SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Page 30
30 13. júní 2010
U
ngir bændur viðruðu á dögunum sín
sjónarmið um sameiginlega varn-
armálastefnu ESB og hugsanlegar
afleiðingar hennar hér á landi gengi
Ísland í sambandið. Fengu þeir heldur óblíðar
viðtökur hjá þeim sem gengið hafa sambandinu
á hönd hér á landi og vilja ekki að nafn þess sé
lagt við nokkuð það sem þeir ætla hégóma. Var
fremur ónotalegt að heyra oflætistóninn í garð
hinna ungu bænda, þótt vissulega hafi mátt
ræða um gildi og þýðingu sjónarmiða þeirra.
Þrengt að samtökum bænda
Með sama hætti hefur verið haft í lítt dulbún-
um hótunum í garð bændasamtakanna og því
haldið fram að þau séu að nýta fé frá ríkisvald-
inu til áróðurs gegn aðild að ESB, sem hið
sama ríkisvald sé að berjast fyrir. Við skulum
um stund líta framhjá hinum ógeðfelldu hót-
unum í garð bænda. En jafnvel að þeim hlið-
settum er margt að athuga við röksemdafærslu
aðildarsinna í ríkisstjórninni. Í fyrsta lagi er
ríkisvaldið aðeins milligönguaðili á milli al-
mennings og Bændasamtakanna. Og allir vita
að íslenskur almenningur er miklu hallari und-
ir sjónarmið bænda í málinu en þeirra sem fara
nú um hríð með forsjá ríkisvaldsins í landinu.
Það sýna allar kannanir með afgerandi hætti. Í
annan stað er stuðningur við íslenskan land-
búnað hluti af þeim vilja þjóðarinnar að tryggja
stöðu hans í samkeppni við niðurgreidda starf-
semi annars staðar og tryggja að Íslendingar
geti ætíð búið að sínu í grunnframleiðslu mat-
væla, sem eru að auki í háum gæðaflokki hér á
landi. Er sá stuðningur markaður ákveðnum
þáttum og nýtist þeim og bændum í fyrstu
umferð og neytendum, öllum almenningi land-
inu, í framhaldinu.
Viðtalið við Harald Benediktsson
Formaður Bændasamtakanna, Haraldur Bene-
diktsson, ræðir meðal annars um þetta atriði í
myndarlegri útgáfu Bændablaðsins sem kom út
í vikunni. Haraldur bendir á að margt sem
bændur hafi þurft að eiga samstarf um við rík-
isvaldið hafi verið stirt að undanförnu, og sér-
staklega þegar kemur að búvörulögum. Svo
segir: „Haraldur segir jafnframt að það geti
verið svo að sú umræða sem ýmsir hafi tekið
þátt í um að fjármunir sem veitt sé til Bænda-
samtakanna í gegnum búnaðarlagasamning séu
notaðir í einhverjum annarlegum tilgangi sé að
þvælast fyrir samningagerðinni. Spurður um
hvort hann sé að vísa til opinberrar og ein-
arðrar andstöðu Bændasamtakanna við aðild að
Evrópusambandinu svarar hann því játandi.
„Við höfum verið sökuð um að nota þessa fjár-
muni til að voga okkur að hafa skoðun en allir
sem áhuga hafa á að kynna sér málið sjá að
fjármunir frá ríkinu eru kirfilega eyrnamerktir
lögbundnum verkefnum. Að halda öðru fram
er beinlínis ásökun um misnotkun á fjár-
munum.“ Haraldur segir hins vegar fráleitt
annað en að Bændasamtökin beiti sér gegn að-
ild og það af fullri hörku. „Afstaða bænda
varðandi Evrópusambandsaðild er algjörlega
skýr. Á Búnaðarþingi í vetur var ályktað gegn
Evrópusambandsaðild og á aðalfundum lang-
flestra aðildarfélaga samtakanna í vetur og vor
hefur sú ályktun verið ítrekuð. Afstaða Bænda-
samtakanna er ekki búin til í tómarúmi í
Bændahöllinni, hún er sjálfsprottin hjá bænd-
um sjálfum. Það er nú svo einfalt að við höfum
engan rétt til þess að vinna að einhverju öðru
en því sem bændur vilja að unnið sé að.““
Grímulaus fjárkúgun
Þær upplýsingar sem lesa má úr þessu athygl-
isverða viðtali við formann Bændasamtakanna
eru einnig alvarlegar. Ríkisvaldið er að reyna
að kúga bændur fjárhagslega vegna afstöðu
þeirra til aðildarumsóknar að Evrópusamband-
inu. Hér er því mikið alvörumál á ferðinni og
sérkennilegt að það hafi ekki verið tekið til
umræðu á Alþingi Íslendinga. En það er einnig
sérstakt við hvaða aðstæður þetta er að gerast.
Auðvitað hefur stór hluti forystumanna Sam-
fylkingarinnar lengi fjandskapast út í bændur,
ekki síst sá hluti hennar sem kom úr Alþýðu-
flokknum, þótt þar hafi einnig mátt finna
menn sem báru góðan hug til íslenskra bænda.
En landbúnaðarráðherrann kemur úr röðum
Vinstri-grænna og ekki hefur verið talin
ástæða til að efast um góðan hug hans til
bænda. Formaður þess flokks heldur um taum-
ana í fjármálaráðuneytinu. Auðvitað er alkunna
Reykjavíkurbréf 11.06.10
Bændur beittir kúgunum