SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Side 8
8 1. ágúst 2010
James Owen Sullivan fæddist í Huntington Beach, Kali-
forníu, 9. febrúar 1981. Hann eignaðist sitt fyrsta trommu-
sett fjögurra ára og stofnaði Avenged Sevenfold árið 1999
ásamt æskuvinum sínum Matt Sanders (M. Shadows) og
Zachary Baker (Zacky Vengeance). Þeir félagar eru
dramatískir í nálgun sinni við listina og því fór vel á því að
þeir tækju sér sviðsnöfn. Sullivan réðst ekki á garðinn þar
sem hann var lægstur, kallaði sig The Reverend Tholomew
Plague, sem oftast var þó einfaldlega stytt í The Rev.
Sullivan var margt til lista lagt en auk þess að lemja húð-
ir, spilaði hann á píanó og söng bakraddir (oft afgerandi).
Þá tók hann alla tíð virkan þátt í lagasmíðum sveitarinnar,
meðal annars á nýju plötunni meðan hans naut við.
Sullivan var mikið tæknitröll og þótti djarfur og fram-
sækinn í trommuleik sínum.
Hann var orðlagður æringi og hugsjónarokkari og seint
verður sagt að hann hafi farið vel með sig um dagana. Sul-
livan fannst látinn á heimili sínu að morgni 28. desember
2009. Fyrstu niðurstöður krufningar bentu til þess að hann
hefði dáið af eðlilegum orsökum en þegar betur var að gáð
fannst banvænn kokkteill lyfja og áfengis í blóðinu.
Æringi og hugsjóna-
rokkari til hinsta dags
Jimmy „The Rev“ Sullivan var litríkur í leik og starfi.
upp með tækni sinni og blæ. Ef einhver er í vafa þá
eru þetta sviðsnöfn þessara ágætu manna, mæður
þeirra voru ekki á lyfseðilsskyldum lyfjum, alltént svo
vitað sé.
Okkar Stairway to Heaven
Síðasta plata Avenged Sevenfold, sem bar nafn sveit-
arinnar, olli vonbrigðum enda poppuðu menn sig
ótæpilega upp og döðruðu við furðulegustu stíla.
Minna fer fyrir daðri á nýju plötunni enda þótt
málmbragðið sé misjafnlega beiskt. Enginn flösufeykir
verður þó svikinn af Natural Born Killer og God Hates
Us, svo dæmi séu tekin. Titillagið rokkar líka feitt og
myndbandið er skemmtilega galið. Shadows rennt á
börum gegnum rangala geðveikrahælis, þar sem Gates
lemur höfðinu við vegginn og Zacky V. vangar dol-
fallinn við beinagrind. Þá er alltaf gaman að prestum
með svart naglalakk. Endalokin eru viðeigandi, Sha-
dows er ekið inn í herbergi með uppljómuðu
trommusetti – mannlausu.
Lögin eru sem fyrr löng og margslungin, ekki síst
trompið sem Avenged Sevenfold-liðar hafa rætt fjálg-
lega um í viðtölum, Buried Alive. Stigmögnuð tón-
smíð í einhverjum „Led Zeppelin hittir Iron Maiden
og Metallica-anda“. Shadows hefur gengið svo langt
að kalla lagið „okkar Stairway to Heaven“. Sjáum til
með það.
Umsagnir um Nightmare hafa á heildina litið verið
lofsamlegar enda þótt mikið púður fari að vonum í að
mæra fjórmenningana fyrir að láta ekki bugast.
Metal Hammer gaf Nightmare átta af tíu mögu-
legum og lauk sérstöku lofi á framlag Mikes Portnoys
og Kerrang! splæsti í fjórar stjörnur af fimm mögu-
legum með þeim orðum að The Rev hljóti að vera yfir
sig stoltur – hvar sem hann er svo niðurkominn.
Nightmare er of mistæk fyrir smekk Thenewre-
view.net sem þó ber lof á kraftmestu lögin. Þá þykir
miðlinum skorta á textalega dýpt með hliðsjón af
fyrri verkum. Hverjum er ekki slétt sama um það? Að
hlusta á texta í þungarokki er eins og að horfa á
hornfánann í knattspyrnuleik.
