SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Qupperneq 24

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Qupperneq 24
24 7. febrúar 2010 R agnar Bragason er önnum kaf- inn þessa dagana í rétt- indabaráttu fyrir kvikmynda- gerðarmenn sem verða nú að þola mikinn niðurskurð. Ríkið hefur skorið niður framlög til kvikmyndagerð- ar og RÚV hefur ákveðið að draga mjög úr kaupum á innlendu efni. Þessu hafa kvikmyndagerðarmenn mótmælt kröft- uglega og sagt að með þessum aðgerðum sé vegið illilega að íslenskri kvikmynda- gerð. „Þessa dagana helga ég mig því að réttlæta tilvist íslenskra kvikmynda,“ segir Ragnar. „Vonandi er þetta síðasti slagurinn sem þarf að taka til að sannfæra ráðamenn um mikilvægi kvikmynda- gerðar. Allar alvörumenningarþjóðir hafa fyrir löngu áttað sig á þessu en við virð- umst því miður ekki vera komin lengra en þetta.“ Hvað er að gerast hjá þér á listasvið- inu? Ertu að fara að vinna að nýrri kvikmynd eða sjónvarpsseríu? „Ég hef verið að vinna að hugmynd að sjónvarpsseríu sem gerist á geðdeild. Það er búið að leggja grunndrögin en ekki bú- ið að skrifa handrit. Þau sem vinna með mér í þessu eru þau sömu og stóðu að vöktunum og Bjarnfreðarsyni. Þættirnir eru hugsaðir sem blanda af alvöru og gamni en þarna verða ekki sömu persón- ur og í vaktaseríunum. Það hefur orðið sprenging í handritagerð fyrir sjónvarp og margir eru um hituna þannig að nú þegar lítur út fyrir að fjármagn verði af skornum skammti þá er spurning hvort takist að framleiða þessa þætti.“ Orðinn fullnuma Þú ert 38 ára gamall og það er ekki hægt að segja annað en að þú hafir notið mik- illar velgengni. Dreymdi þig snemma um að verða kvikmyndagerðarmaður? „Ég varð ungur yfirmáta heillaður af kvikmyndum. Ég er alinn upp í Súðavík og við hliðina á heimili mínu var félags- heimilið og þar voru kvikmyndasýningar þrisvar í viku. Þar átti ég mínar fyrstu stóru kvikmyndaupplifanir, eins og þeg- ar ég sá Chitty Chitty Bang Bang og annað góðmeti. Fyrsta trúarlega kvikmynda- reynslan var þegar móðir mín hrúgaði hálfu þorpinu af börnum aftur í Bronkó- inn og brunaði út á Ísafjörð þar sem við sáum Star Wars í Ísafajarðarbíói árið 1978. Þá var ég sjö ára. Mörgum árum seinna tók ég kúrs í kvikmyndagerð í Fjölbrautaskólanum í Ármúla hjá Önnu G. Magnúsdóttur. Eitt af verkefnunum á önninni var að gera stuttmynd. Anna hrósaði minni mynd og hvatti mig. Upp frá því varð ekki aftur snúið. Reyndar hafði ég ætlað að verða rithöfundur. Ég var mikill bókaormur strax sem krakki og frá tíu ára aldri voru Charles Dickens, Robert Louis Stevenson og Edgar Allan Poe mínir menn. Kvikmyndagerðin náði að sameina öll áhugasvið mín sem eru sögur, hið sjónræna, tónlist og leiklist.“ Heldurðu að þú eigir eftir að skrifa bók? „Já, það gæti orðið. Ég hef reynt að setja sumar af þeim stóru og viðamiklu sögum sem eru á floti í hausnum á mér í kvikmyndahandrit en vegna umfangs og kostnaðar eiga þær að öllum líkindum litla möguleika á að verða að kvikmynd- um. Ætli þær endi ekki sem skáldsögur einhvern tíma seinna.“ Þú hefur aldrei lært leikstjórn í skóla, sem hlýtur að þýða að þú hafir lært mest af því að horfa á kvikmyndir. „Þetta er rétt, ég lærði ekki leikstjórn í skóla heldur fór lengri leiðina. Þegar ég flutti í bæinn um tvítugt hafði ég aðgang að Aðalvídeóleigunni á Klapparstíg. Hún varð mitt fræðasetur. Í mörg ár var ég þar einn atkvæðamesti kúnninn og horfði á allar myndir sem ég komst yfir. Ég lærði mikið af því að fylgjast með hvernig aðrir gera hlutina, bæði því sem þeir gera vel og því sem þeir gera illa. Maður nær ekki tökum á neinu nema með því að vinna og framkvæma. Þeir menn sem ég lít mest upp til, eins og gömlu meistararnir Ingmar Bergman og Alfred Hitchcock, höfðu þennan háttinn á og gerðu mjög mikið af myndum. Ég hef alltaf gert eins mikið og ég mögulega get því ég trúi því að upp úr í eljunni og magninu spretti gæði. Á síðustu fimm ár- um hef ég gert þrjár bíómyndir og fjórar sjónvarpsseríur, sem telst bara nokkuð gott. Núna líður mér eins og ég sé orðinn fullnuma.