SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 27
7. febrúar 2010 27
B
esti vinur Hussams heitir Jaher.
Þeir gera allt saman en finnst
skemmtilegast að horfa á uppá-
haldsliðið sitt, Real Madrid,
spila. Vinirnir tveir búa í þorpinu Deir al
Ghussour, um tuttugu kílómetra frá borg-
inni Tulkarem á norðvesturhluta Vest-
urbakkans. Tvo kílómetra frá Deir al Gho-
ussour er verið að byggja svokallaðan
„öryggismúr Ísraelsmanna“.
Á meðan bygging múrsins stóð yfir var
reist grindverk útbúið rafmagni, gaddavír
og öryggismyndavélum. Grindverkið af-
markar land sem bændur í þorpinu eiga og
nú þurfa þeir að að biðja um leyfi frá ísr-
aelska hernum til að vinna við ólífutrén –
leyfi sem sjaldan fæst.
14. nóvember síðastliðinn skipulögðu
þorpsbúar mótmælagöngu til að andmæla
eignatöku ólífuakranna. Gangan hófst í
þorpinu og fólkið gekk upp að hliði á
múrnum sem kallast al Jarushiya. Unga
fólkið í þorpinu tók líka þátt í göngunni og
þegar fólkið var komið að hliðinu ýttu
margir unglingarnir því upp og náðu að
brjóta sér leið í gegnum það. Unglingarnir
voru á milli 10 og 18 ára, en þrátt fyrir
ungan aldur þeirra hófu ísraelsku her-
mennirnir að skjóta gúmmíkúlum (sem
eru reyndar gúmmíhúðaðar stálkúlur),
táragasi og hljóðsprengjum á hópinn.
Ungmennin svöruðu með grjótkasti en þá
keyrðu nokkrir hermenn í gegnum þvög-
una á jeppa og handtóku nokkra krakka.
Hussam var á meðal þeirra.
Þrátt fyrir að vera barn var Hussam
laminn af hermanninum sem handtók
hann. Að sögn Hussams notaði hermað-
urinn einhverskonar mjúkt prik og barði
hann í fótleggina. Hann var dreginn burt
af svæðinu og settur ásamt öðrum upp við
tré. Þar var bundið fyrir augu hans og
hendur hans bundnar saman með plast-
límbandi. Honum var sagt að standa kyrr
og skipað að þegja. Hussam segist hafa
orðið mjög hræddur þarna. Fjögur önnur
ungmenni voru handtekin með honum;
tveir 15 ára drengir, einn 16 ára strákur og
18 ára piltur.
Ísraelsku hermennirnir settu svo Huss-
am og annan fanga í jeppa og keyrðu af
stað. Sjálfur veit hann ekki hversu lengi
hann var með bundið fyrir augun og með
bundnar hendur, en veit að þeir skiptu um
jeppa þar sem fleiri fangar voru settir inn
og hann heyrði hermennina tala saman.
Hussam fannst þeir keyra í langan tíma.
Á áfangastað fékk hann vatnsglas og segir
að þar hafi hermennirnir ekki verið eins
vondir og voru þeir kurteisir við hann en
áfram var hann með bundið fyrir augu og
bundinn á höndum.
Fékk martraðir og öskraði í svefni
Seinna um kvöldið var honum gefið jógúrt
að borða og eftir það kom ísraelskur lækn-
ir að skoða hann. Læknirinn bað Hussam
að standa upp og ganga. Hussam segist
hafa verið hræddur við að sýna honum
sárin á fótleggjunum sem hann fékk þegar
hermaðurinn barði hann. Læknirinn
skoðaði drenginn ekki meir og eftir það
keyrðu hermennirnir Hussam upp að eft-
irlitsstöðinni Jabbara sem er um 20 km
suður af Tulkarem. Þar segist drengurinn
hafa verið settur upp í leigubíl sem keyrði
hann heim. Klukkan var þá orðin ellefu
um kvöldið og hafði þá drengurinn verið í
ellefu klukkustundir í haldi ísraelska
hersins með bundið fyrir augu og bundinn
á höndum.
