SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 41

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 41
7. febrúar 2010 41 Harðfiskur er herramannsmatur og ugglaust uppáhaldssnakk allra sannra Íslendinga. Margt er reyndar í boði á þessum síðustu og bestu tímum en fróðlegt yrði að leggja þá spurningu fyrir Evróvisjón- áhugamenn í kvöld, hvað þeir maula fyrir framan sjón- varpið. Fullyrt skal að góður harðfiskbiti með smjöri smellpassar við öll lögin. Talið er að framleidd séu um 250 tonn af harðfiski hér á landi árlega en til þess þarf um 3.000 tonn af slægð- um fiski með haus. Afföll eru því mikil við framleiðsluna, sem skýrir hve dýr dásemdin er. Algengustu tegundir til harðfiskframleiðslu eru þorskur, ýsa og steinbítur, ævinlega er notað nýtt og ferskt hráefni og nær eingöngu fiskur sem veiddur er á línu. Í skýrslu Matvælarannsókna Íslands (Matís) frá 2007 er greint frá rannsókn sem leiddi í ljós niðurstöður sem styðja við markaðssetningu á harðfiski, bæði sem heilsu- samlegum og þjóðlegum mat, eins og þar segir. „Það er almennt vitað að fiskur hefur góð áhrif á heilsuna og harðfiskur hefur að öllum líkindum átt þátt í því að halda lífi í þjóðinni fyrr á öldum, þar sem þurrkunin varðveitti vel næringarefni fisksins og gerði það að verkum að auðvelt var að geyma hann og hafa á boðstólum árið um kring þegar matarframboð sveiflaðist mikið eftir árstímum og árferði,“ segir í skýrslunni. skapti@mbl.is Freisting Frónbúans Harðfiskur með smjöri Þegar frostið bítur finnst mörgum gott að fá yl í kroppinn með því að bergja á heitum drykk. Gott kaffi svíkur aldrei og heldur ekki blessað teið en á köldum vetrarkvöldum getur líka verið gott að fá sér írskt kaffi, sem svo er kallað. Í gegnum árin hefur þetta verið vinsæll drykkur eftir kvöldverð. Sagan segir að veitingamaður á flugvellinum í Lim- erick, sem nú er kenndur við Shannon, hafi fyrstur boð- ið upp á þennan drykk snemma á fjórða áratug síðustu aldar til þess að hressa við hrakta ferðalanga. Bætti þá slurk af góðu, írsku viskíi við svart, sterk kaffi. „Er þetta brasilískt kaffi?“ spurði bandarískur ferða- maður veitingamanninn um þennan óvenjulega drykk sem hann hafði ekki smakkað áður. „Nei, þetta er írskt kaffi,“ savaraði þá veitingamaðurin, Joseph Sheridan, og ekki varð aftur snúið. Í drykkinn er notað svart kaffi, írskt viskí, púðursykur og rjómi. Til eru sérstök glös undir hið írska-kaffi en að sjálfsögðu má blanda drykkinn í hefð- bundin glös eða könnur. Einfaldasta uppskriftin er þessi: hellið 3 cl viskís í glasið, oftast er notað Jameson en hvaða írskt viskí sem er dugar auðvitað. Bætið 1 tsk púðursykurs út í og hrærið vel. Fyllið næstum með heitu kaffi og fleytið síðan hálfþeyttum rjóma ofan á drykkinn; haldið skeið á hvolfi fyrir ofan glasið og hellið rjómanum ofaná. Einnig má nota hefðbundinn þeyttan rjóma. Alls ekki að hræra drykkinn eftir þetta heldur sötra kaffið í gegnum rjómann. skapti@mbl.is Drykkur vikunnar Írskt kaffi Uppskriftin er fyrir 5. Vinna og undirbún- ingur tekur um það bil einn og hálfan tíma. ½ sæt kartafla skorin í teninga Góð repjuolía/ólífuolía 1 gulrót skorin í teninga ½ laukur, saxaður ½ box sveppir, saxaðir 1 tsk. hvítlauksolía 600 g hakk 1 lítil dós af tómötum 2 msk. tómatpúrra Grænmetiskraftur Pestó Græn/spínat-lasagnablöð Bechamel 50 g smjör 50 g hveiti 200 ml mjólk Grænmetiskraftur Múskat 500 g kotasæla Bakað eggaldin Smurt með ólífuolíu Parmesan Rifinn ostur Aðferð Grænmetið ristað á pönnu, hakkinu bætt Lasagna með eggaldini í og hrært stöðugt í þar til hakkið brúnast. Tómatmaukinu og tómötum úr dós bætt í soðið og látið malla á vægum hita í um það bil 20-30 mínútur. Kryddað með grænmet- iskraftinum, hvítlauksolíunni