SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 2
2 7. febrúar 2010
4-8 Vikuspeglar
Búrkur valda uppnámi í Evrópu, munaðarlaus knattspyrnumaður
gengur til liðs við Wigan og styr um páfa í Bretlandi.
24 Að réttlæta tilvistina
Leikstjórinn Ragnar Bragason segir verðlaun litlu máli skipta en berst
fyrir tilvist kvikmynda á Íslandi.
27 Tíu ára drengur tekinn höndum
Palestínski drengurinn Hussam Faisal Mohanna segir farir sínar ekki
sléttar eftir samskipti við ísraelska hermenn.
30 Örlögin ekki umflúin
Atli Örvarsson er störfum hlaðið kvikmynda-
tónskáld í Hollywood.
32 Áfallastreituröskun
Sálfræðingar og lögfræðingar eru ekki á eitt
sáttir um hvernig nýta megi greiningu á þess-
ari röskun fyrir dómi.
36 Nashyrningur án
horna
Páll Reynisson veiðimaður fékk að kynnast „veiða og sleppa“-
aðferðinni þegar hann skaut nashyrning með deyfiskoti.
Lesbók
48 Uppljómaðar hvelfingar
Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari sýnir myndir í Arinstofu Listasafns
ASÍ.
52 Ekki dæmigerð bók
Enski rithöfundurinn William Boyd er skammaður fyrir að skrifa
spennubók sem minnir á bandaríska hasarmynd.
54 Vel samstillt litabomba
Jón B.K. Ransu segir Ljóslitlífun í Hafnarhúsinu frísklega sýningu og
gefur henni fjórar stjörnur af fimm.
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Golli af Baltasar Kormáki.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirsdóttir,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
35
16
Augnablikið
S
njónum kyngdi niður sunnan við versl-
unarmiðstöðina Glerártorg á Akureyri í
gærmorgun. Bara sunnan við.
Snjókoman hófst á slaginu klukkan 10.
Sólin skein og himinninn var heiður og blár eins og
venjulega í höfuðstað Norðurlands og léttklætt
fólk á ferli, nema á þessum litla bletti.
Ég viðurkenni að það var ekki alveg nógu vel
skafið af framrúðunni en samt var ekki um að vill-
ast, þar sem ég kom akandi löturhægt í átt að
verslunarmiðstöðinni; skafl var að myndast við
suðurhlið hússins. Ég sá ekki betur en að þarna
væru dúðuð leikskólabörn í snjókasti.
Þegar ég ók nær sé ég glitta í Guðmund Karl
Jónsson, forstöðumann skíðasvæðisins í Hlíð-
arfjalli, gamlan slökkvibíl og að því er mér sýndist,
rauða málningardós á hjólum. Upp úr henni spýtt-
ist hvít málning og dreifðist yfir bílastæðið.
Sérkennilegt. Guðmundur genginn til liðs við
slökkviliðið? Eða slökkviliðið gengið til liðs við
Guðmund? En hvað skýrir málningardósina?
Um daginn fylltist bærinn af snjó af nátt-
úrulegum orsökum og starfsmenn bæjarins og
verktakar hömuðust við það dögum saman að
hreinsa bæinn.
Þarna kom í ljós að menn voru í óðaönn að búa
til snjó. Málningardósin var sem sagt snjóbyssa og
hlutverk slökkvibílsins virtist vera að dæla vatni í
byssuna svo skothríðin stöðvaðist ekki.
Nýstárleg leið til að skapa vinnu fyrir snjóruðn-
ingstækjamenn og slökkviliðið samtímis. Búa til
snjó til þess að ryðja honum burt!
„Átt þú ekki að vera upp í fjalli?“ spyr ég Guð-
mund. Hann brosir.
Ég heyrði auglýst í útvarpinu í gær eða fyrradag
að nýr snjór væri í Hlíðarfjalli. „Vorum að taka upp
nýja sendingu,“ minnir mig að þulurinn hafi lesið.
Ég bið Guðmund um að taka niður pöntun; mig
vanti einn bílfarm heim á bílastæði svo ég hafi eitt-
hvað að gera um helgina. Alltaf gaman að moka
stéttina svo blaðberinn komist auðveldlega að
dyrunum; góð hreyfing og skemmtileg tilbreyting
frá því að liggja í sófanum og horfa á enska bolt-
ann.