Nightmare var verkefni sem eftirlifandi meðlimir
Avenged Sevenfold urðu að klára. Enginn veit hvað
verður um sveitina í framhaldinu en alltént má þó
taka undir með gagnrýnanda Kerrang! þegar hann
segir: „Nightmare er platan þar sem sveitin frá Hunt-
ington Beach lét af barnaskapnum og varð að mönn-
um.“
A
venged Sevenfold, ein af forystusveitunum
í bandarísku nýbylgjunni í þungarokki (og
ein sú markaðsvænsta), sendi frá sér sína
fimmtu breiðskífu í vikunni. Var hennar
beðið með nokkurri eftirvæntingu í rokkheimum
enda gekk ekki lítið á meðan á undirbúningi og upp-
tökum skífunnar stóð, trymbill sveitarinnar og eins-
konar andlegur leiðtogi, Jimmy „The Rev“ Sullivan
fannst látinn á heimili sínu undir lok seinasta árs.
Eftirlifandi meðlimunum fjórum var að vonum
brugðið við áfallið en eftir nokkra yfirlegu ákváðu
þeir að gyrða sig í brók og ljúka við plötuna í nafni
hins fallna félaga síns. Leigutrymbill var fenginn að
settinu, enginn annar en Mike Portnoy úr Dream
Theater, eitt helsta tækniundrið í trumbuheimum.
Valið á honum var ekki út í loftið en Dream Theater
er einn af helstu áhrifavöldum Avenged Sevenfold
gegnum tíðina. Brást hann ljúfmannlega við beiðninni
en auk þess að lemja húðir á plötunni mun Portnoy
ferðast með sveitinni til að kynna nýju plötuna það
sem eftir lifir þessa árs.
The Rev svífur ekki aðeins yfir vötnum á nýju plöt-
unni, sem hlaut nafnið Nightmare, hann syngur og
leikur á slaghörpu í einu laganna, Fiction. Óvenjulegri
en áleitinni ballöðu sem á ugglaust eftir að væta ófáa
vasaklútana á næstu vikum og mánuðum.
Avenged Sevenfold hóf göngu sína sem málm-
kjarnasveit í undirheimum fyrir um áratug en skaust
með látum upp á yfirborðið með þriðju breiðskífu
sinni, City of Evil, árið 2005. Er þar á ferð ein besta
málmplata seinni ára. Melódískur málmur með gríp-
andi viðlögum og grenjandi gítarharmóníum. Formúla
sem raunar er eitur í beinum sumra tónspekinga. Þá
fer töffaraskapurinn í taugarnar á sumum á tímum
nördræðis. Zynyster Gates er virtúós í anda „eitís“-
hetjanna og Zacky litli Vengeance fylgir félaga sínum
sem skugginn. Johnny Christ plokkar bassa af áfergju
og söngvarinn, M. Shadows, er einn athyglisverðasti
oddaflygillinn í rokkinu nú um stundir. Hann
sprengir hvorki postulín né hljóðhimnur en bætir það
Avenged Sevenfold á tímamótum 2010: Zacky Vengeance, Synyster Gates, M. Shadows og Johnny Christ.
Drengir
verða að
mönnum
Avenged Seven-
fold stígur upp
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Umslag nýju plötunnar, Nightmare.
Nafnið Avenged Se-
venfold er tilvísun í
Biblíuna, söguna
um Kaín og Abel. Í
fyrstu Mósebók
kemur fram að al-
mættið hafi búið
svo um hnúta að sá
sem vogaði sér að
vega Kaín eftir
morðið á Abel
myndi uppskera
sjöfalda hefnd að
launum. Þrátt fyrir
þessa dýpt í nafna-
vali og þá stað-
reynd að Kristur
sjálfur leikur á
bassa í bandinu gefur Avenged Sevenfold sig ekki út fyrir
að vera kristilegt band.
Tilvísanir í hina helgu bók er einnig að finna í tveimur af
frægustu lögum þeirra kumpána, Chapter Four og Beast
and the Harlot.
Þeir bræður Kaín og Abel.
Tilvísun í Biblíuna