SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 6

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 6
6 7. febrúar 2010 Victor Moses, sem leikur ýmist sem miðherji eða út- herji, hefur á undanförnum mánuðum verið einn eftir- sóttasti leikmaðurinn utan ensku úrvalsdeildarinnar. Ekki beið orðspor hans hnekki í haust þegar hann skoraði líklega mark ársins í ensku knattspyrnunni fyrir Crystal Palace gegn Barnsley á Selhurst Park. Hann fékk þá sendingu, tók tuðruna á brjóstið rétt innan vítateigs og klippti hana aftur fyrir sig í blá- hornið. Markvörðurinn hreyfði hvorki legg né lið. Moses var meðal annars orðaður við Chelsea og Arsenal en valdi Wigan Athletic fyrr í vikunni. Kaup- verðið var hálf þriðja milljón sterlingspunda. Sjálfur er Moses ekki í minnsta vafa um að hann hafi tekið rétta ákvörðun. „Það voru miklar vangaveltur í gangi en eftir að ég hitti stjórann (Roberto Martínez) og Brendu (Spencer, framkvæmdastjóra Wigan) hugs- aði ég með mér: Þetta er rétta félagið fyrir mig. Þau buðu mig hjartanlega velkominn,“ sagði hann á heimasíðu Wigan í vikunni. Moses hefur gegnt lykilhlutverki í yngri lands- liðum Englendinga, nú síðast 19 ára liðinu, og hefur sett stefnuna á landsliðshóp Fabios Capellos. „Núna þegar ég er kominn í úrvalsdeildina gefst mér von- andi tækifæri til að sýna hvað í mig er spunnið. Það er skynsamlegast að taka eitt skref í einu og í bili mun ég helga Wigan Athletic alla mína krafta. Það yrði samt ekki amalegt að komast í A-landsliðið í framtíðinni.“ Eðli málsins samkvæmt hefur Victor Moses ekki léð máls á því að leika fyrir hönd Nígeríu. Stefnir á sæti í enska landsliðinu Victor Moses í leik með ungmennalandsliði Englands. D agurinn hófst eins og hver annar dagur í borginni Kad- una í Nígeríu. Hinn ellefu ára gamli Victor Moses var að leika sér í fótbolta ásamt félögum sínum. Enginn hafði efni á leðurbolta, þannig að tuðran var gerð úr límbandi. Þeir léku til skiptis á götunni og litlum velli með steyptu undirlagi. Aðstæður hnepptu þó ekki draumana í fjötra, hetjur Victors litla voru ensku landsliðsmennirnir David Beckham og Michael Owen. Hann var staðráðinn í að feta í fótspor þeirra þegar hann yrði stór. Skyndilega dró ský fyrir sólu. Frændi Victors kom hlaupandi og gaf honum fyrirmæli um að koma með sér – líf hans væri í bráðri hættu. Ekki nóg með það. Múslímskir ribbaldar höfðu ruðst inn á heimili hans og ráðið forelda hans af dögum. Presthjónin, Austin og Josep- hine Moses, voru fórnarlömb trúarbragðastríðs sem braust út í Nígeríu í kjölfar upptöku hinna umdeildu Sharia-laga aldamótaárið 2000. Tvö ár voru liðin en fyrir lá að prestar hins kristna minnihluta í landinu yrðu áfram skotmörk íslamista. Moses-hjónin hlutu sömu örlög og þúsundir annarra. Sendur til Englands Victor litli, sem er einkabarn, fór huldu höfði dagana eftir víg foreldra sinna. Ættingjar óttuðust að ódæðismennirnir vildu einnig ganga milli bols og höfuðs á honum. Í öryggisskyni var Victor sendur til Englands og komið fyrir hjá fóstur- foreldrum í Lundúnum. Það var mikil lífsreynsla fyrir unga manninn sem hafði ekki í annan tíma komið út fyrir Kad- una. Við komuna til Lundúna fékk hann stöðu hælisleitanda. Vistaskipti Victors spyrnustjóri Palace, Victor Moses sem hlédrægum ungum manni sem færðist allur í aukana þegar hann stigi fæti inn á fótboltavöll. „Allur sársaukinn sem fylgir honum hverfur eins og dögg fyrir sólu þegar hann er kominn með tuðruna á tærnar,“ sagði Warnock, sem sjálfur missti móður sína á svipuðum aldri. Hann bætti við að margur ungur spark- andinn, sem lítur á þægindin sem fylgja lífi knattspyrnumanna sem sjálfsagðan hlut, ætti að staldra við og hugsa um hvað Victor Moses hefur mátt þola til að ná settu marki í lífinu. Sjálfur tekur Victor í sama streng. „Þegar ég lít um öxl er ég staðráðinn í að gera eins vel og ég get og sjá til þess að ég sé á réttum stað,“ sagði hann við The Mirror. „Ég þrái gott líf og að láta gott af mér leiða. Ég vil ekki vera rangur maður á röngum stað eins og foreldrar mínir.“ bar svo brátt að höndum að honum gafst ekki einu sinni tóm til að taka ljós- myndir af foreldrum sínum með sér. Hann hefur þurft að ylja sér við minn- inguna eina. Victor hélt áfram að spyrna í Lund- únum og gekk til liðs við hverfisliðið. Þar komu útsendarar B-deildarfélags Crystal Palace auga á hann og gerðu við hann samning. Hæfileikarnir voru aug- ljósir en þjálfurum Palace gekk illa að ná til Victors í fyrstu. Hermt er að hann hafi varla tekið til máls fyrstu tvö árin í nýja landinu. Skyldi engan undra. For- svarsmenn Palace vissu að Victor hafði orðið fyrir áfalli en það var ekki fyrr en snemma á síðasta ári að hann gerði þeim grein fyrir því hvað gerðist í raun og veru. Þeim brá heldur betur í brún. Í samtali við breska blaðið The Mirror á síðasta ári lýsti Neil Warnock, knatt- Ribbaldar myrtu foreldra hans Victor Moses, nýliðinn hjá Wigan, hefur átt erfiða ævi Victor Moses hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Crystal Palace.Kappinn á það til að fagna mörkum sínum með tilþrifum. Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Victor Moses er nítján ára gamall, fæddur í Kaduna í Nígeríu 12. desember 1990. Hann vakti fyrst athygli þegar hann gerði fimmtíu mörk á einni og sömu leiktíðinni fyrir lið Crystal Palace skipað leik- mönnum fjórtán ára og yngri. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir að- allið félagsins aðeins sextán ára, árið 2007. Alls lék Moses 69 leiki fyrir Palace, skoraði ellefu mörk og lagði upp sex til viðbótar. Moses er breskur ríkisborgari og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Englands, nema 21 árs liðinu. Hann hefur gert níu mörk í fimmtán leikjum fyrir 17 ára liðið og tvö mörk í tólf leikjum fyrir 19 ára liðið. Hann á að baki tvo leiki fyrir 16 ára liðið en ekk- ert mark. www.noatun.is GRILLAÐUR KJÚKLINGUR KR./STK. 998 MEÐ HEIM HEITT Ódýrt, fljótlegt og gott!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.