“ Myndir sem hreyfa við fólki Hvernig myndir viltu gera? „Ég er alltaf að hugsa um hina full- komnu mynd en fyrst og fremst vil ég gera myndir sem hreyfa við fólki. Ég held að á endanum sé það kannski það eina sem skiptir máli. Maður er að biðja fólk um að gefa tíma af ævi sinni til að horfa á verk sem maður hefur gert. Þá skiptir máli að fólki finnist að tíma þess hafi ver- ið vel varið. Ef leikstjóri nær að skilja eftir einhverja tilfinningu eða nýja hugsun hjá áhorfandanum ætti hann að vera sáttur. En það er sem betur fer engin formúla fyrir því hvernig eigi að gera það og því er þetta endalaus leit.“ Hvernig leikstjóri ertu? „Árið 2003 ákvað ég að brjótast frá því viðhorfi að leikstjórinn væri eins konar alvaldur sem trónir yfir sköpunarverki sínu. Ég gerði tvær kvikmyndir, Börn og Foreldra, með Vesturportshópnum þar sem við í sameiningu unnum frá grunni persónur og söguþráð. Ég notaði þessa aðferð líka í vaktasjónvarpsþáttunum og kvikmyndinni Bjarnfreðarsyni. Eigum við ekki bara að segja að ég sé lýðræð- islegur kvikmyndagerðarmaður? Mér finnst mjög gaman að vinna með fólki, sem er kannski ástæðan fyrir því að ég loka mig ekki inni til að skrifa bækur. Ég er félagslyndur og mér finnst ekkert betra en að vera nálægt skemmtilegu og vel gefnu fólki. Það eru forréttindi að vera kvikmyndagerðarmaður þegar fólk leitast við að vinna með manni og maður getur unnið með nánast hverjum sem er. Leikstjórn snýst fyrst og fremst um að laða fram það besta í hæfileikaríku fólki og nýta það sem fólk hefur fram að færa. Þetta leitast ég við að gera og oftast hefur mér tekst það“ Hverjar eru mestu hæfileikamann- eskjur sem þú hefur leikstýrt? „Þær eru mjög margar. Jón Gnarr er sá leikari sem mér hefur fundist einna mest gefandi að vinna með. Hann er merki- legur maður fyrir margra hluta sakir og hefur óumdeilda snilligáfu. Það er mjög gaman að vinna með honum því maður er í hláturskasti nánast allan daginn. Hann hefur áhuga á fólki, stúderar það og hefur afburðagóðan skilning á mannlegu eðli, sem er mjög mikilvægt í leikara.“ Georg Bjarnfreðarson, aðalpersónan í sjónvarpsþáttunum og samnefndri kvikmynd, sem Jón Gnarr leikur, er eins og lifandi persóna í hugum fólks. Það hlýtur að gleðja þig. „Það fyllir mig bæði gleði og stolti. Georg Bjarnfreðarson er eins og persóna úr skáldsögu eftir Dickens. Hugmynd mín var sú að gera hann að leiðinlegasta manni sem hægt væri að hitta og Jón Gnarr fann öll réttu blæbrigðin sem skapa þannig persónu. Já, fólk talar um Georg eins og nágranna sinn og það er nánast eins og hann sé orðinn hluti af menning- unni og tungumálinu. Ef einhver þykir leiðinlegur eða fordómafullur þá er sagt: Engan Bjarnfreðarson hér!“ Dvel ekki í Næturvaktinni Tilnefningar til Edduverðlaunanna hafa verið kynntar. Fangavaktin, hinn vinsæli sjónvarpsþáttur í leikstjórn Ragnars Bragasonar, og hin rómaða kvikmynd hans, Bjarnfreðarson, fá fjölda tilnefninga. Ragnar, sem segir verðlaun skipta sig litlu máli, segist helga sig því þessa dagana að réttlæta tilvist íslenskra kvikmynda. Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.