Guðmundur segist ekki þurfa að skrifa pönt-
unina niður. Minnið sé gott. Ég skuli fara heim og
pússa skófluna.
Hann minnti mig svo á að vetraríþróttahátíð ÍSÍ
hefst í dag. Guðmundur stóðst ekki mátið að búa
til svolítinn skafl fyrst sex stiga frost var í sum-
arleyfisparadísinni og snjóinn á að nota um næstu
helgi, þegar skíðagöngukeppni fer fram á Gler-
ártorgi. Á ganginum inni!
Líklega er fullseint að færa ólympíuleikana sem
eiga að hefjast í Vancouver eftir viku. En þar er lít-
ill sem enginn snjór og við erum hjálpsamir, norð-
anmenn. Gætum boðist til að halda göngukeppn-
ina á Glerártorgi. Kannski er meira að segja hægt
að stökkva í kirkjutröppunum.
skapti@mbl.is
Skothríðin beindist að verslunarmiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri í gærmorgun. Allt varð hvítt.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Glerártorgsleikar
Í ár verður haldin stærsta Safnanóttin hingað til, en í fyrsta sinn taka öll
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þátt. Alls verða þrjátíu og þrjú söfn
með að þessu sinni og í boði verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskyld-
una. Safnanótt hefst með Kærleikum við Austurvöll kl. 18 þar sem þjóð-
þekktir einstaklingar ætla að flytja viðstöddum kærleiksríkan boðskap.
Sérstakur Safnanæturstrætó mun aka á milli safnanna. Dagskrá Safn-
anætur má finna á vefslóðinni www.safnanott.is.
Safnanótt á höfuðborgarsvæðinu
Við mælum með…
7. febrúar
Þjóðminjasafn Ís-
lands býður upp á
barnaleiðsögn um
safnið. Leiðsögnin er
ætluð börnum á aldrinum 5-8 ára
og hefst kl. 14. Frítt inn fyrir yngri en
18 ára og tveir fyrir einn fyrir full-
orðna þennan dag.
8. febrúar
Stórsveit Reykjavíkur heldur tón-
leika á Café Rósenberg kl. 21. Höf-
undur tónlistar, stjórnandi og ein-
leikari á saxafón verður Andrew
D’Angelo en hann er meðal fremstu
manna á sviði framsækinnar tón-
listar.
9. febrúar
Nýlega gaf tónlistar-
konan Elíza Geirsdóttir
Newman út aðra sóló-
plötu sína, Pie in the
Sky. Í tilefni þess ætlar hún að
halda útgáfutónleika næstkomandi
þriðjudag á Café Rósenberg kl. 21.
Fimmtudagur
Kristján B. Jónasson Af hverju hafa
allir tilvitnanir í Jón Sigurðsson á
hraðbergi, er einhver bók til með
„Best of Jón Sigurðsson“ eða eru
allir með innbundin Ný fjelagsrit
uppi í hillu hjá sér? Ég þekki raunar
bara einn mann sem á það sett
allt.
Miðvikudagur
Halldóri Guðmundssyni finnst að
mannanafnanefnd ætti frekar að
skipta sér af heitum fyrirtækja. Það
er glatað að þjóðin heyri fréttir eins
og þessa: „Sólin skín“ er gjald-
þrota og fullkomlega eignalaust.
Grétar Hannesson Kannski er það
bara ég, en ég held að ég sé ekkert
svakalega líkur Sammy Davis Jr. …
en varla lýgur Celebrity Dopp-
elganger.
Árni Torfason Lost eru byrjaðir aft-
ur fyrir hörðustu aðdáendurna sem
fylgjast enn með.
Þriðjudagur
Þorgrímur Þráinsson Ætli það sé
hagkvæmara fyrir bankana að taka
við 30.000 eignum „gjaldþrota“
fólks og reyna síðan að selja þær
með 50% afslætti til að fá upp í
skuldir? Og hafa þannig áhrif á
fasteignaverð? Af hverju ekki að af-
skrifa (leiðrétta) skuldir um 50% og
allir verða sáttir?
Björn M. Sigurjónsson Íslenskar
rannsóknarnefndir eiga að yf-
irheyra fyrir opnum tjöldum. Ég vil
fá að heyra spurningarnar og svör-
in.
Fésbók vikunnar flett