SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 42
42 7. febrúar 2010
U
m síðustu helgi var umfjöll-
unarefnið á síðunni sam-
drátturinn í íslenska kvik-
myndageiranum. Vandamálið
er hrikalegt en ástandið er sannarlega
myrkara hjá starfsbræðrum þeirra í
Mexíkó. Lítum á dæmi.
Á stórum svæðum í Mexíkó þurfa íbú-
arnir ekki aðeins að berjast við kröpp
kjör og yfirgang glæpagengja sem sum
hver tengjast eiturlyfjabarónum, -fram-
leiðendum og -smyglurum, heldur sæg
forhertra öfugugga og nauðgara sem
tímgast vel við þær sérstöku aðstæður
sem hafa skapast ekki síst í héruðunum
og borgunum sunnan landamæra Banda-
ríkjanna. Óvíða mun glæpatíðnin vera
hærri en í Ciudad Juarez, sem stendur
andspænis El Paso í Texala, Rio Grande
skilur löndin að.
Það er heldur óaðlaðandi, umfjöllunar-
efni Mexíkóans Sabinu Berman í El
Traspatio. Sama máli gegnir um töku-
staðinn, sem er Ciudad Juarez, ein ill-
ræmdasta glæpaborg landsins og státar af
flestum morðum, þó samkeppnin sé
hörð. Það er ekki heiglum hent að
hreiðra um sig í Juarez til þess að stinga á
meinsemdum borgarinnar en handrit El
Traspatio, eða Bakgarðurinn, er byggt á
hundruðum óleystra nauðgunar- og
morðmála ógæfusamra kvenna sem hafa
verið í rangri borg á röngum tíma. Berm-
an er þekktust fyrir gamanmyndir og það
þurfti að sannfæra hana áður en hún
féllst á að skrifa hina átakanlegu El
Traspatio. Henni voru kynntar aðstæður
kvenna við landamærin, sjálf átti hún
viðtöl í hundraðavís við konur sem störf-
uðu við svokallaðar maquiladora, verk-
smiðjur sem hafa risið eins og gorkúlur
sunnan landamæranna á undanförnum
árum. Þær eru mataðar með ýmiskonar
hráefni sem kemur víðs vegar að og er
fullunnið í mismunandi vörutegundir
sem síðan eru fluttar fullunnar aftur út.
Verksmiðjurnar, sem ganga fyrir andlits-
lausum massa ódýrs vinnuafls fátækra
verkakvenna, hafa verið fengsælustu mið
nauðgaranna og morðvarganna og Berm-
an var fljót að ákveða sig.
El Traspatio er sögð hefjast á nærmynd
af kvenmannshári sem flagsast í gadda-
vírsgirðingu úti á eyðimörkinni við Jua-
rez, þar sem flest lík fórnarlambanna
finnast. Þessi ófagra sjón gefur tóninn í
mynd sem lögð var fram af hálfu Mexíkó í
keppninni um bestu, erlendu mynd árs-
ins 2009. El Traspatio þykir ljót, en hún
hefur hvarvetna hlotið góða dóma og tal-
in mikilvægt innlegg í umræðuna um
ódæðisverkin sem hafa verið kölluð
„femicide“ – kvennamorð. „Myndin lýs-
ir afskiptaleysinu og afneituninni í mexí-
kósku samfélagi gagnvart kvennamorð-
unum. Hér er við hryllilegt vandamál að
etja; „Við getum ekki leyst það, ræðum
um eitthvað annað,“ er viðkvæði vald-
hafanna í Mexíkó,“ segir Berman.
Myndinni leikstýrir Carlos Carrera,
einn farsælasti kvikmyndagerðarmaður
Mexíkóa. El Traspatio fylgir óvenju
dyggilega störfum rannsóknarlögreglu-
manns sem kannar morðin og segir sam-
hliða sögu ungrar og saklausrar mexí-
kóskrar stúlku sem kemur í atvinnuleit
til Juarez en lendir í klóm óaldarlýðsins.
Yfirvöld héldu mikilli pressu á kvik-
myndagerðarfólkinu, óttuðust að mynd-
in kæmi til með að fæla viðskiptavini og
fjárfesta frá verksmiðjunum. Þau sneru
sér einnig til fjölmiðla og bönnuðu þeim
að birta fréttir af morðæðinu.
Morðaldan reis hæst á 10. áratugnum,
þó er vitað um 2000 morð sem voru
framin á síðasta ári, en tengjast nú í
meira mæli eiturlyfjatraffíkinni. Þrátt
fyrir óöldina í borginni ákvað kvik-
myndafólkið að taka myndina í Juarez, í
lítilli þökk yfirvalda. Ákvörðunin gefur El
Traspatio raunveruleikablæ, tökumenn-
irnir voru í marggang mitt í hita ofbeldis-
ins í þessari lítt árennilegu borg.
Borgaryfirvöld vildu ekki hætta á að
eitthvað kæmi fyrir kvikmyndagerð-
arfólkið. Tvöföld gæsla lögreglu og her-
manna fylgdi því hvert fótmál. Tveir lög-
reglumenn voru myrtir meðan á tökum
stóð, aðrir lentu í hremmingum.
Við skulum vona að Il Traspatio fari
ekki fram hjá haukfránum augum RIFF
og Græna ljóssins.
Það er heldur óaðlaðandi, umfjöllunarefni Mexíkóans Sabinu Berman í Bakgarðinum eða El Traspatio.
Viðsjárverð mexíkósk
kvikmyndagerð
Handritshöfundurinn Sabina Berman segir að gerð El Traspatio í glæpa-
vilpunni Juarezs í Mexíkó, angri yfirvöld og krefjist mikillar öryggisgæslu
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Verður það endurgerð Clash
of the Titans sem ýtir Avatar
úr toppsætinu? Það hlýtur
reyndar að teljast ólíklegt því
endurgerðin verður ekki
frumsýnd fyrr en 2. apríl. En
Warner er búið að læra sína
lexíu af velgengni Avatar, því
þar á bæ er búið að skipta um
hernaðaráætlun og ákveða að
sýna þessa vísindaskáld-
sögulegu framtíðarfantasíu í
þrívídd. Því ekki að reyna?
Warner hyggst gera gott bet-
ur og nú er ljóst að helstu
myndir kvikmyndaversins í
ár verða allar gerðar í þrí-
vídd. Þ. á m., Harry Potter
and the Deathly Hallows,
Part 1 (nóvember), Cats &
Dogs: The Revenge of Kitty
Galore (júlí), og Guardians of
Ga’Hoole (september.)
Hitt er annað mál að mark-
aðsfræðingunum líst ekkert
of vel á hugmyndina með
Clash..., ástæðan er sú að
skömmu áður eða 26. mars,
frumsýnir DremWorks
Animation How to Train Your
Dragon. Þar að auki verða
fyrir þrívíddarmyndirnar
Alice in Wonderland (opnar
5.03), og enginn veit hversu
mörg eintök af Avatar verða
enn í gangi í þeim tiltölulega
fáu kvikmyndahúsum sem
komin eru í gagnið með full-
komna 3-D sýningartækni.
Kvikmyndafréttir Warner gerir fleiri þrívíddarmyndir
Ýtir Clash of the Titans Avatar úr toppsætinu?
Sam Worthington í hlutverki Perseus í endurgerð Clash of the Titans.
Föstudagur 12.02 kl. 22:45 RUV
Spennumynd frá 04, gerð eftir klassík
Frankenheimers frá ́62. Í endurgerðinni eru
fórnarlömbin úr Persaflóastríði, þeim er
rænt og þau heilaþvegin til brúks í samsæri
þar sem Bandaríkjaforseti kemur við sögu.
Góður leikhópur en jafnast ekki á við þá fyrri.
Samt sem áður prýðileg afþreying. Leikstjóri
Jonathan Demme. Aðalleikarar: Denzel
Washington, Liev Schreiber, Jon Voight og
Meryl Streep. *** ½
Samsærið – The
Manchurian Candidate
Laugardagur 06.02. kl. 21:40. (RUV)
Hirðulaus móðir (Kyra Sedgewick), kemur
syni sínum (Haley Joel Osment), fyrir hjá
stórskrítnum og þjóðsagnakenndum bræðr-
um úti á landsbyggðinni. Dvölin verður
stráksa til góðs hjá bræðrunum, frændum
hans, sem kunna að gera hversdagsleikann
að ævintýraheimi. Samleikur Caine og Du-
vall er óborganlegur og Osment stenst þeim
snúning. Óvenjuleg, jákvæð og ómissandi
fjölskylduskemmtun. Leikstj: Tim McCan-
lies. ****
Myndir vikunnar í sjónvarpi
Gömlu ljónin –
Secondhand Lions
Kvikmyndir