SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Page 12
12 1. ágúst 2010
Mánudagur
Hallur Örn Árnason Mjótt var á
mununum á milli gamans og al-
vöru í þá daga.
Miðvikudagur
Erla María Árnadóttir er maður
dagsins í dag en augljóslega kona
aldarinnar alla daga
Fimmtudagur
Hlín Rafnsdóttir Akkuru eru aldrei
húkkaraböll í Rvk?
Tryggvi Guðmundsson fór til New
York. Keypti í matinn.
Hitti Mel Brooks.
Sagði gemla að
myndin væri miklu
betri en söngleik-
urinn.
Kolbrún Georgsdóttir Er að horfa á
svakalega leikna
heimildamynd um 7-
eleven og hef kom-
ist að því að amer-
íski draumurinn ger-
ist í 7-eleven!
Föstudagur
Önundur Páll Ragnarsson Fyr-
irspurn: Þegar þið sendið sjálfum
ykkur póst, áminningar eða skila-
boð af e-u tagi, ávarpið þið sjálf
ykkur þá í upphafi skilaboðanna/
bréfsins? Það geri ég alltaf.
Fésbók
vikunnar flett
Á að gefa klæðnað
kylfinga frjálsan í keppni?
M
itt svar er afdráttarlaust
nei. Ástæðan er sú að
hefðin í íþróttinni er rík og
keppnisbúningur kylfinga
hefur í sjálfu sér ekki breyst mikið í
heila öld eða meira, fyrir utan smávægi-
legar tískubreytingar í litum. Auðvitað
er alltaf einn og einn sem sker sig úr, Ian
Poulter kemur fyrst upp í hugann, en
það er allt innan eðlilegs ramma. Golf-
peysur, -skyrtur og -buxur hafa ekki
breyst mikið í gegnum tíðina. Ekki
heldur hlífðar- og regngallarnir eftir að
þeir komu til sögunnar.
Hefðin er rík og ég er svo íhaldssamur
í eðli mínu að mér finnst skipta máli
hvernig keppnisbúningurinn lítur út. Ef
við tökum aðrar íþróttir er hefðin líka til
staðar, nægir þar að nefna fótbolta,
sund og badminton. Þar eru líka skýrar
reglur, alveg eins og það á að vera í golf-
inu.
Almennt finnst mér menn bera virð-
ingu fyrir þessari hefð en mestu máli
skiptir í mínum huga að kylfingar séu
snyrtilegir til fara. Í keppni hinna bestu
á Íslandi er kannski eitt og eitt dæmi um
það gagnstæða en yfir höfuð eru menn
snyrtilegir. Þannig á það vitaskuld að
vera hér eins og annars staðar í heim-
inum.
Færu menn að slá slöku við í þessum
efnum, til dæmis með því að fara að
klæðast gallabuxum í keppni, fyndist
mér það mjög miður. Golfið myndi setja
niður við það.
Málið snýst heldur ekki bara um útlit
og fas. Golf er þannig íþrótt að maður
þarf að geta hreyft sig. Það má hvergi
þrengja að vegna þess að þetta er snún-
ingshreyfing sem maður er að fram-
kvæma. Klæðnaðurinn þarf að geta gefið
vel eftir. Það útilokar í raun gallabuxur
og annan stífan fatnað.
Þetta snýst með öðrum orðum bæði
um hefðina og þægindin.
MÓTI
Sigurður
Pétursson
PGA-golfkennari
Þ
egar menn eiga fullt af pening
og vantar afsökun til að losna
að heiman eða úr vinnunni
eru þeir búnir að búa til svona
dundsport eins og golf, helst til að geta
verið fullir í nágrenni við laxá. Maður
hittir gjarnan þessa hala sem eru búnir
að vera í golfi í bænum. Ég hitti um dag-
inn félaga mína sem hafa verið í þessu
og þeir klæddir eins og Tinni og var ekki
einu sinni hleypt inn á Café Amsterdam
og þá er nú fokið í flest skjól. Það var
fólk að rúlla inn fram fyrir þá í krumpu-
galla með pípuhatt nánast. Það er ekk-
ert vanalegt að vera með sokka upp á
hné í Burberry-buxum. Þetta er svona
gamalt breskt íhald. Af hverju fara
menn ekki bara í krikketbúning? Marg-
aret Thatcher væri sú eina sem myndi
tötsa einhvern hala sem væri rúllandi í
bænum klæddur í golfbúning.
Svo er golfbúningurinn niðurlægjandi
fyrir kylfingana; að þurfa að ramba um í
þessum galla. Þeir eru að reyna að halda
einbeitingunni og svo eru þeir klæddir
eins og trúðar þannig að fólk hugsar að
þeir séu eins og hálfvitar.
Það er alveg búið að reyna þetta. Golf
er hundgömul íþrótt. Það er búið að
reyna að gera golfbúninginn töff í
hundruð ára og það er bara ekki að ger-
ast. Fólk getur rokkað körfuboltatreyjur,
hafnaboltatreyjur og fótboltatreyjur sem
þykja mjög töff og eru vel séðar. En ef þú
kemur eins og Tinni með kaskeiti og
dúsk í Burberry-buxum með sokkabönd
við þá er bara keyrt með þig inn á ein-
hverja stofnun.
Þetta er eins og með dvergakast. Það er
mjög niðurlægjandi fyrir dverginn og
þetta er alveg eins. Golf er orðið mjög
niðurlægjandi fyrir golfarann því hann
þarf að vera klæddur eins og fáviti. Hann
gæti alveg eins verið dvergur í dverga-
kasti, hann er að koma alveg eins illa út
úr því!
MEÐ
Erpur
Eyvindarson
tónlistar- og út-
varpsmaður