og pestóinu. Bechamel-sósan: Mjólk sett yfir til suðu, smjör brætt og hveitinu blandað saman við. Smjörbolla sett út í mjólkina rétt fyrir suðu og hrært rösklega í svo ekki brenni í botni og ekki verði kekkir í sósunni. Krydduð með grænmetiskraftinum og rifnu múskati. Þeg- ar sósan er klár, þykk og fín þá er kotasæl- unni bætt út í. Eggaldinið er skorið eftir endilöngu, smurt með ólífuolíu, kryddað með salti og pipar og bakað í ofninum í um það bil 10-15 mínútur við 170°C. Að lokum: Raðið í eldfast mót: hakk, bechamel-sósa og lasagna-blöð. Gert tvisv- ar, og svo er notað eggaldin í síðasta lagið í stað lasagna-blaða og efsta lagið er svo ost- ur og parmesan. Bakað í ofni við 170°C í 40 mínútur. Á meðan lasagnað er í ofninum er skellt í flott salat og dressingu. Gott er að hafa baguette-brauð, súrdeigs- eða skorpubrauð með. því að elda heima og kannast alls ekki við það að fá leið á því í vinnunni. Hann segir að í raun hafi aldrei annað komið til greina en að verða kokkur og virðist sem mat- ariðnin sé honum í blóð borin. „Við erum fjórir bræður, tveir kokkar og einn bakari. Og sá fjórði er ekki í faginu en konan hans er kokkur. Pabbi var verkstjóri hjá Brauði hf. í gamla daga og við byrjuðum mjög ungir að vinna í bakaríinu. En tíminn þar var svo leiðinlegur að ég fór í kokkinn, elti annan bróður minn í það. Einn varð eftir í bakaríinu,“ segir Stefán og segist aldrei hafa ver- ið sterkur í bóknámi hvort eð er. Hann lærði í Múlakaffi og Veitinga- höllinni og útskrifaðist úr Hótel- og veitingaskólanum og segist í dag telja sig ákaflega lánsaman að vera yfir- kokkur á frábærum veitingastað. Jafnvel þegar Stefán fær frí frá vinnunni á hótelinu hættir hann ekki að elda. Fjölskylda hans rekur lítið veiðihús í Selá í Vopnafirði og eyðir hann jafnan mánuði á sumrin þar með konunni og börnunum. „Þetta er bara paradís, að fara úr hvers- dagsamstrinu og vera bara að elda fyrir fáa veiðimenn. Ég tek fjölskyld- una með mér og og við erum bara svona fjórar, fimm vikur á Austur- landi.“ Aðspurður hvort hann lumi á ein- hverjum ráðum í eldhúsinu stendur ekki á svari. Hann segir gott að reyna að búa til sitt eigið hráefni frá grunni og nefnir til dæmis hvítlaukssósu, sem hann segir alltaf gott að eiga, og pestó. „Það er svo gott að eiga þetta inni í ísskáp. Ég kaupi alltaf ferskt basil úti í búð og bý til gott pestó og á það í krukku inni í kæli. Og það er hægt að borða með öllu, maður er til dæmis snöggur að búa til pastarétt ef maður á þetta til. Og ég mæli með því að nota fiskbúðir. Ég kaupi bara ferskan fisk sem ég veit að er nýr og lítur vel út,“ segir Stefán að lokum. ’ Yfirleitt borða þeir betur þegar mamma þeirra lagar það heldur en þeg- ar ég geri það Bolludagurinn verður haldinn hátíðlegur eftir rúma viku og eflaust eru margir farnir að hlakka til að troða sig út af rjómabollum og öðru hefðbundnu góðgæti. Margir hafa þá reglu þann dag að bjóða fjölskyldunni upp á venjulegar bollur úr kjöti eða fiski eftir vinnudaginn en vilji einhver koma á óvart að kvöldi dags eða bjóða upp á nýstárlegt nasl í hádeginu eða sem næt- ursnarl er hægt að benda á gamla, sáraein- falda uppskrift úr Ostalyst, bók sem Osta- og smjörsalan sf. gaf út fyrir drjúgum tveim- ur áratugum. Hráefnið er þetta: 1 kg nautahakk (sem úr verða 48-60 bollur) 125 g gráðaostur, stappaður 1 tsk salt smjör eða olía til að steikja í Síðan segir: „Blandið saman nautahakki, gráðaosti og salati. Mótið litlar bollur u.þ.b. 2-2½ cm í þvermál. Steikið. Setjið tann- stöngul í hverja bollu. Berið bollurnar fram kaldar með sósu til að dýfa þeim í. Viðbót á bolludaginn Kjötbollur með gráðaosti

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.