Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
O
kkur fannst aðgengi al-
mennings að næringar-
fræðingum ábótavant
og því var stofnun
Næringarsetursins ákveðin hug-
sjón hjá okkur. Við erum allar
með MS gráðu í næringarfræði en
sérhæfum okkur á vissum sviðum.
Þannig sérhæfir ein sig til dæmis í
meðferð sykursjúkra og önnur
hefur mikið unnið með börnum og
mæðrum. Við erum meðvitaðar um
að þessi þjónusta þyrfti helst að
vera tengd heilsugæslunni eða
niðurgreidd. Draumur okkar er sá
að þjónustan verði hluti af heilsu-
gæslu og læknar geti til dæmis
sent til okkar fólk sem glímir við
ofþyngd áður en í óefni er komið
og grípa þarf til kostnaðarsamra
aðgerða. Næringarráðgjöfin yrði
þá hluti af þessum forvörnum sem
ætíð er verið að boða. Eitt af því
er að kenna fólki að borða rétt, þó
við setjum engin boð og bönn,“
segir Guðrún Kristín Sigurgeirs-
dóttir, matvæla- og næringar-
fræðingur.
Engar mataræðisflækjur
Fólk getur leitað ráðgjafa hjá
Næringarsetrinu, ýmist sem ein-
staklingar eða hópar. Guðrún
Kristín segir til dæmis nokkuð al-
gengt að fjölskyldur komi saman.
Hún segir fólk geta leitað faglegra
ráða hjá næringarfræðingunum og
þær leitist við að kenna fólki að
umgangast mat á heilbrigðan hátt.
Auk ráðgjafar hafa þær einnig
haldið fyrirlestra og verið með
fræðsluerindi. Guðrún segir miklu
skipta að almenningur fái grunn-
þekkingu í næringarfræði og reyni
að einfalda líf sitt frekar en að
flækja það hvað varðar mataræðið.
Klúbbar gera ekkert til
„Þetta þurfa ekki að vera boð
og bönn heldur frekar að laga
ákveðið hegðunarmynstur. Fólk er
oft í endalausu narti en betra er
að einblína á þrjár góðar og
næringarríkar máltíðir á dag og
einn til tvo millibita. Auk þess að
festa niður máltíðir tölum við líka
um að hreyfingin sé mjög mik-
ilvæg og kennum fólki að lesa á
umbúðir og meta orkuinnihald á
umbúðum. Ef fólk er að innbyrða
of mikla orku þá er algengt að það
sé vegna of mikillar gosneyslu og
mikilvægt er að reyna að draga úr
slíkri daglegri neyslu. Það er þessi
daglega neysla sem setur fólk í
stórkostleg vandræði en ekki
hvort það fer í einn saumaklúbb
eða stöku veislu.
Við teljum farsælast að gera
þetta í litlum skrefum þar sem við
erum að tala um breytingu til
frambúðar en á ársgrundvelli
verður breytingin mikil,“ segir
Guðrún Kristín.
Léttari máltíðir í janúar
Næringarfræðingar Næringar-
setursins vinna samkvæmt grunn-
ráðleggingum Lýðheilsustöðar. Þó
segir Guðrún að ekkert sé bannað
en frekar leggi þær til að nota olíu
eða mjúka fitu í staðinn fyrir
harða og fikra sig áfram með
breytingar eins og að bæta inn
ávöxtum og grænmeti í mataræðið
og að borða grófara og trefja-
ríkara kornmeti ásamt því að taka
D vítamín eða lýsi. „Fólk þarf að
bera ábyrgð á sinni eigin neyslu.
Eftir hátíðarnar er gott að breyta
í rólegheitum yfir í meiri hollustu,
borða meira af grænmeti, ávöxtum
og fisk. Þetta er yfirleitt ekki
mjög flókið, nema um eitthvað
sértækt eins og til dæmis ofnæmi
eða óþol sé að ræða,“ segir Guð-
rún Kristín.
Fólk ber ábyrgð á eigin neyslu
Morgunblaðið/Golli
Sérfræðingar Næringarfræðingar Næringarseturins eru fjórir og hver og einn sérhæfir sig á ákveðnum sviðum.
Margir vilja breyta matar-
æði sínu til betri vegar og
þá getur verið gott að
leita ráða hjá sérfræðingi.
Hjá Næringarsetrinu
starfa fjórir næringarfræð-
ingar, hver og einn sér-
hæfður á sínu sviði.
» Það er þessi daglega
neysla sem setur fólk
í stórkostleg vandræði
en ekki hvort það fer í
einn saumaklúbb eða
stöku veislu.
Eftirréttir þurfa ekki að vera svo ýkja
óhollir né þungir í maga. Ástaraldin eru
mjög góð til að nota í eftirrétti eða bara til
að fá sér á milli mála. Hér er uppskrift að
einföldu ástaraldinfrauði þar sem styttri
leiðin er farin við frauðgerðina en frauðin
verða alveg jafn góð fyrir það. Þó skal hafa
í huga að um leið og frauðin koma út úr ofn-
inum byrja þau að falla saman og því skal
bera þau fram um leið og þau eru tekin út.
Fallegur og einfaldur eftirréttur í matar-
boðið eftir ljúfa máltíð.
Ástaraldinfrauð með súraldini
400 ml fitusnauður eggjabúðingur eða
vanillusósa (vanillusósu má kaupa í IKEA en
uppskriftir einnig finna víða á netinu)
3 msk. flórsykur
2 súraldin, hýðið aðeins raspað niður
3 ástaraldin, aðeins aldinkjötið
3 eggjarauður
1 msk. sykur
Aðferð: Byrjið á því að hita ofninn í 190
gráður. Hrærið eggjabúðinginn eða vanillu-
sósuna saman við flórsykurinn, súraldin-
hýðið og ástaraldinið. Stífþeytið eggjahvít-
urnar og blandið þeim síðan varlega saman
við blönduna. Setjið blönduna á þar til
gerða frauðdiska og stráið sykrinum yfir.
Setjið frauðið fyrst undir grill í um þrjár
mínútur, eða þar til sykurinn hefur bráðn-
að. Fylgist vel með því, þar sem þetta getur
tekið styttri tíma, ljúkið síðan við að baka
frauðið í ofninum í um 20 mínútur, þar til
það hefur lyft sér vel.
maria@mbl.is
Ljúffengt ástaraldinfrauð
Frískandi Ástaraldin er ljúffengur ávöxtur sem gott er að nota
í ýmiss konar eftirrétti sem og að borða eitt og sér.
Aloe Vera
auðlind náttúrunnar
Heimsins stærsti framleiðandi
af AloeVera
Forever Living Products
Frábær heilsudrykkur,
hrein náttúruafurð sem
inniheldur öll vítamín,
steinefni og snefilefni
sem líkaminn þarfnast
til að viðhalda heilbrigði.
Eflir ónæmiskerfið.
Hann nýtist vel við: Meltingarvanda, bólgum, exemi,
sóríasis, hægðarvanda, brjóstsviða, liðagigt, slitgigt, síþreytu
og hverskonar vanda því safinn bætir ástand þarmanna og
gefur líkamanum aftur færi á að nýta betur það sem þú
borðar.
Markaðssvið:
Næring - Baðvörur - Snyrtivörur - Húðumhirða - Heimilisvörur
- Þyngdarstjórnun - Dýraumhirða.
Hlíf og Magnús, sjálfstæðið dreifingaraðilar
822 8245 • 822 8244
flp1@flp1.is • www.flp1.is