SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Blaðsíða 47

SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Blaðsíða 47
1. ágúst 2010 47 LÁRÉTT 1. Fyrir Orkustofnun fór frumefni. (6) 4. Hik, von og bænir í bónorði. (9) 9. Hlaupið frá Orkuveitu Reykjavíkur fyrir hljóðfærið. (7) 10. Kýr hvers villist í vinnu? (7) 12. Kefli verður ekki einfaldlega að þeirri sem er hægt að splitta. (5) 13. Hæfði það á undan fyrir 2 árum. (10) 14. Of mikil átök hjá mjög strekktri. (7) 15. Vegsummerki eftir hnoðra í höndum. (5) 16. Numdi flærðina. (5) 17. Linna ótt með því að blanda lit. (8) 19. Ópin sem fylgja áfengi valda áhyggjunum. (8) 21. Hey! Mild fá einfaldlega leyfi. (7) 24. Stutt í pílumagn. (8) 27. Sársaukastingur í munni er málvenja. (8) 29. Við fyrstu grös í bendu getur leynst tól. (8) 30. Fór sá sem er giftur Eglu enda bytta. (11) 31. Skammið gyðju og óþokkann. (8) 33. Auglýsingahefti frá matvörubúð finnst á blómi. (9) 34. Í bolla lét vökva að sögn þrátt fyrir skerðingu (8) 35. Rakka teymir fyrir þá sem eru þreyttir. (10) LÓÐRÉTT 1. Flott kind lendir næstum því í veiðarfæri (9) 2. Ekki kló út íláti finnst hjá vitlausum. (7) 3. Hver er full og með óstöðugum? (8) 5. Náð alltof vel í hundelta. (6) 6. Flokkarnir missa afl fáeinna. (7) 7. Kjagaði áfram að baði. (7) 8. Faðernið getur flækst fyrir verklaginu. (8) 10. Lækna bæ í hjarna. (7) 11. Fór með út og gaf lagi nýjan búning. (7) 16. Kvenmaður sem er fyrir söngva er frilla. (8) 18. Staður þar sem á fellur til sjávar er ekki þungur heldur hrjúfur. (8) 20. Kölski með tveimur þriggja af hviklyndi sínu býr til sérstakt ílát. (12) 21. Harka með ofni til finna hljóðfæri. (9) 22. Snögg mál lenda einhvern veginn í skjölum. (8) 23. Öldruð borðar fimm hjá þeirri á fyrsta ári. (10) 25. Erlendri frú er skylt að valda deilum. (8) 26. Falsgoð sniðinnar. (6) 28. Líkneski orðin að landsvæðum. (8) 32. Tælir maskínur. (5) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn ásamt úr- lausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Há- degismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn kross- gátu 1. ágúst rennur út fimmtu- daginn 5. ágúst. Nafn vinnings- hafans birtist í blaðinu 8. ágúst. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 25. júlí er Ásdís Viggósdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Sítrónur og saffran eftir Kajsa Ingemarsson. Mál og menning gefur út. Krossgátuverðlaun Samskipti Íslendinga og Færey- inga á skáksviðinu hafa verið mikil allar götur frá fyrstu landskeppni þjóðanna sem haldin var árið 1975 en þar tefldi Friðrik Ólafsson á 1. borði fyrir Íslands hönd. Eftir það var keppnin gerð að föstum lið og hafa norðlenskir skákmenn haldið uppi merki Íslands á þeim vettvangi. Færeyingar hafa í gegnum tíðina eignast marga ágæta skákmenn og á síðasta Ólympíumóti í Dresden varð sveit þeirra fyrir ofan þá ís- lensku. Miklir aufúsugestir jafnan