Hussam segist hafa verið mjög glaður
þegar hann komst loksins heim til fjöl-
skyldu sinnar. Faðir drengsins, Faisal abu
Tarek, tárast þegar hann heyrir son sinn
rekja sögu sína aftur og segir drenginn
ekki hafa lent í hermönnum áður.
Þegar faðirinn er spurður hvernig
drengnum hafi liðið eftir þetta atvik, segir
hann að Hussam hafi farið í skólann dag-
inn eftir en í tæpar tvær vikur hafi hann
sofið illa, fengið martraðir og jafnvel
öskrað í svefni. Honum líði betur núna.
Ísraelska dagblaðið Ynet tók viðtal við
föður Hussams og í framhaldi af því komst
málið í hendur ísraelsku mannúðarsam-
takanna B’TSELEM sem fóru í kjölfarið
með fyrirspurn til ísraelska hersins. Yf-
irmenn í hernum neituðu í fyrstu að hafa
handtekið drenginn en drógu það svo til
baka og sögðu að málið myndi verða
rannsakað að fullu.
Tveimur mánuðum síðar hafa enn engin
svör borist frá ísraelskum yfirvöldum.
Foreldrar drengsins telja að svör muni
aldrei berast og enginn rannsókn verði
hafin á því hjá ísraelskum yfirvöldum
hvers vegna 10 ára drengur var handtek-
inn og honum haldið föngnum í ellefu
klukkustundir.
Tilbúinn að kasta steinum aftur
Börn á herteknu svæðunum verða frá
unga aldri vitni að landtöku, mótmælum
og ofbeldi af hendi landnema og her-
manna og mjög ung eru þau mjög með-
vituð um hvað er á seyði í kringum þau.
Svo virðist einnig sem vald foreldra yfir
börnum sínum hafi dvínað mikið í sam-
félagi fólks sem upplifir reglulega nið-
urlægingu sem fylgir landtökunni og of-
beldinu.
Þegar Hussam er spurður hvað honum
finnist um Ísrael og Ísraelsmenn segist
hann vera hræddur við þá og finnst þeir
vera vondir. En hann segist vera tilbúinn
að kasta steinum aftur í hermennina af því
að innst inni finnst honum að það sé rétt-
ast að gera. Hussam litli segir að sig
dreymi um að verða kennari þegar hann
verði stór og að eiga appelsínutré í garð-
inum sínum, hann segir að hér eigi hann
heima. Þetta sé húsið hans og hér muni
hann vera, í Palestínu.
Saga Hussams er því miður ekki einstök
á herteknu svæðunum, sögur af þessu tagi
skipta tugum, ef ekki hundruðum.
Strákarnir þrír sem voru handteknir
með Hussam eru enn í haldi.
Stattu kyrr
og þegiðu!
Hussam Faisal Mohanna er við fyrstu sýn ósköp
venjulegur tíu ára drengur. Honum þykir, eins
og mörgum öðrum krökkum á hans aldri, gaman
að spila fótbolta og körfubolta. Uppáhaldsfagið
hans í skólanum er arabíska en hann segist
minna hrifinn af stærðfræði. En ólíkt krökkum á
hans aldri var Hussam nýlega handtekinn af ísr-
aelska hernum.
Ómar Jabali Saga Hussams Faisals Mohannas er því miður ekki einstök á herteknu svæðunum
Ljósmynd/Ómar Jabali
Ómar Jabali kvikmyndagerða-
maður hefur dvalið síðustu
mánuði á sjálfstjórnarsvæðum í
Palestínu við upplýsingaöflun
og undirbúning að heim-
ildamynd.
Myndin hefur vinnutitilinn
„Ég ætlaði að skjóta hann pabba
þinn“ og fjallar um daglegt líf
barns í litlu þorpi í norðurhluta
Palestínu þar sem amstur
hversdagsins tekur á sig allt
aðra mynd en við eigum að
venjast hér á Íslandi. Það er
kvikmyndafyrirtækið Oktober
Productions sem framleiðir
myndina. Tökur ættu að geta
hafist seinni part sumars.
Á meðan bygging múrsins
stóð yfir var reist grind-
verk útbúið rafmagni,
gaddavír og örygg-
ismyndavélum.