SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 44

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 44
44 7. febrúar 2010 Shirley Manson Shirley Manson, söngkona Gar- bage, hefur ýjað að því að ný plata sé væntanleg frá þessari gæða- sveit en sú síðasta, Bleed like me, kom út 2005. Manson setti inn skilaboð á Fésbókarsíðu sína daginn eftir Grammyverðlaunin þar sem segir: „Getiði nú með hverjum ég var í hljóðveri í síðustu viku. Yrðuð þið glöð ef einn þeirra héti Steve, annar Duke og sá þriðji væri upptökustjóri sem var að vinna Grammy?“ Hér vísar hún í félaga sína, þá Steve Marker, Duke Erikson og Butch Vig, en hann landaði Grammystyttu fyrir upptökustjórnun á plötu Green Day, 21st Century Breakdown, þá um kvöldið. Færsla Manson er annars löng og hysterísk og hana er hægt að grafa upp á alnetinu með réttum tækjum og tólum. Ný plata frá Garbage? Fáar rokksveitir státa af jafn tilkomu- mikilli arfleifð og breska síðpönksveitin Joy Division. Áhrifin snerta fjölmörg svið og þeirra gætir enn í allra handa fram- sæknu rokki. Hvort heldur sem menn sækja í angistarfulla, tilvistarkreppulega texta söngvarans Ian Curtis (sem framdi sjálfsmorð eftir að þessi plata, önnur plata sveitarinnar, kom út árið 1980) eða þá að þeir afrita stíl sveitarinnar nánast 100% (Interpol, Edi- tors o.fl.). Á dögunum renndi ég í gegnum ágæta heimildarmynd um sveitina frá árinu 2007 sem kallast einfaldlega Joy Division. Þar kemur m.a. fram að Joy Division hafi verið fyrsta sveitin sem nýtti sér hugmyndafræði pönksins, þ.e. reiðina og brjálæðið, til að virkja eitthvað dýpra. Innri tog- streitu, tilfinningaflækjum og angist var veitt út í myrkum textum Curtis og tónlist sem var eins og sniðin að ömurðinni sem lék um nið- urníddar verksmiðjuborgir þessa tíma, en Joy Division gerði út frá Manchester. Ferill sveitarinnar var stuttur og aðeins komu út tvær plötur, báðar algjör meistaraverk. Frumburðurinn, Unknown Pleasures, kom út 1979 og lokaplatan, Closer, ári síð- ar. Sveitin hafði þá þróast á ljóshraða og gull og grænir skógar virtust bíða. Curtis hengdi sig aftur á móti degi fyrir fyrsta Ameríkutúrinn. Hann var tuttugu og þriggja ára gamall. Undir lok mynd- ar rifjar hönnuðurinn Peter Saville, sem átti mikinn þátt í ímynd sveitarinnar með kaldhömruðum, minimalískum umslögum, það upp að það hafi því verið óheppilegt að hafa grafhvelfingu utan á um- slaginu. En það var helber tilviljun eins og svo margt í sögu þessarar stórmerku sveitar. arnart@mbl.is Poppklassík Joy Division - Closer Endalokin L il Wayne heitir fullu nafni Dwayne Michael Carter og er fæddur og upp alinn í New Or- leans. Hann fór að rappa með strákasveitinni Hot Boys með góðum árangri aðeins fimmtán ára gamall og tveimur árum síðar hrinti hann af stað sólóferlinum með plötunni Tha Block Is Hot sem seldist bráðvel og fékk fjölda verðlauna. Næsta plötur gengu aftur á móti ekki eins vel og svo virtist sem ferillinn væri búinn áður en piltur yrði tvítugur. Lil Wayne var þó á öðru máli, tók sér tak og skrifaði rímur af kappi næstu árin. Næsta plata, Tha Carter, var líka tvö ár í smíðum og hljómaði mun betur en fyrri verk, svo miklu betur reyndar að hún náði hátt á breiðskífulistanum vestan hafs. Næsta plata, Tha Carter II, nema hvað, seldist líka vel, en í kjölfar hennar hófst mjög sérkennileg og snúin útgáfusaga því næsta eiginlega breiðskífa, Tha Carter III kom ekki út fyrir en þremur árum síðar. Alltaf var maður þó að rekast á ný lög eftir hann og allskonar sjóræningja og safn- útgáfur með nýju efni. Hann gaf nefnilega út safnskífur þar sem hann ýmist rappaði eða hafði lögin rapplaus, en flest eða öll áttu það sameiginlegt að byggjast á óleyfilegum hljóðbútum í bland við frumsamda takta. Plöturnar / teipin sem komu út 2005 til 2008 eru The Suffix, Dedication, De- dication 2, Da Drought 3 og De- dication 3 og þar er marga perl- una að finna. Allt varð þetta til að halda nafni Lil Wayne á lofti og undir- strika að það komist fáir með tærnar þar sem hann hafði hæl- ana í rímnasnilld. Kom ekki á óvart að þegar hann loks sendi frá sér Tha Carter III seldist hún í milljónavís. Það má því segja að Lil Wayne hafi verið á hátindi ferils síns, rímnasmiðurinn mikli og allt sem hann snerti varð að gulli. Á slíkum stundum missa menn gjarna tengsl við raunveruleik- ann, halda að þeir séu almátt- ugir, sem skýrir kannski næsta útspil kappans; næsta plata hans yrði rokkskífa. Rokkplatan hans Lil Wayne heitir Rebirth og kom út fyrir rétt tæpri viku. Óhætt er að segja að gagnrýnendur hafi tekið plöt- unni illa; sérfræðingar í hiphopi finna henni flest til foráttu og rokkararnir allt. Tónlistin á skíf- unni er eins konar blanda af rokki og rappi og söngurinn keyrður í gegnum Auto-Tune stillihugbúnað og hljómar eig- inlega verr en hægt er að lýsa. Það er þó ákveðin huggun fólgin í því að ekki er langt að bíða næstu Tha Carter-plötu: Tha Carter IV kemur víst út í haust. Rappari eða rokkari? Rapparinn knái Lil Wyne fór heldur en ekki út af sporinu þegar hann sendi frá sér rokkskífuna Rebirth um daginn. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Dwayne Michael Carter eða bara Lil Wayne – frábær og afkastamikill rappari en hörmulegur rokkari. Já, hann kann að pósa með gít- arinn, en vantar flest annað. Tónlist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.