SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Side 40

SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Side 40
40 1. ágúst 2010 Þ að var ótrúlega skemmtilegt að hafa tækifæri til að stoppa í Húnavatnssýslunum í sumar þegar við hjónin heimsóttum Hótel Eddu á Laugarbakka. Það verður nú að viðurkennast að yfirleitt hefur maður keyrt í gegn án þess að stoppa, með örfáum undantekningum þó þeg- ar maður hefur stoppað stutt á Blönduósi eða í Staðarskála, sem hefur að mínu mati misst sjarmann, og minnir á endurgerð á gamalli bíó- mynd sem heppnast ekki vel. Hvað kemur í hugann þegar maður veltir fyrir sér mat á svæð- inu? Margir hugsa ef- laust um vegasjopp- urnar sem eru í Af silungi, lax og sel Matur Hrár íslenskur silungur (sushí) 400 g shirakikugrjón soðin eftir leiðbein- ingum á umbúðum Sushiedik, salt og sykur til að bragð- bæta grjónin Tvö falleg silungsflök, bein og roðlaus Vasabi (japanskt piparrótarmauk) Sushi-engifer (sæt súrsuð galingalrót) Japönsk soyasósa til að bera fram með Silungsrúlla með papriku og hundasúrum 4-5 msk. soðin grjónræma af silungi 10 hundasúrur 1 paprika (grilluð afhýdd og kjarnahreins- uð, skorin í lengjur) Sterk sriracha-chilisósa 1 noriblað Setjið þarablaðið á þar til gerða bamb- usmottu til að búa til rúllu (maki-rúllu) setjið grjónin ofan á og þrýstið þeim ákveðið ofan á svo þau tolli við þarablaðið. Passið að grjónin séu jöfn. Raðið paprikunni á grjónin og hundasúrunum þar á ofan. Efst setjum við svo silungsræmuna. Áður en þaranum er rúllað upp skulum við sprauta yfir mjórri ræmu af chilisósu. Látum svo rúlluna standa svolítið áður en við berum hana fram. Silungsrúlla með gulrótum, snjóbaunum og sesam 4-6 msk. soðin grjónræma af sil- ungi Sushi-sinnep 4 snjóbaunir, snyrtar og soðnar í 3 mín- útur 1 gulrót, skorin í ræmur msk. sesamfræ, svört og ljós 1 noriblað (þarablað) Þrýstið grjónunum vel ofan á þarann svo þau tolli örugglega. Gætið þess að dreifa grjónunum jafnt yfir. Setjið plastfilmu yfir, snúið rúllunni við. Leggið svo silunginn á miðjan þarann, ásamt baunum og gulrót- um. Grípið sushi-sinnep og sprautið mjórri rönd eftir endilöngum fiskinum. Rúllið svo þétt saman og veltið upp úr sesamfræjum. Munið að láta silungsrúlluna standa ögn áður en hún er borin á borð. Greinarhöfundur í essinu sínu í eldhúsinu. Uppskriftir helgarinnar Gott í grenndinni Friðrik V. Sushí að hætti Friðriks V.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.