Svo skrifaði ég fyrir neðan að
þetta væri djók og bauð fólki í veislu á milli jóla og nýárs.“
Eiginkona Heimis er Anna L. Tryggvadóttir og eiga þau fjögur
börn, 10 barnabörn og eitt á leiðinni. „Hún umbreytir heimilinu í mik-
ið jólaheimili,“ segir Heimir og hefur ekki hugsað sér að breyta mikið
út af vananum í dag. Núverið gaf hann út plötu með 15 lögum og segir
hann að lag sem hann gerði um Faðirvorið sé besta jólagjöfin, þótt
það sé lag allra tíma og ekkert frekar jólalag en lagið sem hann samdi
við Hótel Jörð eftir Tómas Guðmundsson. steinthor@mbl.is
Heimir Sindrason tannlæknir 65 ára
Ævintýri á aðfangadag
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjavík Brynjar Nói
fæddist 28. maí kl. 5.14.
Hann vó 4.210 g og var 53
cm langur. Foreldrar
hans eru Drífa Jenný
Helgadóttir og Þórður
Kristleifsson.
Karítas Óskars-
dóttir verður sjö-
tug hinn 25. des-
ember. Hún er
gift Sævari Magn-
ússyni garðyrkju-
manni og eiga
þau heima á
Seljavegi 11 á
Selfossi en áttu
áður heima á Heiðmörk í Laugarási
í Biskupstungum. Börn þeirra hjóna
eru Ómar Sævarsson, Reynir Sæv-
arsson og Jóna Dísa Sævarsdóttir.
70 ára
24. desember 1967
Ljóðið „Ó, helga nótt“ eftir
Sigurð Björnsson verkfræðing
var frumflutt við aftansöng í
Garðakirkju á Álftanesi.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …