SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Qupperneq 55
7. febrúar 2010 55
L
istasafn Reykjavíkur
kynnir unga listamenn í
D-sal Hafnarhússins;
að þessu sinni sýnir þar
Dodda Maggý. Um er að ræða
innsetninguna Lucy sem bygg-
ist á hljóði og myndbandi. Með
tæknina að vopni skapar lista-
maðurinn skilyrði fyrir óvenju-
lega skynræna upplifun sýning-
argesta.
Fyrst er skynjunin rugluð eða
„afstillt“ með því að leiða gesti
inn í myrkvað rými þar sem
ómar angurvær söngur. Hljóðið
ferðast um salinn og er þannig
skerpt á skilningarvitunum,
ekki síst heyrninni þegar
„áhorfandinn“ reynir að átta
sig á aðstæðum. Og áhorfið fær
sinn skammt; athyglin beinist
fljótlega að skjámynd sem í til-
viki undirritaðrar virkaði í
fyrstu sem afstrakt litaflæmi, og
stemningin fljótandi, óhlut-
bundin og andleg. Þá tekur á
skjánum að glitta í konu í
skrautlegum búningi, sem leiðir
hugann að sirkus eða skemmt-
anaiðnaði af einhverju tagi.
Fyrir utan að vera blekking á
tjaldi, býr þessi kona yfir tals-
verðum annarleika; látbragð
hennar er tregafullt og hún sést
aðeins að hluta sem flöktandi
ímynd í myrkrinu, dálítið eins
og logi sem leitast við að draga í
sig súrefni – en hér er það
hljóðið, söngurinn, sem glæðir
ásýnd verunnar. Við rétt ákall
birtist hún eins og andinn í æv-
intýrinu um Aladdín.
Dodda Maggý líkir hér á viss-
an hátt eftir bíóreynslunni, þ.e.
þeirri sem fæst í dimmum sýn-
ingarsölum kvikmyndahúsa.
Hún einangrar þó „bíógestinn“,
magnar og kemur óvanalegri
hreyfingu á hljóðið, einfaldar
og dempar myndina. Ólíkt því
sem gjarnan gerist í bíó – að
áhorfandinn gleymi sér í sjón-
arspilinu – virkjar eða lýsir
Lucy smám saman líkamlega
skynjun og tilfinningu fyrir
rýmislegri stöðu sýningargesta
sem umluktir eru ljósgeislum
og ósýnilegum hljóðbylgjum.
Hér er á ferðinni fallega unnin
sýning sem kveikir ýmsar hug-
leiðingar um samspil skynjunar
og tækni, efnis og anda.
Andinn í lampanum
MYNDLIST
Dodda Maggý – Lucy
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús
Til 21. febrúar 2010. Opið alla daga
kl. 10-17. Aðgangur ókeypis. Sýning-
arstjóri: Yean Fee Quay.
Lucy er blekking á tjaldi.
Anna Jóa
W
oody Allen fór eitt sinn á hraðlestr-
arnámskeið. Hann las bókina Stríð og
friður eftir Tolstoy á tuttugu mín-
útum. Og komst að því að hún væri
um Rússland.
Eitthvað svipað átti sér stað á óperusýningu á
Myrkum músíkdögum. Maður fékk í hendur tón-
leikaskrá þar sem fram kom að flytja ætti raf-
óperuna Farfuglinn eftir Hilmar Þórðarson. Óper-
an væri byggð á ævintýri eftir H.C. Andersen,
Móðurinni, og ljóðabókinni Farfuglum eftir R. Ta-
gore. Í tónleikaskránni stóð aðeins að óperan væri
um dauðann. Maður fékk ekki að vita neitt um
söguþráðinn.
Ég hugsa að mörgum hafi fundist torvelt að átta
sig á hvað var að gerast þegar óperan var flutt.
Söngurinn var á íslensku, en söngvararnir voru
ekkert sérstaklega skýrmæltir. Að kannast við
þetta ævintýri Andersens hjálpaði, en hversu
margir í salnum höfðu lesið það, eða ljóð Tagores?
Að kalla óperuna rafóperu er kannski ekki alveg
rétt. Vissulega léku rafhljóð stórt hlutverk í hljóð-
heimi verksins, þau voru grunnurinn sem lifandi
söngur og hljóðfæraleikur var lagður á. Rafhljóðin
voru kynlega einsleit (miðað við alla möguleikana
sem þau bjóða upp á), sömu effektarnir voru not-
aðir aftur og aftur. Óneitanlega var stemningin oft
mögnuð, en minni endurtekningar og fleiri litir
hefðu gert verkið meira spennandi.
Svipaða sögu er að segja um hljóðfæraraddirnar,
sem féllu fremur máttleysislega inn í heildar-
hljóminn. Maður spurði sjálfan sig til hvers væri að
hafa tvo grímuklædda hljóðfæraleikara á sviðinu,
sem gerðu ekkert annað en að spila. Kannski hefðu
þeir mátt taka meiri þátt í atburðarásinni.
Óperan snýst um dauða barns. Móðir barnsins
fer í ríki Dauðans til að reyna að endurheimta það.
Í leiðinni öðlast hún dýpri skilning á tilverunni.
Halla Messíana Kristinsdóttir var í hlutverki
barnsins og skilaði því með sóma. Söngur hinna
söngvaranna, þeirra Ingibjargar Guðjónsdóttur og
Jóhanns Smára Sævarssonar, var líka fallegur, en
síendurteknar laghendingar voru á köflum þreyt-
andi áheyrnar. Jóhann Smári var í mörgum hlut-
verkum (skemmtilega útfærðum með mismun-
andi brúðum sem hann hélt á) en tónlistin
undirstrikaði það alltof sjaldan.
Engu að síður var ýmislegt gott við sýninguna.
Sviðið í Salnum í Kópavogi er pínulítið, en samt
skapaði skjáhvíluleg grafík á veggnum ótrúlega
mergjað andrúmsloft. Brúður Messíönu Tóm-
asdóttur voru líka sterkir karakterar. Það var ein-
hver draumkennd stemning yfir heildarmyndinni,
sem var sjarmerandi. Kannski má segja að þessi
ópera sé fyrst og fremst heillandi myndlistaverk,
skreytt tónum. Með fjölbreytilegri hljóðheimi
hefði sjarminn þó getað verið mun meiri.
Jónas Sen
Ríki dauðans
TÓNLIST
Óperusýning
bbmnn
Salurinn í Kópavogi
Farfuglinn, rafópera eftir Hilmar Þórðarson. Handrit, leik-
stjórn, leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir. Að-
stoðarleikstjórn: Pálína Jónsdóttir. Rafslagverk og hljóð:
Gísli Galdur. Flytjendur: Ingibjörg Guðjónsdóttir, Jóhann
Smári Sævarsson, Halla Messíana Kristinsdóttir, Mel-
korka Ólafsdóttir og Rúnar Óskarsson.
Óperan Farfuglinn snýst um dauða barns.
Í tilefni af 100. ártíð Leos Tostojs
verður mikið um dýrðir víða um
heim. Skammt er í frumsýningu
kvikmyndar um Tolstoj þar sem
Christopher Plummer leikur
skáldið mikla, nýjar þýðingar
koma út á helstu verkum hans
og svo má telja.
Einna mestu fengur er þó í
rússneskri heimildarmynd sem
dregin hefur verið fram í dags-
ljósið, en í henni má sjá Tolstoj á
búgaði sínum 1908. Áhugi fyrir
Tolstoj er annars lítill í Rúss-
landi, aðallega fyrir andstöðu
hans við Réttrúnaðarkirkjuna
sem bannfærði hann 1901, og
aftur 100 árum síðar.
Christopher Plummer í hlutverki
sínu sem Leo Tolstoj.
Af Tolstoj
LISTASAFN ÍSLANDS
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Barnaleiðsögn
Sunnudaginn 7. febrúar kl. 14
2 fyrir 1 af aðgangseyri
Sunnudaginn 7. febrúar
Opið alla daga nema mánudaga 11-17
Aðgangur ókeypis fyrir börn
www.thjodminjasafn.is - s. 530 2200
Söfnin í landinu
16. janúar - 28. febrúar
Endalokin - Ragnar Kjartansson
Ljósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Sunnudag 7. febrúar kl. 15
- Listamannsspjall
með Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
í samstarfi við Listasafn Íslands
ÍSLENSK MYNDLIST
hundrað ár í hnotskurn
kaffistofa – leskró
barnahorn
OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
CARNEGIE ART AWARD 2010
8.1. - 21.2. 2010
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 7. febr. kl. 14
SAGAN Á BAK VIÐ VERKIN
Kristín Arngrímsdóttir myndlistarmaður með leiðsögn um sýninguna.
SAFNANÓTT föstudaginn 12. febr. kl. 19-24
DRAUMAR
Leiðsögn kl. 20 og 22.30, Tískusýning kl. 21,
SAFNBÚÐ Úrval af listaverkabókum, listaverkakortum, plakötum,
íslenskum listmunum og gjafavöru.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR www.listasafn.is
Listasafn: Björn Birnir
Afleiddar ómælisvíddir
Bíósalur: Verk úr safneign
Listasafns Reykjanesbæjar
Bátasafn: 100 bátalíkön
Byggðasafn: Völlurinn
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com