á Reykjavíkurskákmótunum og einn þeirra, Heini Olsen, í mikl- um metum. En í vor bárust vin- um hans þau hörmulegu tíðindi að Heini Olsen úr Klakksvík hefði látist af slysförum. Þeir minntust hans á dögunum með veglegu minningarmóti sem haldið var í Klakksvík. Héðan fór vel samsettur hópur: Róbert Harðarson tefldi í opna flokkn- um ásamt nokkrum félags- mönnum í Ósk, skákfélagi kvenna, en þar er Róbert þjálf- ari. Hann hlaut 7 vinninga af níu mögulegum, Saga Kjartans- dóttir varð efst þeirra stallsystra hlaut 5 vinninga, Ásrún Bjarna- dóttir, Þorbjörg Sigfúsdóttir og Guðný Erla Guðnadóttir hlutu 4 vinninga, Stefanía R. Ragnars- dóttir 3 vinninga, Eyrún Bjarnadóttir 2 vinninga og Þrúða Sif Einarsdóttir og Halla Norðfjörð Guðmundsdóttir hlutu ½ vinning hvor. Meðal gesta á mótinu var fyrrverandi heimsmeistari, Anatoly Kar- pov, sem hefur boðið sig fram gegn sitjandi forseta FIDE, Kirsan Ilyumzinhov, og var ferð hans til Færeyja hluti af kosningabaráttu hans. Karpov tók eina „bröndótta“ við Sögu Kjartansdóttur, formann Ósk- ar, og hafði betur. Í efsta flokki sem var í 6. styrkleikaflokki varð Henrik Danielsen efstur ásamt enska stórmeistaranum Gawain Jon- es en þeir hlutu báðir 7 vinn- inga af níu mögulegum en ár- angur Henriks reiknast upp á 2596 elo-stig. Í 3. sæti varð Helgi Dam Ziska með 6 vinn- inga. Bitastæðasti sigur Hen- riks var í uppgjöri hans við helsta keppinautinn. Í skákinni sem hér fer á eftir virðist Hen- rik eiga undir högg að sækja og Englendingurinn teflir eins og sá sem valdið hefur. En ekki er allt sem sýnist; lengi vel bíður Henrik eftir heppilegu tækifæri til að skipta upp á biskupum og þegar það næst gildir einu þó hvítur eigi peði meira, upp er komin vonlaus staða þar sem riddarinn er mun sterkari en biskupinn. Svartur tínir síðan upp hvert peðið á fætur öðru. Gawain Jones –Henrik Dani- elssen Pirc vörn 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 Bg7 4. f4 Rf6 5. Rf3 O-O 6. Bd3 Rca6 7. O-O c5 8. d5 Bg4 9. Bc4 Rc7 10. h3 Bxf3 11. Dxf3 a5 12. a4 b6 13.Dd3 e6 14. Hb1 exd5 15. exd5 He8 16. Bd2 De7 17. Hbe1 Dd7 18. f5 Hxe1 19. Bxe1 g5 20. b4 cxb4 21. Re4 b5 22. axb5 axb5 23. Bb3 Rxe4 24. Dxe4 Re8 25. De3 h6 26. Bxb4 Rf6 27. Bc3 He8 28. Dd3 Da7+ 29. Bd4 Da5 30. c3 b4 31. c4 Ha8 32. Dc2 Dd8 33. Db2 De7 34. Bc2 Hb8 35. Ba4 Kh7 36. Bc6 Bh8 37. Da1 b3 38. He1 Dd8 39. da7 Kg8 40. Hb1 Bg7 41. Da3 Re4 42. Bxg7 Kxg7 43. Hxb3 Hxb3 44. Dxb3 Df6 45. Df3 Dd4+ 46. Kh2 Dxc4 47. De3 Rf6 48. Dd2 De4 49. g4 De5+ 50. Kg2 Re4 51. De2 Kf6 52. Kf3 Rc3 53. Dd2 De4+ 54. Kf2 Dc4 55. Db2 Ke5 56. Be8 f6 57. Bf7 Da2 58. Dxa2 Rxa2 59. Kg3 Rc3 60. h4 Rxd5 61. hxg5 hxg5 62. Kf3 Kd4 63. Be8 Rb4 64. Bf7 Rd3 65. Be6 Re5+ 66. Kg3 d5 67. Bg8 Ke4 68. Be6 d4 69. Bb3 Ke3 - og hvítur gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Henrik vann minningar- mótið um Heini Olsen Skák Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.